Akranes - 01.01.1957, Síða 17

Akranes - 01.01.1957, Síða 17
sungin. Við leitum til tónlistarinnar í gleði og sorg. Hvað er gleðistund án tón- listar í einhverri mynd? Varla getum við hugsað okkur hinztu kveðju til ást- vina okkar án tónlistar — án þess að leita huggunar og svölunnar einmitt í henni. Þegar okkur líður vel þá langar okkur til að syngja. Allir kannast við þessa löngun þegar stigið er upp úr hressandi baði. Schiller sagði eitt sinn, að maður gæti verið öruggur, þar sem söngur væri hafður um hönd, því að illmenni leggðu það ekki í vana sinn að syngja. Sú músik, eða það, sem ég hér hefi kallað músik (eða tónlist), er sú, sem kemur ofan að og leitar upp á við. Ýmislegt, sem nú er kallað músik, svo sem jazz og annar skyldur óþverri, á ekki það nafn skilið. Það mætti eins kalla það yndisþokka þegar mannýgt naut ræðst á moldarvegg, eða nefna brölt nautgripa á svelli „plastik“. Það er ömur- legt til þess að vita að þessi „holdsveiki“ á sviði tónanna, sem jazzinn er, skuli hafa hertekið blóma þjóðanna. Einhvers staðar í gömlum ritum hefi ég lesið það, að músik sé bót ýmissa líkamlegra meina, t. d. að hún lækni gigt (sjálfur hefi ég reynt þetta nýlega), höfuðverk o. fl. Það er skýrt þannig, að tónsveiflurnar fjarlægi það, sem sjúk- dómnum veldur. Eins og þegar 'hefir verið vikið að hefir músik bætandi og róandi áhrif á sinnisveikt fólk, og eru um það mörg dæmi. Hvað sem um þetta mætti frekar segja, þá er eitt vist, að músik er list, sem tekur öllum öðrum listum fram í fegurð, göfgi, og hrein- leika. Hún ætti því að vera iðkuð á hverju heimili, í höll og í hreysi, og börnunum ætti að kenna að iðka hana og elska. Hvað er yndislegra, meira bæt- andi og göfgandi en það, þegar fjölskyld- an spilar og syngur saman á heimilinu? Einhver kann að segja: Guðræknisstund- ir. Það er rétt. En hvílíkur liður er ekki einmitt tónlistin í slíkum stundum. Guð- ræknisstundir eru fyrst og fremst lof- gjörð og á hvern hátt er betur hægt að tjá lofgjörð sína en með tónlist? Merkur maður komst þannig að orði í hrifningu sinni: „Ö, þú tónlist! Ert þú báran á hafi eilífðarinnar, sem hjaðnar blíðlega við brjóst mitt, sem stend á ströndinni og þrái að komast yfir um? Ert þú kvöld- blær þessa lífs, eða morgun-andvari hins tilkomanda?“ Annar hefir réttilega sagt, að músik sé kærleikur, því að hún á upptök sín hjá Guði og leiðir til hans. Meðal fornaldarmanna var sú skoðun ííkjandi, að guðirnir gæfu mönnunum tónlistina. Hindúarnir álitu, að guðirnir hefðu kennt mönnunum hana gegnum hina margvíslegu tóna og hljóð, sem heyrast í náttúrunni. Grikkir töldu mús- ik vera list gyðjanna. Orðið músik er dregið af gríska orðinu Muse, sem þýðir gyðja. Þessar gyðjur voru eiginlega per- sónugerfingar hinnar lifandi og starfandi náttúru. Gyðjurnar voru í læknum og lindinni. Hver sem drakk af lindinni eða læknum öðlaðist skáldskapargáfuna. Þessar gyðjur voru í fossniðnum, hinu seitlandi hljóði læksins og í hinum þung- lyndislega og angurværa þyt skógarins. Gríski spekingurinn Pythagóras mun hafa kennt, að hnettir himinsins fram- leiddu hljóð — samhljóm — þegar þeir þytu eftir brautum sinum. Þetta kall- aði hann söng hnattanna. Finnst mér þetta spaklega mælt, eins og margt fleira eftir þenna mann. Allt sköpunarverk Guðs — að þessum hnetti undanteknum — er harmoni — ein samræmd heild. Heimspekin kallar þetta einingu allra hluta. Allt sköpunarverk Guðs er har- moni, og lýtur ákveðnu lögmáli. Þegar A K R A N E S 17

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.