Akranes - 01.01.1957, Side 7
GufuskipiS „Laura“ viS bryggju á Bíldudal.
tízku jámsmíðatæki. Þá var og byggt
gistihús að miklu leyti fyrir atbeina
Thorsteinsson, }ió ekki hefði hann sjálfur
rekstur þess á hendi.
Á næsta sumri (1894) gengu 10 fiski-
skip frá Bíldudal. Það sumar byggði
Thorsteinsson hús það, sem nefnt var
Bryggjuhús. Var saltgeymsla og vöru-
geymsla niðri, en uppi á loftinu voru
smáherbergi eða stúkur til beggja hliða.
Voru þar geymd segl og annað, er til-
heyrði skipunum og hafði hvert skip sína
stúku. Hús þetta stendur enn, og er nú
verzlunarbúð h.f. Maron. Þá lét hann
lengja búðina að miklum mun, og lióf
nú byggingu nýs tvilyfts íbúðarliúss, er
fyllti í sundið milli búðarirmar og gamla
hússins. Nokkru síðar lét hann rífa
gamla húsið, en lengja hið nýja, og varð
A K R A N E S
þá húsalengja þessi um 40 rnetra löng
að búðinni meðtaldri. Kjallari var undir
norðurenda hússins og vatnsleiðsla þang-
að. Við neðri hlið hússins var tirnbur-
garður 7 m breiður og jafnlangur hús-
inu. Skyldi það verða skrúðgarður, og
var gosbrunnur í garðinum. Á miðri
hlið hússins voru loftsvalir aloettar gler-
gluggum. Þótti ferðamönnum um nokk-
urt skeið hús þetta vera fegursta og
vandaðasta íbúðarhús á landinu.
Thorsteinsson jók nú skipaútveg sinn
ár frá ári. Hafði hann einnig 2 eða 3
skonnortur á leigu, er sóttu vörur til
útlanda og fluttu út fisk. Lét hann þær
stundum fara á fiskiveiðar á vorin, og
bætti á þær íslenzkum mcnnum, en
ekki mun það mikið hafa nukið fisk-
framleiðslu hans, því dönskum siglinga-