Akranes - 01.01.1957, Page 44

Akranes - 01.01.1957, Page 44
lag, að stöðva að miklu leyti alla vinnu um miðjan daginn til að fara heim og borða. Þetta skólaár skiptir afar miklu máli fyrir unglingana með tilliti til þess að kynnast störfum af eigin raun; reynir skólinn, í samráði við vinnusálfræðing- ana, að útvega hverjum unglingi nám i því starfi eða þeim störfum, sem hon- um leikur mest hugur á að kynnast. Þá daga, sem unglingarnir eru að vinnu, er það hlutverk kennaranna að ferðast milli vinnustaðanna og tala við vinnu- veitendur um nemendurna, er sú kynn- ing, sem skapast milli vinnuveitenda og kennara, mikils virði fyrir áframhald- andi samstarf, aufc þess kynnast kenn- arar atvinnulífinu á hagkvæman hátt með þessum heimsóknum, og er það vit- anlega mikils virði. Nýju sænsku skóla- lögin eru ekki alls staðar komin til framkvæmda, og er því skólinn átta ára skóli enn á mörgum stöðum í landinu, en þar sem svo er, eru níundu bekkjar starfsvalsleiðbeiningar látnar koma til framkvæmda í áttunda bekk. Ef ástæða þykir til, eru imglingamir sendir til hæfniprófunar á sérstakar vinnusálfræði- stofnanir, sem ekki hafa öðrum skyldum að gegna, en hæfniprófa það fólk, sem einstaklingar eða yfirvöld senda til þeirra. Slíkar stofnanir eru starfandi á öllum Norðurlöndum nema Islandi. Norðmenn ætla að starfrækja 12 slíkar stofnanir, en sú elzta hefur þegar starf- að í rúm 30 ár. Auk þess gera Norð- menn ráð fyrir 60 starfsvalsleiðbeininga- skrifstofum, sem eklci ráði yfir hæfnipróf um. Til þess að útiloka allan misskiln- ing í sambandi við hæfniprófanir, er rétt að geta þess, að ekki er hægt að beita þeim fyrr en próf hafa verið hæfð með því að prófa allmargt fólk og reikna út niðurstöðu af slíkum prófunum þannig, að hægt sé að fá hugmynd um, hvað sé meðalárangur og eins hvað sé góður og lélegur árangur. Með því að bera lausnir einstaklingsins saman við það mat, sem fengizt hefur á úrlausnum allmargra manna, er hægt að skera úr því, hvort lausn sé léleg, í meðallagi góð eða á- gæt. Þar eð mikla vinnu þarf að leggja í hæfingu hæfniprófa, leiðir það af sjálfu sér, að menn hafa hallast að því að út- búa próf, sem einkum henta þeim starfs- greinum, sem fjölmennar eru í hverju þjóðfélagi. Eru nú hæfnipróf, sem beitt er í iðnaðinum, fullkomnust, en próf, sem ætluð eru skrifstofufólki, eru einnig vel unnin. Norðmenn láta hæfnipróf skera úr því, hvaða stúdenar skuli fá leyfi til þess að hefja nám í læknisfræði, en aðgangur að því námi er mjög tak- markaður í Noregi. Norðmenn hæfni- prófa stúlkur, sem ætla að gerast hjúkr- unarkonur, og þeir vinna nú að því að útbúa fullkomið hæfniprófakerfi til þess að prófa kennaraefni. Danir prófa alla flugmenn, sem ráða skal í flugherinn, mjög nákvæmlega, en nýliðar eru rann- sakaðir á ýmsan hátt af sálfræðingum á öllum Norðurlöndum. Má því svo að orði kveða, að þessar þjóðir beiti hæfni- prófum alls staðar, þar sem mikils þykir við þurfa. Við Islendingar erum eftirbátar ná- grannaþjóðanna á þessum sviðum. Við veitum börnum og unglingum mikla bóklega fræðslu, ef til vill fullmikla, við höfum lítið gert til þess að tengja upp- vaxandi kynslóð atvinnulífinu á eðlileg- an hátt. Við athugum lítt hversu margra manna muni verða þörf í hinum ýmsu starfsgreinum á næstu árum. Við höfum að mjög litlu leyti gert okkur grein fyr- ir því, hvaða hæfileika menn þurfi fyrst og fremst að hafa til þess að vinna hin ýmsu störf svo að vel sé. Okkur hættir frekar til þess að ráða AKRANES 44

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.