Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 67

Akranes - 01.01.1957, Qupperneq 67
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR (Frh. af 2. kápusíSu). Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins yfir Is- landi, um einkaleyfi til aS brœSa lýsi úr þorskalifur til lœkninga. 10. jan. 1866. „í bænarskrá, sem hingað hef- ir borist með bréfi yðar, herra stiptamtmaður, dags. 4. nóv. f. á., hefir Oddut- Gislason, kandidat i guðfræði i Reykjavik sókt um, að sér verði veitt 10 ára einkaleyfi til að bræða lýsi, er haft vebði til lækninga, úr þorskalifur, með gufu, bæði á Islandi og Færeyj- um. Um þetta skal yður til vit- undar gefið yður til leiðbeiningar og til þess að þér kunngjörið það, að beiðandanum ekki verður veitt það, sem hann hefir sókt um“. ★ VlSUIi. 1 1.—3. tbl. 1952 eru birtar all margar visur eftir Sigurð Jónsson (refaskyttu á Þaravöll- um). Eftirfarandi visa er einnig eftir hann. Það er rikt í íslend- ingseðlinu, að setja saman vísur við ýms ta'kifæri. Þetta gera þeir á öllum aldri, lærðir og ólærðir, fátækir og rikir, og á öllum öld- um. Ennþá ber ég æskufjör - og óðar fæst við glæður. Mig ei þreytir mín lífs för meir en hálfáttræður. ERU MENN AÐ VERÐA HRÆDDIR VIÐ SJÖNV ARPIÐ? Margir hafa lengi horft vonar- augum til sjónvarpsins og viljað fá að njóta þess sem allra fyrst. Sérfræðingar i Englandi munu nokkuð lengi hafa rannsakað ým- isleg áhrif þessa mikla undratæk- is. Þykjast þeir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að sjónvarpið hafi skaðleg áhrif á heilsu barna þar í landi. Augnlæknar telja vafalaust, að mörg böm þjáist af augnveiki og ofþreytu í augum, sem efalaust stafi frá sjónvarpinu. Telja lækn- ar mjög varhugavert, að böm sitji mjög lengi eða að staðaldri við þetta undrata'ki. En fátt er svo með öllu illt. — Það er talið, að í Englandi hafi sjónvarpið dregið nokkuð úr útiveru barna. SKAMMDEGI. Diinmir óðum, dagar drungalegir linipa bera í rökkur barmi bæn um sól og frelsi. Kveldsins dísir kveikja á kjmdlum, höllin ljómar, dag í birtu dreynfir dýrð á björtu vori, minning gleði geymir gull í hverju spori. Dulvin. SigurSur Vigfússon: FÉTTIR I STUTTU MÁLI. MeSan hrakviSrin stóSu yfir. 4/2 ’5 7 I. Storð er snævi þakin, stormur endurvakinn eiginlega endalaust alla tima frá í haust. Veðrið Skagann skekur, skjálfa byggðin tekur, þrumugnýrinn þýtur, þráðinn sundur slitur. Furðuljósin fara um geim flýja margir undan þeim. Átján vikna umhleypingur, öskurok og skafrenningur, ekkert lát er enn á þessu, Jiótt allir prestar syngi messu. og biðji Guð um betra veður; biða menn, en ekkert skeður. Atvinnu og aflaleysi er nú hér i mörgu hreysi, en ]>að er ei tii að tala um ■ takmarkast af illviðrum. Allir lifa eins og greifar, enn eru talsvert miklar leifar frá því um og eftir jól enda fer að hækka sól. Mörgum endist þrek og þor þrá að aftur komi vor, afli glæðist einnig vinna, allir hafi nógu að sinna. Ennjiá stormur vitlaus vælir, verið allir lengi sælir. 4/3’ 57 II. Engan fisk er enn að fá aflabrögðin dauðasmá. Veðrin eru væg og blið, varla nokkurn tima hrið. Austangola og aflandsvindur, enn er hvitur fjallatindur. Hvergi sér á dökkan dil, djöfullegt að fara í bil, er Jiví sjórinn eina leiðin, enda mörg og fögur skeiðin. Á því græðir Akraborgin, öslar breiðu marartorgin, flytur brauð og brennivín, búsáhöld og margarin, mjólk og rjóma menn og fljóð, mörg er sending harla góð. ■ Hér er fullt af Færeyingum, furðu margt af Norðlend- ingum, misjafnt er það manna val meira J)arf, ef duga skal. Annars mun það alveg nóg, • ef enginn dregur bein úr sj<>. Afli þyrfti ögn að glæðast ekki dugar samt að hræðast. bita á jaxl og bölva í liljóði, burðast við að tina í sjóði, svo menn ekki svelti i vetur,; sem J)ó máski brugðizt getur, aumt er að falla úr evmd og hof, einhvem tíma kemur vor. Hér er vægur vinstri kaldi,; við eruin undir ströngu valdi, alls kyns skatta og áþjánar, öllum lýð til skapraunar. Bið ég yður lengi lifa, leggst J)vi upp og hætti að skrifa. 67 AKRANES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.