Akranes - 01.01.1957, Síða 18

Akranes - 01.01.1957, Síða 18
þetta lögmál er brotið í lífinu eða í nátt- úrunni, þá myndast ósamra.'mi, tví- drægni, ófriður, í tónlistinni illa látandi eða ómstríðir samhljómar. Menn spyrja, ef til vill: Er ekki öll músik okkar mann- anna byggð upp bæði af ómstriðum og ómblíðum samhljómum? Jú, það er rétt. En óskemmt eyra þráir ómblíðu. Allir finna þá fróun, sem það veitir þegar ómstríðir hljómar leysast upp í ómblíða hljóma. öll tónlist er í sem fæstum orð- um sagt, spurningar og svör við þeim. Þessu til skýringar mætti nefna lagið: „Þú sæta heimsins svalalind11, sem allir kunna. Þessar spurningar krefjast svars, og við erum ekki ánægð fyrr en svörin eru komin. Ég er sannfærður um, að í hinum syndlausa alheimi er ekki einn einasti ómstríður eða illa látandi samhljómur, heldur aðeins ómblíðir samhljómar, því að þar er fullkominn friður, hvíld, ein- ing. Þannig er ég einnig fullviss um að verður á hinni nýju jörð. — Er ekki þetta líf í hinum synduga heimi okkar eins og ómstriður hljómur, sem við þrá- uin innst inni að leysist upp i ómblíðan hljóm. Er það ekki kall eða spuming, sem við þráum að fá svar við? Þegar Ritningin lýsir hugtakinu har- moni, eða það, sem ég vil kalla ómblíðu, þá notar hún aðeins eitt orð — hið yndislegasta orð eða hugtak, sem ág þekki, nefnilega orðið friður. Biblian er tónfræði Guðs. Hún er bókin um tón- listina, hátíðasönginn — lofsönginn. Hún talar um básúnuhljóma, klingjandi skála- bumbur, strengjaleik, gígjunnar, hljóm- fagrar hörpur. H.ún talar inn söngkóra, útvalda musterissöngva, englakóra, söng hinna endurleystu, sem er eins og niður margra vatna, o. fl. Ég trúi því ekki að á hinni nýju jörð verði um að ræða nokkra ómstríða hljóma, heldur ómbliða. 18 ekki neina truflun, eða ófrið, heldur frið, ekki þreytu, heldur fullkomna hvíld í öllu og hjá öllum. í þessu sambandi verð- um við að hafa það skýrt fyrir okkur, að Guð er kœrleikur. Frá honum, sem allt hefir skapað, streymir líf og ljós, gleði og friður í öllum alheiminum. Á hinni nýju jörð munum við finna, að sameiginlegur hjartsláttur bærir alla tilveruna. Allt frá hinu minnsta ódeili til hins stærsta hnattar, dautt og lifandi, í skuggalausri fegurð sinni og fullkomnu gleði lýsir yf- ir því, að Guð sé kærleikur. Þar sem kærleikur ríkir er ekkert ósamræmi, eng- inn ófriður, eða óeining — enginn illa látandi tónn. Friður. Er ekki þetta orð á hvers manns vörum og í hvers manns hjarta nú á tímum? Er það ekki einmitt friður, sem hið mannlega hjarta þráir og þarf. Þenna frið finnum við þegar við erum í samræmi við reglur Guðs og í samfé- lagi við hann. Við finnum þenna frið einnig þegar við iðkum sanna og göfuga tónlist, sem ég endurtek, er ein stærsta náðargjöf Guðs. Leiðrétting: I minningarorðum um sira Þorstein Briem á bls. 111 i siðasta blaði, var sú leiða prentvilla, að 3. júli s. 1. hafi verið liðin 70 ár frá fæðingu hans. En átti að vera 3. júlí 1955, því að hann var fœddur 3. júlí 1885. Kæri vinur! Þú, sem sendir mér elskulegt bréf í desember s. 1. og nokkuð af frimerkjum, mikið þætti mér vænt um, ef þú vildir skrifa mér nokkrar linur undir fullu nafni og gefa mér heimilisfang þitt, svo að ég eigi þess kost, að ræða við þig um tillögu þá, er þú talar um í bréfi þínu. Með Jiakklátum huga. Vinsamlegast, Ól. B. Björnsson. A K R A N E S

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.