Akranes - 01.01.1957, Síða 57
með miklum ólíkindum frá hendi höf-
undar og ekki tekst Herdísi Þorvaldsdótt-
ur að veita þessari hefðarkonu þá reisn,
sem við var að búast af svo tiginni lconu.
Ástasamband hennar við Gunnstein Ól-
afsson (Rúrik Haraldsson) er harla und-
arlegt. Gera verður ráð fyrir, að hin
glæsilega lcgmannsdóttir hafi búið yfir
svo mikilli kynorku og skaphita, að hún
hafi ekki í raun og veru háð lokahríð
orðasennunnar við heitrofa sinn með
sama jafnaðargeði og hún væri að halda
líkræðu yl’ir grátitlingi. Ekki bætir það
úr skák að 'hún afhendir vonbiðli sínum
Agli Söngva-Dísusyni (Róbert Arnfinns-
son) sjálfa sig og allt sem hún á, án
þess að spyrja hann fyrst, hvort hann
sé á samri stundu tilbúinn til að veita
þessu öllu viðtöku.
Gunnsteinn Ólafsson er flugumaðurinn
í leiknum, þessi aumkunarverða mann-
tegund, sem er reiðubúinn til þess að
selja hvað sem er fyrir metorð og völd.
Ættjörð hans og heitmey, réttur og til-
finningar þjóðarinnar er allt léttvægt
fundið ef hagur hans er annars vegar.
Þetta er sem sagt 30 silfurpemnga mað-
ur, enda á hann ekkert betra framundan
að leikslokum en hengja sig, þótt ekki
verði í það ráðið hvort svo muni fara
eða eigi. Rúrik Haraldsson leikur flugu-
mann þennan vel og skörulega, en svip-
brigði hans eru ekki nógu góð. Undir
gervi glæsimannsins verða leikhússgest-
A K R A N E S
5 7