Akranes - 01.01.1957, Side 32

Akranes - 01.01.1957, Side 32
gerðarmanna og verksmiðjueigenda. Þann tíma hafa sjómenn ekki fleytt þar neinn rjóma, og þessi ár hafa skiljanlega orðið íbúum og bæjarfélagi Siglufjarðar þung í skauti. Bæ, sem svo til eingöngu byggði líf sitt og afkomu á síldveiðunum einum. Síldveiðum, sem frá sumra sjónarmiði, áttu ekki að geta brugðizt frá ári til árs svo að neinu næmi, hvað þá um 12 ára skeið, eða jafnvel fyrir fullt og allt. Það þarf engan að undra, þótt þessi 12 ár væru búin að gera marga íbúa bæjarins vonlitla á framtíð ba:jarins. Af þeim sökum hefur fólkinu fækkað nokk- uð á síðustu árum og var 1955 2744 manns, en um 3060 þegar flest var. Þetta útsog hins vinnandi fólks, og ef til vill sæmilega stæðra borgara, svo og algert atvinnuleysi, a. m. k um 10 ára skeið, frá 1945—1955, hlýtur að hafa haft, ekki aðeins lamandi áhrif á bæjar- reksturinn sjálfan, heldur beinlínis vald- ið honum búsifjum, sem erfitt hafi verið að yfirstíga. Því er ekki að leyna, að þessa verður auðvitað vart i rækilegu samtali, er ég átti við Jón Kjartansson bæjarstjóra um málefni bæjarins þessi erfiðu ár. Af þessum 2800 ibúum bæjarins eru um 1200 skattþegnar, sjómenn, verkamenn og bílstjórar að meirihluta. Þar eru eng- ir ríkir menn til að leggja á, né mikill einkarekstur heimamanna eða félaga. Jón segir, að árin 1945—1955 hafi hér bein- linis verið hörmungaár, og mjög litlar tekjur manna, að fráteknum vetrinum 1947—1948, þegar hið furðulega magn Hvalfjarðarsíldarinnar var flutt norður á Siglufjörð til vinnslu. Var mér sagt, að þá hafi þetta verið slíkur hvalreki eða búbót fyrir hinn aðþrengda bæ, að þess gæti enn, bæði hjá bæ og einstaklingum. Eftir 1950 sáu menn, að þetta mátti ekki svo til ganga lengur. Sneru Siglfirð- ingar þá bökum saman og hófu skipu lega sókn í leit að nýjum úrræðum, svo og vörn við flótta fólks úr bænum, með því m. a. að telja kjark í það. Með hliðsjón af framansögðu, hefur bæjarsjóði verið þröngur slakkur skor- inn á þessu tímabili, jafnvel um brýn- ustu þarfir í nútíma bæjarfélagi. Allt til þessa hefur V3 af niðurjöfnuðum útsvör- um farið til tryggingamála og fátækra- framfæris. öll útsvör togarasjómanna ganga til tapreksturs togaranna, en auk þess nokkur skuldasöfnun, vegna þess geysilega afhroðs, er Siglufjörður hefur goldið við það, að síldin lagðist frá landi um svo langan tíma. Enda sagði Jón Kjartansscn, að það væri eins og lífæð hefði hartt að slá. Ekki aðeins fyrir Siglufjarðarbæ, heldur rikið, og fjölda útgerðarstaði á landi hér. En vegna þessa vandræða ástands hefur ba:rinn fengið verulega aðstoð af atvinnubótafé ríkis- ins, sem þeim hefur orðið drjúgt, fyrir velvilja þeirra, sem þar hafa ráðið. Þrátt fyrir allt þetta, hefur þarna ver- ið unnið að byggingu Gagnfræðaskóla, stækkun barnaskólans, sundlaug endur- bætt, og hafin bygging nýrrar vatnsveitu i Hóladalsbotni, sem kosta mun um 1 1/2 milljón króna. Þar eru leiddar saman þrjár ár í eina uppistöðu. Þaðan er vatnið leitt í pipum í dælustöð neðar í dalnum — móts við Hól — og dælt þaðan í bæ- inn. Með þessu eru fullvirkjaðir neyzlu- vatnsmöguleikar hér, en það er talið, að þetta muni nokkurn veginn nægja þörfum bæjarins. Enn hafa þeir svo hug á að ljúka við byggingu innri-hafnar, og eru þegar byrjaðir á því verki. t>að má því segja, að ekki séu Siglfirðingar dauðir úr öllum æðum eða alveg að gefasl upp. Maður hefur og orðið þess var — og fær það staðfest hjá Jóni — að forráðamenn bæj- 32 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.