Akranes - 01.01.1957, Síða 59
PÉTUR J. THORSTEINSSON
(Framhald. af bls. 15).
dal, er mér að mestu ókunnugt, að öðru
leyti en því sem Bíldudal snerti. Æski
legt hefði verið að hafa línurit, er sýnt
hefði hversu skipaútgerð Thorsteinssons
jókst ár frá ári, innfluttar og útfluttar
vörur, fiskmagn og fleira, en þess átti óg
engan kost, þar sem ég hafði ekki í hönd-
um neinar verzlunarskýrslur, aflaskýrsl-
ur, eða aðrar heimildir, sem nauðsynleg-
ar hefðu verið. En þessu œtti að vera
hægur vandi að ráða bót á fyrir mann
í Reykjavík, er þetta vildi rannsaka, því
að þar er allt við hendina, sem til þess
þarf. Mætti þá annað hvort nota þessa
ritgerð mina sem heimildarrit á þeiin
sviðum sem ég, sökum kunnugleika míns,
veit vel og man, — því að ég var 7 ár
samtíða Thorsteinsson og umgekkst liann
svo að segja daglega þegar ég á landi
vai., — eða ])á að prenta þessa ritgerð
mína eins og hún er, en með neðanmáls-
skýringum og athugasemdum þess
manns, er fremja kynni sögulega rann-
sókn á ævi Thorsteinssons. Hver þessara
leiða yrði farin léti ég mig engu skipta.
Einnig vill svo vel til að sum börn
Thorsteinssons eru enn á lífi. Gætu þau
eflaust gefið ýmsar góðar og merkar upp-
lýsingar um föður sinn og starfsemi
hans.
Brynjólfur biskup.
Ef til vill kann einhverjum að jiykja tviræð
fyrirsögn Ragnars Jóhannessonar fyrir kvæði
lians á hls. 50 hér i heftinu, og er þvi ekki úr
vegi cð skýra þetta með örfáum orðum.
Svo sem hér má sjá á öðrum stað, er ég að
ganga frá 1. bindi Sögu Akraness. Hefir Ragnar
skólastjóri haft mikinn áhuga fyrir ]>essu verki,
sem m. a. má sjá af þvi, að hann hefir eftir
beiðni ntinni, góðfúslega tekið að sér að lesa
1. próförk ritsins. Það litla, sem hér er dregið
fram um útgerð og athafnir biskupsins, á Akra-
nesi, hefir aldrei verið rakið svo ítarlega. Eftir
lestur Ragnars á þessum kafla, varð kvæðið til,
og með hliðsjón af þessu þótti Ragnari réttlætan-
legt að hafa fyrirsögnina svo, enda þótt Brynj-
ólfur hafi aldrei verið biskup á Akranesi.
Ég þakka Ragnari kærlega fyrir kvæðið, og
fyrir áhuga hans um framgang jiess verks, er
hér um ræðir, og ég vildi helzt að yrði skamm-
laust og Akranesi til gagns og sóma.
Ö. R. B.
KAUPIR:
Allar tegundir af lýsi, hrogn, fiski-
mjöl, sildarmjöl, skreið, grásleppuhrogn,
og tómar tunnur.
SELUR:
Kaldhreinsað meðalalýsi, fóðurlýsi,
lýsistunnur, vitissóda, salt og kol i heil-
um förmum, nótabáta, björgunarbáta
og vatnabáta úr aluminium.
J
BERNH. PETERSEN
Sími 1570 — Sírnnefni: Bernhardo
Pósthólf 1909 — Reykjavík.
A K R A N E S
59