Akranes - 01.01.1957, Page 40

Akranes - 01.01.1957, Page 40
meimtunar í íslenzkum skóla eða hvort menn verði að sigla til náms. Og loks er veigamikið atriði að athuga, hvaða launakjör muni bjóðast að námi loknu, og hvemig atvinnuöryggi muni vera. Fólk verður að gera sér ljóst, að langt skólanám tryggir ekki alltaf bezt laun- uðu störfin, en lengsta skólanám tekur allt að 25 árum, ef með er talinn sá tími, sem barnið gengur í barnaskóla, og einnig sá, sem menn nota til þess að afla sér sérmenntunar erlendis. Það liggur í augum uppi, að ekki er öðrum fært en miklum hæfileikamönnum að ráðast í svo langvinnt nám, þar eð það er bæði erfitt og kostnaðarsamt. Við erum þá komin að tiundu spurn- ingunni, en hún er sú: Hvernig eru hæfileikar unglingsins í samanburði við annað fólk? Er líldegt, að hann geti lært svo að segja hvað sem er, eða eiga hæfi- leikar hans bezt við ákveðin viðfangs- efni? Það er gamall og algengur mis- skilningur að skipta störfum í tvo aðal flokka, fín og ófin. Eru þá fínu störfin þau, scm ekki óhreinka hendur manna eða klæði nema að litlu leyti, en ófínu störfin eru þau, sem imnin eru hörðum höndmn. Fátt er skaðlegra en ef unglingar læra að meta störf á þenn- an hátt. Bæði er það, að fá störf eru erfiðari en svo í nútímaþjóðfélagi, að hraustir menn eigi ekki hægt með að leysa þau af henni. f öðru lagi er það algert aukaatriði, hvort starfið óhreink- ar hendur manns eða ekki. Aðalatriðið er, að maðurinn kunni vel við starfið, þannig, að það veiti homnn eðlilega vinnugleði og tryggi honum sæmilega af- komu. Við getum því með góðri sam- vizku sleppt algerlega mati á störfum eftir því, hvort þau eru fin eða ófín. Hins vegar verðum við að athuga vand- lega, hvort unglingurinn hafi hæfileika til þess að læra það, sem honum eða okkur hefur dottið í hug að láta hann læra. Tæpast verður unglingi gerður meiri bjarnargreiði en ef hann er neydd- ur til náms, sem hann hefur ekki áhuga á og ekki hæfileika til að ljúka. Afleið- ingin af slíku verður oftast sú, að ungl- ingurinn gefst upp eftir marga og þung- bæra ósigra, og hann má vera mikið meira en í meðallagi andlega heill, ef hann á ekki að fyllast vanmetakennd eftir slíkar ófarir. Við þekkjum senni- lega öll eilífðarstúdentinn, sem foreldr- arnir hafa með ærnum tilkostnaði kost,- að í menntaskóla. Hann lýkur lélegu stúdentsprófi, sem kostað hefur fjölda aukatíma og mikið erfiði. Fláskólanámið hefst, en þá keyrir fyrst um þverbak. Ungmennið ræður ekki við námsefnið, og leitar þá oft annarra bragða til þess að fjölga gleðistundum lífsins. Þau munu ótalin ungmennin, sem hafa drekkt von- brigðum misheppnaðra prófa í bjór og brennivíni á gleðistöðum stórborganna. Fólk, sem hefur nám, sem þvi er með öllu ofvaxið, sóar miklum verðmætum til einskis gagns, en þótt eignatjónið, sem af slíku hlýzt, sé mikið, þá er þó hið mannlega tjón miklu meira, þar eð það er velflestum mönnum- ofraun að bíða stöðuga ósigra, án þess að bíða tjón á sálu sinni. Þar eð háskólanám er miklum mun erfiðara en annað nám og tekur langan tíma, verða foreldrar að hugsa sig vel og vandlega um, áður en þeir láta böm sín hefja nám í menntaskóla, því að stúdentsmenntun, er út af fyrir sig sára lítils virði, þar eð stúdentsprófið eitt veitir ekki réttindi til neinna starfa i þjóðfélaginu, enda felst engin sérmennt- un í námsefni menntaskóla. Gildi stúd- entsprófsins er því í raun og veru það eitt, að það veitir réttindi til að hefja 40 A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.