Akranes - 01.01.1957, Side 52

Akranes - 01.01.1957, Side 52
Bergþór Arnason. Bergþór Árnason, 52 ára, og kona hans, Ingiríður Jóhaimesdóltir, 42 ára. Árni, 23 ára. Ingiríður, 8 ára, börn þeirra. Þar er og Sigríður, systir Ingiríðar 30 ára. Áður en Bergþór kvæntist og fór að búa með Ingu (eins og hún var oftast kölluð) var hann lengi vinnumaður njá Hallgrimi hreppstjóra í Guðrúnarkoti, og formaður fyrir hann. Hann var lengi formaður, en lítið eða ekki á eigin skipi. Bergþór var mikill að vallarsýn, greind- ur og las mikið. Hann var stiltur mað- ur, prúður og grandvar. Var seinn til reiði, en þegar hann reiddist, gat hann reiðst ofsalega. Ingiríður, kona hans, var óvenjulega góða kona, prúð og stillt svo að af bar. Alltaf eins og ljós, sem öllum vildi líkna og gera gott. Þau hjón voru óvenjulega gestrisin enda komu þangað margir, sér- staklega sveitamenn. Þegar Inga fluttist fyrst í Skagann IngiríÖur Jóhannesdóttir. 1868, var margt hér öðru vísi en nú er. Þá var hér ekkert timburiveruhús né steinhús. Eintómir torfbæir og flestir þeirra litlir. Þetta ár voru eftirfarandi nýbýli reist: Litli-Teigur, Sandur, Kirkjuvellir og Smiðjuvellir, og á þeim öllum reistir torf- bæir. Þá var hér engin verzlun/ enginn barnaskóli og engin kirkja. Inga á Bergþórshvoli mundi vel eftir frú Þórunni Stephensen, sem þá var á Heynesi. Hún var dóttir Magnúsar kon- ferensráðs og dómstjóra á Innra-Hólmi, en giftist frænda sínum, Hannesi Step- hensen prófasti á Ytra-Hólmi. Hjá henni var Sigurður Jóhannesson á Sýruparti í nokkur ár, en hann var bróðir Ingu. I 11.—12. tbl. 1944 er nokkuð ræki- leg grein um þau Bergþórshvolshjón. Bergþór Árnason deyr 11. marz 1930, en Ingiríður 25. september 1944. Eftir að Bergþór andaðist var jafnan eitthvert húsfólk á Bergþórshvoli. Árið 931 og 1932 voru þau þar, Guðjon Guðmundsson og Guðný Jónsdóttir, syst- 52 A K R A N E S

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.