Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Blaðsíða 31
IDV Síöast en ekki síst
MÁNUDAGUR 17.MAÍ2004 31
Kjölturakkar?
Að loknum síðustu kosningum
var mikið talað um ungu þingmenn-
ina og var helst að skilja að þeir
myndu færa ný viðhorf og vinnu-
brögð inn á hið miðaldra Alþingi.
Nú hafa þessar vonir breyst í von-
brigði og einna helst talað um unga
fólkið í stjórnarflokkunum sem
kjölturakka forystunnar. Ekki er of-
sögum sagt að Bjarni Benediktsson,
Sigurður Kári Kristjánsson, Guð-
laugur Þór Þórðarson og Birgir Ár-
mannsson Sjálfstæðisflokki og
Dagný Jónsdóttir og Birkir Jónsson
Framsóknarflokki séu nú almennt
aðhlátursefni landsmanna. Jafnvel
er nú talað um að pólitískur frami
þeirra verði helsta fórnarlamb fjöl-
miðlafrumvarpsins. Unga fólkið hafi
fallið á prófinu og verði sálgað létt í
næsta prófkjöri!
Fórnarlömb áróðurs
Að mörgu leyti er þetta auðvitað
ósanngjarnt. Af hverju ættum við að
gera meiri kröfur til ungra og
reynslulítiUa þingmanna en þeirra
sem eldri eru og ættu að hafa betri
stöðu til að taka sjálfstæða afstöðu
til mála? Við ættum auðvitað að
dæma þá reynslumeiri harðar en þá
sem eru nýir á vettvangi. Ástæðan
fýrir því að við gerum það ekki er
einföld: Ungu þingmennirnir eru
fórnalömb eigin áróðurs. Þau sköp-
uðu væntingar um ný viðhorf og
vinnubrögð fólks sem ekki væri hluti
af „kerfinu" og því væru þau öðru-
vísi en hinir eldri. Þetta var auðvitað
tóm della frá upphafi, enda hafa
vonbrigðin ekki látið á sér standa.
Framabraut hlýðninnar
Þetta má ekki skilja sem svo að ég
sé á móti ungum þingmönnum. Al-
þingi er oftast miðaldra og starfs-
hættir og stíll henta miðaldra körl-
um betur en öðrum. Norrænar
Birgir Hermannsson
skrifar um unga
þingmenn
Kiallari
rannsóknir benda eindregið til þess
að ungir stjórnmálamenn - jafnt í
sveitarstjómum sem á þingi- séu al-
mennt mjög óánægðir með hlut-
skipti sitt og finnist vinnuumhverfið
framandi og möguleikamir á áhrif-
um litilir. Af hverju skyldi þessu far-
ið á annan hátt hér á landi? Maður
þarf ekki að hlusta lengi á Halldór
Blöndal forseta Alþingis til að átta
sig á því að Alþingi er ekki beinlínis
nútfmalegur vinnustaður.
Æskilegt er að á Alþingi sé bæði
ungt fólk og gamalt. Einnig er æski-
legt að menn sitji ekki á þingi mjög
lengi og endumýjun sé eðlileg og
stöðug. Við ættum því að gleðjast
yfir ungum þingmönnum, en átta
okkur jafnframt á því að ungu fólki á
þingi er gjarnan annt um ffama
sinn. Það er almennt betri leið til
frama að hlýða, rekast vel í liðinu og
storka ekki sterkum leiðtogum,
fremur en að vera með stöðug upp-
steyt og vandræði. Þessi vel þekkta
frambraut gæti nú verið að koma
ungu þingmönnunum í koll og jafh-
vel gert frama þeirra að engu.
