Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2004, Blaðsíða 15
DV Fréttir MÁNUDAGUR 17. MAÍ2004 15 Fjögur tilboð í Ufsarveitu Fjögur tilboð bárust til Inúítar eru nokkurs konar endastöð mengunar og eitraðra lofttegunda. Loftslags- breytingar eru farnar að setja stórt strik í reikninginn í hinum fornu veiðisamfé- lögum og nú óttast menn að sjávarspendýr og ísbirnir séu í útrýmingarhættu. Landsvirkjunar í gerð Ufs- arveitu. Um er að ræða inntaksstíflu í Jökulsá í Fljóts- dal og gerð hluta af aðrennslis- göngum frá inn- takinu og inn í aðrennslis- göng Kárahnjúkavirkjunar. Lægsta tilboðið kom frá Arnarfelli eða tæplega 1,8 milljarðar kr. sem er 70% af tæplega 2,6 milljarða kr. kostnaðaráædun. Hæsta tilboðið átti hins vegar KHPL JV sem bauð 3,2 milljarða kr. í verkið. Aðrir sem skiluðu tilboðum voru Héraðsverk eM. og ísafl. Sfldarvinnsl- an á góðri siglingu Síldarvinnslan birti upp- gjör sitt fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins í Kauphöll íslands í gær en niður- staða tímabilsins er 360 milljón kr. hagnaður. Greiningardeild KB banka fjallaði um af- komuna og segir hana langt fyrir ofan afkomuspá þeirra og annarra markaðsaðila en deildin gerði ráð fyrir 141 milljón kr. hagnaði. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa stærstu eigendur fyrir- tækisins gert með sér sam- komulag um rekstur og stjórnun Síldarvinnslunnar og stefha að afskráningu fé- lagsins út úr Kauphöllinni. H Grofiurhusaahrif og mengun ógna tilveru íólks ó Norfiurslóðum Mengun er farin að setja mark sitt á lífskjör inúíta á norðurslóð- um og valda þeim heilsutjóni. Vandamálið er stórt og var til um- ræðu á ráðstefnu um málefni inúíta sem fram fór í síðustu viku. Sheila Watt-Cloutier, talsmaður samtaka 155 þúsund inúíta sem búa í Kanada, Rússlandi, Bandaríkjun- um og á Grænlandi, segir þennan hóp fólks gjalda þess dýru verði hvernig fólk lifir lífrnu annars stað- ar. „Inúítar taka við eiturefnum sem berast langt að. Blóð okkar er sýkt og móðurmjólkin einnig," segir Watt-Cloutier. „Þetta er ástand sem Tignarlegir Isbirnir eru taldir iútrýmingar- hættu og svo kann að fara að þessar tignar- legu skepnurdeyi útánæstu fimmtiu árum. við berum enga ábyrgð á - við verð- um fyrir eitrun sem á'uppruna sinn annars staðar á jarðkúlunni.11 Hækkandi hiti hefúr einnig mikil áhrif á lífsstíl inúíta en margir þeirra byggja tilvist sína á veiðum á sel, hval, rostungum og ísbjömum. „Fyrir okk- ur er hið náttúrulega umhverfi okkar stórverslun. Við lifum og hrærumst í náttúrunni á hveijum degi og getum ekki annað en furðað okkur á þeim miklu breytingum sem við blasa." Sjávarspendýr í útrýmingar- hættu Minna frost í jörðu en áður, minni hafís og magnaðri snjókoma em meðal þeirra veðurfarsbreytinga sem íbúar á norðurslóðum búa við. Áhrifin em víðtæk og til dæmis drukkna æ fleiri veiðimenn úti á ísnum. ísinn er ekki eins og þykkur og áður og bók- staflega brotnar undan veiðimönnun- um. Watt-Cloutier segir jafhffamt að rannsóknir leiði í ljós að með mjög svo minnkandi hafís að sumrinu sé hætt- an töluverð á að sjávarspendýr, þar á meðal rostungar og ísbimir, verði út- | Inúítar Hækkandi hiti hefureinnig mikil áhrifá lifsstil inúíta en margir I þeirra byggja tilvistsina á veiðum á sel, hval, rostungum og ísbjörnum. dauðir um og upp úr miðri þessari öld. „Fólk getur reynt að gera sér í hugarlund hvemig staða inúíta verður ef ísbimir verða horfriir af sjónarsvið- inu að fimmtíu til sjötíu árum liðnum. Það myndi marka endalok veiði- menningar okkar." Hún segir samfélög inúíta þurfa stuðning og samvinnu fólks frá öðrum landsvæðum þar sem gróðurhúsaá- hrif ógna tilveru manna. Þá hyggjast samtök inúíta krefjast alþjóðlegrar viðurkenningar á því að skerðing lífs- kjara þeirra sé af manna völdum og um leið sé verið að bijóta á rétti þeirra. Á sama tíma hvetur Watt-Cloutier þjóðir heims til að láta sig varða það sem er að gerast í samfélögum inúíta enda komi fram hjá Norðurslóða- nefiid Sameinuðu þjóðanna að gróð- urhúsaáhrifa verði fyrst vart á heim- skautasvæðum. „Fræðilega erum við mælistika á ástand umhverfsins. Við búum í náttúrunni og horfum upp á hraðfara breytingar svo heimurinn hefur af því mikinn hag að við höldum hefðbundnu lífi okkar og starfi áfram," segirWattCloutier.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.