Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2004, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2004, Síða 9
DV Fréttir FÖSTUDAGUR21. MAÍ2004 9 Verðbólga lægstá Islandi Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,0 stig (1996=100) í apríl sl., hækkaði um 0,3% frá mars. Á sama tíma var vísitalan fyrir ísland 127,2 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði. Frá apríl 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neyslu- verðs, 1,8% að meðaltali í ríkjum EES, 2,0% á evru- svæðinu og 1,5% á íslandi. Hagnaður SÍF minnkar SÍF hf. skilaði ríflega 700 þúsund evra hagnaði eftir skatta eða 61 milljón kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins, en hagnaður á sama tímabili í fyrra var rúmlega helmingi meiri eða 1.562 þúsund evrur. Hagnaður SÍF hf. fyrir afskrifdr og fjár- magnsliði nam 6.4 millj- ónum evra eða 554 milljón- um kr. á fyrstu þremur mán- uðum ársins en var 5.974 þúsund evrur á sama tíma- bili árið 2003. Þá skilaði rekstur samstæðunnar veltufé frá rekstri að fjárhæð 3.749 þús. evrur (326 millj. kr.) á fyrstu þremur mánuð- um ársins en var 3.615 þús. evrur á sama tímabili árið 2003. Gottláns- hæfi íslands Alþjóðlega matsfyrir- tækið Fitch Ratings stað- festí í dag lánshæfisein- kunnir íslands, AA- fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt, AAA fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og Fl+ fyrir skammtímaskuld- bindingar í erlendri mynt. Horfur um breytingar á matinu eru stöðugar. í frétt sinni segir Fitch það renna stoðum undir mat- ið og stöðugar horfur að vel hefur gengið að takast á við ágjafir, að stofiianir eru faglega vel búnar, að stefnan í ríkisfjármálum hefur verið gætin og mjög góður horfur em á góðum hagvextí og vextí útflutn- ings í kjölfar mikillar fjár- festingar í álframleiðslu. LSHyfir rammann Bráðabirgðauppgjör Landspítalans eftir fyrsta ársþriðjung sýnir 76,6 millj- ónir umfram fjárheimildir tímabilsins eða 0,8%. Launagjöld em nánast á áætlun en rekstrargjöld 2,4% umfram áætíun. Lækninga- og hjúkiunarvörur hældca um 9,2% og sérfræðiþjónusta um 7,0%. Kostnað- ur vegna S-merktra lyija eykst um 10% en lyfjakostn- aður í heildina eykst um 6,0%. Umfangsmiklar spamaðarráðstafanir standa yfir sem fela í sér fækkun starfsmanna ásamt ýmsum öðrum aðgerðum til lækk- unar gjalda. Frjálsa flugmannafélagið krefst þess að flugfélagið Atlanta fari að lögum. Haraldur Óskarsson, formaður Frjálsa flugmannafélagsins, segir forsvarsmenn Atlanta banna starfsmönnum sínum að ganga í stéttarfélög. Deilu við Frjálsa flugmannafé- lagið um mönnun á Spánarþotur lyktaði með því að leiguliðar voru ráðnir. „Starfsmönnum sem ráðnir eru í gegnum áhafnaleigur hefur ver- ið neitað um aðgang að okkar kjörum. Þeir fela sig á bak við að þetta eru starfsmenn áhafnaleiga. En skattstjóri hefur bent á að samband þessara starfsmanna og Atlanta er eins og hefðbundið samband latmþega og fyrirtækis. Við ætíum að ganga í Norræna flutningaverkamannasambandið, NTF, og Alþjóðasamtök stétt- arfélaga flugmanna, IFALPA, til að styrkja stöðu okkar,“ segir Haraldur Óskarsson, formaður Frjálsa flugmannafélagsins, um framgöngu flugfélagsins Atíanta gagnvart þeim starfsmönnum sem ráðnir eru til félagsins í gegnum áhafnaleigur. Frjálsa flugmannafélagið hefur innan sinna vébanda um 60 flug- menn og flugvélstjóra sem em lang- flestír í starfi hjá Atíanta. Þessir starfs- menn starfa undir kjarasamningum sem félagið hefúr gert við flugfélagið en þess utan er aðeins einn sem er