Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 33

Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 33
arins hafa hin síðustu ár verið sóknharðir um úrra'ði til bjargar þessum aðsteðjandi voða. Hafa þeir komizt furðu langt í þessum efnum, og eru nú betur búnir en áður undir að mæta misærum vegna dutlunga síldarinnar. Bæjarstjórnin hef- ur auðvitað margvíslega orðið að leita trausts og halds í þessum efnum hjá viðkomandi ríkisstjórnum. Segir Jón, að tveir menn liafi dugað þeim bezt í öll- um vanda þeirra um úrlausnir, en það eru Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra og Ólafur Thors, fyrrv. forsætis- og út- vegsmálaráðherra. ★ Atvinnumöguleikar Siglfirð- inga í dag. Á Siglufirði eru nú starfræktar 5 síldarverksmiðjur, og á ríkið 4 þeirra. Afkastageta þeirra er 23 þúsund mál á sólarhring. Eins og áður er sagt á Siglufjarðarbær síldarverksmiðjuna Rauðku, sem Goos átti áður. 1944—'45 var hún stækkuð úr 800 mála afköstum í 10 þúsund. 1 heild mun verksmiðjan víst upphaflega hafa kostað 8,5 milljónir króna. Árið 1946 fékk hún til bræðslu um 90 þúsund mál, og 1947 um 80 þúsund mál. Gekk þá sæmilega vel með afkomuna, en síðan hefur verksmiðjan svo sem enga síld fengið. Með endurbótum og viðhaldi, hef- ur hún því hlaðið svo á sig, að nú mun hún standa í 11 milljónum króna. Má þess þó geta, að í þessari upphæð eru veiðarfæri, sem munu vera um 1 milljón kr. virði. Ef nú ætti að byggja slíka verk- smiðju, myndi hún sjálfsagt kosta 30— 40 milljónir. Verksmiðjan hefur lýsisgeyma fyrir 5000 tonn, olíugeyma fyiár 3000 torm, og tilsvarandi mjölgeymslu. Þá rekur verksmiðjan dráttarbraut, járnsmíðaverkstæði og sildarsöltunarstöð. Verksmiðjan vann s. 1. sumar aðeins á einni vakt, og voru þar að vinnu um 40 manns. Með hliðsjón af undanfarandi árum, þorðu þeir ekki að ráða að henni meiri mannskap. Verksmiðjustjóri við Rauðku er Snorri Stefánsson. Undrar mig sá þrifnaður, er þarna er viðhafður utan húss og innan, er lofar fyrst og fremst þann, er sliku verki stjórnar. Með hliðsjón af undan- farandi erfiðleikaárum, og þar af leið- andi féleysi, undrar mig og stórleiga hve húsum verksmiðjunnar er vel við haldið. I Siglufirði er nú 21 söltunarstöð. Af þeim eru 5 stöðvar í eigu bæjarins, en fram að síðasta sumri hefur hin 5. verið leigð h.f. Shell sem olíubryggja, en er nú leigð Kaupfélagi Siglufjarðar. Hér rekur ríkið einnig tunnuverk- smiðju. Byrjar hún vinnslu eftir nýár, og vinnur til maí—júní. Smíðaði verk- smiðjan veturinn 1955—56 um 70 þús- und tunnur, og var þó unnið aðeins á einni vakt. Siglfirðingar vilja láta þessa tunnugerð hefjast strax á haustin. Þeir kunna því illa að flytja mikið af tunn- um inn frá öðrum þjóðum, en sjá tunnu- verksmiðjuna í bænum atvinnulausa, eða að þar sé ekki unnið nema á einni vakt. ★ En hvað hafa allir þessir síldarþankar að segja, ef engin síld veiðist? Bæjarfélag, sem búið er að reyna tólf ára uppihald, eða bið, eftir sínum aðal atvinnuvegi, sem átti að vera árviss og óbilandi, verður auðvitað að staldra við og gá til veðurs og hyggja að einliverjum úrræðum til þess að fylla upp í slíkar eyður, a. m. k. þegar slíkur tími fer að skipta áratugum. Mér fannst mönnum koma saman um A K R A N E S 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.