Akranes - 01.01.1957, Page 60
ANNÁLL AKPANESS
GJAFIR OG GREIÐSLUR
TIL BLAÐSINS, SEM ÞAfí
ÞAKKAR INNILEGA.
I síðasta blaði var sagt, að Þor-
steinn Jóhannesson í Garði, hafi
sent 100 kr., en það átti að vera
200 kr. Þorsteinn Þorsteinsson,
fyrrv. sýslumaður, 400 kr., Frú
Ásta Jónsdóttir, Framnesv. Rvík„
100 kr., Jóhann Eiriksson, fræði-
maður Rvik, 100 kr., Stefán Stef-
ánsson, kaupm. Siglufirði, 150
kr., Friðrik I’órðarson, framkvst).
Borgamesi, 200 kr., Þorsteinn J.
Sigurðsson, kaupm. Rvik, 100 kr.,
Ingólfur Flygenring, framkvstj.
Hafnarfirði, 200 kr., Magnús Þór-
arinsson, formaður í Rvik, 200 kr.,
Amgr. Fr. Bjamason, kaupm.
Isafirði, 200 kr., Ásberg Sigurðs-
son, framkvstj. ísafirði, 100 kr.
HJÖNABÖND:
16. nóv. 56. Ingibjörg Sigurðar-
dóttir og Guðjón Friðbjamarson,
skipstjóri, Kirkjubraut 36.
16. des.: Ungfrú Svanhildur
Theódóra Valdiinarsdóttir og Karl
Ágúst Ásgrimsson, bifreiðastj.,
Höfðabraut 10.
23. des.: Ungfrú Jóhanna Ásdís
Sófusdóttir og Lúðvik Bjömsson,
sjómaður, Brekkubraut 8.
29. des: Ungfrú Sigrún Erla
Sigurðardóttir og Haukur Ár-
mannsson, sjómaður, Stekkjar-
holti 4.
23. febrúar '57: Ungfrú Erla
Björgheim Rasmussen frá Fær-
eyjum og Jón Leós Leósson, múr-
a.anemi, Sunnubraut 30.
2. marz: Ungfrú Dóra Sif Wi-
um frá Vestmannaeyjum og
Hilmar Snær Hálfdánsson Sveins-
sonar, iðnnemi.
DÁNARDÆGUR:
10. des. '56: Þóra Sigurðardótt-
ir, Akurgerði 12. Hún var fa:dd
26. marz 1880 i Litla-Lambhaga,
dóttir Sigurðar smáskammtalækn-
is þar Jónssonar.
23. jan. ’g7: Maria Björk Páls-
dóttir, Jaðarsbraut 41, f. i6/6-’g6.
Hún var jarðsett að Gilsbakka.
31. febrúar: Ásmundur Ólafs-
son, áður í Göthúsum og á Upp-
sölum í Hálsasveit. Ásmundur
var fæddur á Leirá 4. des. 1871.
Foreldrar hans: Þóra Sigurðar-
dóttir og Ólafur Ásmundsson,
ættaður frá Stekkjarholti á Kjal-
amesi. Ásmundur var einbimi,
og missti föður sinn í sjóinn
skömmu eftir að hann fæddist.
Hann var jarðsunginn að Reyk-
holti. Var þá svo vond færð, að til
Reykholts varð komizt við illan
leik á ig klst.
AFLAI'RETTIR.
Ekki þykir taka, að gera hér
grein fyrir afla á yfirstandandi
vertíð, svo litill sem hann hefur
verið. Er mikill bagi að þvi, en
af því leiðir einnig almennt at-
vinnuleysi landvinnufólks. Ekki
bætir það heldur úr skák, að
fram að þessu hafa engir togarar
lagt liér fisk á land, svo að hrað-
frystihúsin hafa ekki haft mikið
að gera.
Áður fyrr þótti ekki tiltökumál
þótt ekki væri vinna upp á hvern
dag framan af vetíð. En nú sigl-
um við svo háan byr og búum við
svo miklu betri kjör og aðbúnað,
sem daglega kostar mikið fé, að
nú þolum við i rauninni ekki
margra daga iðju- eða atvinnu-
leysi.
ALDARMINNING
BADEN-POWELLS.
Þessa merka manns var nýlega
minnzt um allan heim, sem eins
mesta menningarfrömuðar og
nytjamanns siðari tima. Hann
grundvallaði merkilega heims-
hreyfingu, sem hefir mikilvægt
uppeldislegt gildi, og hefir áreið-
anlega nii þegar unnið stór mikið
gagn.
Þessa minntust skátar hér með
ágætri hátíð i Hótel Akranes 22.
febr. Hér í bæ eru nú yfir 200
skátar, starfa þeir af miklu fjöri
undir afburðagóðri forystu Páls
Gislasonar sjúkrahúslæknis. —
Heill fylgi störfum þeirra.
IBÚÐABY GGINGA R
A AKRANESI.
Á s. 1. ári voru hér í byggingu
74 íbúðarhús. 73 húsanna voru
úr steinsteypu og 1 úr timbri.
Samtals þekja steinhúsin 7914,1
ms, en timburhúsið 93,7 m\ Rúm-
tak húsanna er 33,027 m3.
GUFUBAÐSTOFAN
ENDURBY GGÐ.
Baðstofan var mikið endurbætt
á árinu sem leið. Er baðstofan vel
sótt og á sjálfsagt vaxandi vin-
sældum að fagna.
60
AKRANES