Kjölturakki Davíðs
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
er ungur ráðherra. Fjölmiðlafrum-
varpið er hennar fyrsta stóra mál
sem ráðherra og óhætt er að fullyrða
að hún er sá stjórnmálamaður sem
mestu hefur að tapa. Útvarpslög til-
heyra hennar ráðuneyti og því vekur
það furðu að Davíð Oddsson hafi
niðurlægt hana með því að flytja
málið sjálfur. Þorgerður Katrín er
því í erfiðri stöðu: hún var niðurlægð
með því málið var tekið úr hennar
höndum, en samt verður hún að
vera í fremstu víglínu við að veija
það. Stundum hefur verið talað um
Þorgerði sem framtíðarforystumann
Sjálfstæðisflokksins. Þær raddir hafa
snarlega þagnað, enda dregur málið
upp mynd af henni sem kjölturakka
Davíðs fremur en sem sjálfstæðum
forystumanni. Kannski er hér kom-
inn skýringin á skjótum frama henn-
ar.
ímynd kjölturakkans gæti orðið
Þorgerði Katrínu þungur baggi í
framtíðinni. Enginn hefur nokkru
sinni haft slíkar hugmyndir um Dav-
íð Oddsson og óljóst hvort sjálfstæð-
ismenn vilji kjölturakka sem for-
mann eða varaformann.
Hvar eru þau nú
Pétur Péturáofl
Skagamaðurinn Pétur Pétursson
var einn af ástsælustu knattspyrnu-
mönnum landsins á síðari hluta
síðustu aldar. Hann varð marka-
kóngur íslandsmótsins 1977, aðeins
17 ára gamall, og setti síðan marka-
met ári seinna þegar hann skoraði
19 mörk í deildinni. f framhaldinu
gerðist hann atvinnumaður hjá
Feyenoord og átti nokkur frábær ár
þar. Eftir dvöl hjá belgísku liðunum
Antwerpen og Anderlecht og
spænska liðinu Hercules kom hann
heim haustið 1986. Hann gekk til
liðs við KR eftir heimkomuna og lék
með þeim til ársins 1991 þegar
hann lagði skóna á hilluna. Pétur
fór til Sauðárkróks til að þjálfa
Tindastól og notaöi tímann til að
læra ljósmyndun. Hann stýrði síðan
Víkingi og Keflavík áður en hann
gerði KR að íslandsmeisturum árið
2000. „Ég er nú að þjálfa þriðja
flokk KR auk þess sem ég rek eigin
ljosmyndastofu á Seltjarnarnesi,"
segir Pétur Pétursson, knattspymu-
maður og ljósmyndari.
• Ummæli Steingríms J. Sigfús-
sonar formanns Vinstri grænna í
garð Davíðs Odds-
sonar forsætisráð-
herra á Alþingi á
föstudag vöktu
mikla athygli. Þar
kallaði Steingrímur
Davíð gungu og
druslu. Steingrími
var mikið niðri fyrir. Hljóðupptaka
af ræðubút með Steingrími gekk á
milli fólks með tölvupósti á föstu-
Davíð Oddsson segir að forsetinn
sé vanhæfur af því dóttir hans vinni
hjá Baugi, sem er hluthafi í Norður-
ljósum. Tinna dóttir Ólafs Ragnars
vinnur við innlendar fjárfestingar
hjá Baugi. Yfirmaður hennar er
Skarphéðinn Berg Steinarsson
stjórnarformaður Norðurljósa. En sé
Ólafur vanhæfur, hljóta menn að
velta fyrir sér hvaða alþingismenn
séu hæfir til að fjalla um fjölmiðla-
frumvarpið og greiða því atkvæði.
Eiginmaður Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra er háttsettur hjá KB banka sem
er næststærsti hluthafinn í Baugi,
stjúpsonur Geirs H. Haarde og son-
ur Hjálmars Ámasonar vinna hjá
Fréttablaðinu, Samfylkingar-vara-
dag og um helgina. DV heyrði að
svo langt hefði gengið að einhverjir
hefðu stillt ræðubútinn sem hring-
ingu á GSM-síma sína. Óhætt er að
segja að það hafi ekki verið ein-
göngu lopakommar eða vinstri-
sinnaðir háskólamenn sem höfðu
gaman af þessu. Þegar hringt var í
jakkafataklædda bankamenn í ein-
um bankanna, heyrðist ekki hefð-
bundið dring-dring, heldur há-
stemmdur málflutningur formanns
vinstri-grænna...
mennirnir Ásgeir Friðgeirsson sem
vinnur í almannatengslum fyrir
Landsbankann, sem á 7% í Norður-
ljósum og Einar Karl Haraldsson af
og til fyrir KB banka gætu þurft að
íhuga stöðu sína. Bjöm Bjamason er
hluthafi í Morgunblaðinu, tengda-
sonur hans vinnur fyrir íslands-
banka sem á tæp 5% í Skjá einum.
Eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttir vinnur hjá Norðurljósum
við þýðingar. Sonur Davíðs sjálfs er
aðstoðarmaður Bjöms Bjamasonar
hluthafa í Morgunblaðinu. Er allt
þetta fólk vanhæft? Er kannski rétt
að íhuga það sem össur Skarphéð-
insson sagði að kannski ættu menn
að láta börn og nánustu aðstand-
endur ráðamanna eiga sig?
Eru allir vanhæfir?
Fjaðrandi
stollfesting,
púðar og
öryggisólar.
Einníg til með
svefnstillingu
þríhjól, vönduö
og endingargóð,
margar geröir
með og án skúffu
Mikið úrval af
Walt Disney
hjólahlutum
Transporter
kr. 5.890 stgr.
Risinn í fjallahjólum. Einn stærsti hjólaframleiðandi
heims, margfaldur sigurvegari í hjólreiðakeppnum og
gæöakönnunum. Frábær hjól á ótrúlega góöu veröi.
Super Lucy,
einig til rautt
og Ijósblátt,
kr. 5.130 stgr.
Hjólakerrur
fyrir börn
og vörur
GIANT Fjaliahjól
með dempara
20” MTX 125 kr. 18.905 stgr.
24” MTX 225 kr. 24.605 atgr.
GIANT MTX 200
AluxX F/S 20”
Ál stell og demparagaffall.
Verð aðeins kr. 21.755 stgr.
VIVI Moto Cross
12” Silfur/Rautt,
kr. 10.830 stgr.
14” Blátt/Gult,
kr. 11.970 stgr.
16” Gult/Svart,
kr. 12.825
VIVI KKE&
Barnahjól með hjálpardekkjum og
fótbremsu. Létt, meðfærileg
og endingargóð.
GIANT Fjallahjól
tveggja dempara
20” MTX 125 DS kr. 21.755 stgr.
24” MTX 225 DS kr. 27.455 stgr.
GIANT MTX 240
AluxX F/S 24”
Ál stell og demparagaffall,
Verð aðeins kr. 26.505 stgr.
VIVI Pretty Girl
Verð kr. 11.970 stgr.
GIANT GSR F/S LDS 26”
Alvöru dömu demparahjól.
Verö aðelns kr. 24.605 stgr.
GIANT GSR F/S GTS 26”
Alvöru herra demparahjól.
Verð aðeins kr. 24.605 stgr.
VIVI Lampo/Flamingo
12” Lampo, tilboð
kr. 9.215 stgr.
14” Flamingo, tilboð
9.975 stgr.
GIANT GSR AluxX F/S 26’
Ál stell og
demparagaffall,
Verð aðeins \
kr. 29.925 stgr. V
SCOTT Voltage YZ4
Octagon ái stell, demj
Verð kr. 35.910 stgrj
Flott og vönduð fjallahjól
SCOTT Tampico Shimano Deore,
Rock Shox Judy gaffall
Verð kr. 63.935 stgr. >
SCOTT Tiki Ál dömustell, dempari.
Fœst einnig meö brettum og böggla-
bera. Verð kr. 35.910
Hjálmar mikið úrval
Barna og fullorðlns
Afsláttur strax
við staðgroíðslu 5%
Upplýsingar um raðgreiðslur
veittar í versluninni
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stíllt á fullkomnu reiðhjóla-
verksteeði. Ábyrgð og upphersla.
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
Þú ferd vel með GIANT