Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 29

Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 29
sem Rotaryfélagi í þjóðfélagsþjónustu sinni, starfsgrein sinni, afstöðunni til klúbbfélaga sinna, þ. e. a. s.: Gera eins vel og hann getur, og e. t. v. dálítið meira, ef bann er ekki allur í starfi sínu, né magnaður innri kraftur í þjónustu- gleðinni? Slíka menn eigum vér að sjálf- sögðu. Skylduræknu mennina, sem vinna starf sitt vegna þess, að það er skylda. Þeir leysa störfin af hendi af vana, óað- finnanlega og skynsamlega. En þeir gera það án tilfinningar og hjartahlýju — og — þetta vil ég leggja áherzlu á, — gleði- laust. Slíka menn hittrun vér hvarvetna, og fjan’i sé það mér að lasta þá. En ég held, að betra mundi starfið verða, ef þeir sýndu ekki einungis lofsverða skyldurækni við framkvæmd starfs síns, heldur legðu í það meiri tilfinningu og hjartahlýju. Og hér kemur mergurinn málsins: Það er hið innra líf einstaklingsins, sem öllu máli skiptir, sálarlífseinkenni manns og konu. Spurningin er: Hvaða kröfur geri ég til sjálfs mín? Er ég heiðarlegur gagnvart sjálfum mér? Eða lýg ég að sjálfum mér, þegar tækifæri býðst? Hvernig framkvæmi ég boðorð Rotary: Þjónusta ofar sjálfshyggju? Hver einstakur verður að svara. Ég er hræddur um, að ekki sé allt í sóman- um, ef við eigum að svara hreinskilnis- lega. En það, að vera hreinskilinn við sjálfan sig, veitir mönnum þrótt til þess að vera heiðarlegur í Rotarystarfi sínu og öllum greinum Rotaryfélagsskaparins. Vér verðum að byrja á oss sjálfum, heiðarlega og hreinskilnislega — horfast í augu við galla vora og veikleika — og bæta úr þeim eftir beztu getu. Ella fá- um vér aldrei samþýðzt þeim hóp manna, sem sameinast hefir í þjónustu- hugsjóninni um hið háa markmið Rotary. Einstaklingurinn er grundvöllur Ro- tary. Afstaða hans sker úr. Niðurstaðan er þvi: Vér verðum áÖ byrja á oss sjálfum. Og kjörorðið: Þjónusta ofar sjálfs- hyggju, er fáorður útdráttur úr gamla boðorðinu: Allt það, sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim gera. En meðan mennirnir skilja ekki þetta þúsund ára gamla boðorð og vilja ekki lifa samkvæmt því, þá er lítil von um frið, skilning og góðvild meðal þjóðanna. Þess vegna ber oss öllum að reyna að breyta boðorði þessu í raunveruleika og framkvæmd, láta þau verk vor setja svip á samfélagið, sem sýna vorn innri mann. Ekki harSstjórn heldur framkvæmd. (Elias Sandvig umdœmisstjóri, á þingi í Bodö). Tilkynning. Af óviðráðanlogum orsökum var ekki hægt að birta ævisöguþætti sira Friðrik Friðrikssonar í þessu hefti. Heilsa hans er þó sæmileg eftir atvikum, og hann heldur enn ófram að lesa fyrir þætti sina eins og ekkert hafi ískorizt, þótt sjón- ina vanti algerlega. 0. B. B. Úr nýju bréfi. Gáfaður og menntaður landi, (heimsborgari), sem lengi hefur dvalið með öðrum þjóðum, skrif- ar ritstjóra AKRANESS m. a. svo: „Beztu þakkir fyrir AKRANES. Ég las heft- ið spjaldanna á rnilli, — og fannst þaS hiS lœsilegasta og fróSlegasta í alla staSi. Svona tímarit kemur ekki út í neinum öSrum bæ í viSri veröld, af stœrS Akraness, — og er þér og bœnum til stórsóma“. A K R A N E S 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.