í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Alls starfa hjá Atlanta 400 flugmenn þegar best lætur og em þá flestir þeirra ráðnir í gegnum starfsmanna- leigur; þeirra á meðal em starfs- mannaleigumar Ace ogAirbome sem staðsettar em í skattaparadísum, sfn hvorum megin á hnettinum. „Menn grunar að Atlanta eigi áhafnaleigum- ar. Þær em reknar í skattaparadísum og okkur grunar að ekki séu greiddir skattar af starfsmönnum í öllum til- vikum. f forsvari fyrir þessar áhafna- leigur emleppar sem fara stöku sinn- um á kreik og funda með flug- mönnunum,“ segir Haraldur. Hann segir að írskur maður, Jerry O’Sullivan, dúkki annað veifið upp sem talsmaður starfs- mannaleigu þeirrar sem leiguliðar Atl- anta vinna hjá. „Hann er stuðpúðinn á milli Atlanta og flugmannanna. Síðustu þrjú ár hafa hátt í 40 leiguliðar viljað koma í félagið til okkar en stjómend- ur Atlanta harðneita þessu einfald- lega og hafa þau úrræði að rifta verk- takasamningum og starfsmennimir missa vinnuna. Gífurlegur óttí er meðal starfsmanna því þeir missa vinnuna. Það em þekktar hefrtdarað- gerðir að þeir sem ekki em þægir em sendir heim í nokkra mánuði," segir Haraldur. Spánardeila Nýjasta deila Atlanta við starfs- menn snýst um mönnun á tveimur þotum Atlanta á Spáni. Undanfamar vikur hefur Frjálsa flugmannafélagið staðið í samningaviðræðum ■,#. qfoÆ., við Atlanta, vegna þjón- ustuleigu Atlanta á tveimur Boeing 747 400- farþegavélum til spænska flugfélags- ins Iberia. Áður en Atlanta gekk frá samningnum við Iberia höfðu for- svarsmenn fyrirtækisins lofað að fé- lagsmenn Frjálsa flugmannafélagsins fengju forgang í þjálfun og flug á vél- unum. Haraldur segir að nú sé ekki útíit fyrir að það standi til að halda loforðið. Hann segir að flugfélagið hafi krafist þess af flugmönnum, sem vilja starfa á 747-400-vélunum að þeir flytjist búferlum til Madridar á Spáni. Þá hafi Atlanta neitað að fara eftir starfsaldurshsta, þrátt fyrir að skýrt sé kveðið á um að svo skufi vera í kjara- samningum. Atlanta hættí við að setja flugmenn frá Ftjálsa flugmanna- félaginu á vélamar og hefur þegar hafið þjálfun annarra flugmanna á vélamar. Á því námskeiði sem nú standi yfir sé ekki einn flugmaður á kjörum sambærilegum þeim sem bjóðast flugmönnum með íslenskan kjarasamning. Þetta réttíætí Atíanta með þeim rökum að umræddir menn séu ekki starfsmenn Atíanta, heldur erlendrar áhafnaleigu. Eins og DV hefur áður greint frá segir fyrrverandi flugmaður Atlanta að leiguliðum Atí- anta sé gert að greiða sjálfir sl£k námskeið. Ekki hefur tekist að fá viðbrögð stjómenda Atlanta vegna þessara mála að öðm leytí en því að fé- lagið sendi út fréttatiikynn- ingu á mið- vikdudag um SpánardeU- una. Þar segir að engin lof- Asgelr Friögeirsson Atl- * , anta veitirenn ekki upp- orð hafi venð Iýsingarum áhafnaleigur. gefin um sldl- yrðislausan forgang félagsmanna í Frjálsa flugmannafélaginu í þjálfún og flug á nýju Boeing 747-400-vélun- um. Hið rétta sé að Air Atíanta hafi í fyrsta sinn viljað gefa íslenskum flug- mönnum kost á þjálfun á nýja tegund flugvéla og þar með veita þehn tæki- færi á að fljúga þeim strax við upphaf nýs þjónustusamnings en meirihlutí félagsmanna hafi hafriað tilboði frá félaginu. Ásgeir Friðgeirsson, tals- maðm félagsins, hefur lofað DV upp- iýsingum um áhafnaleigur félagsins og tengsl félagsins við þær en þær upplýsingar hafa ekki enn borist DV. rt@dv.is Formaður Frjálsa flugmannafélagsins Haraldur Óskarsson segir aðAtlama banni starfsfólki að ganga I félag sitt. Frjálsa flug- mannafélagið leitar nú eftir aðild að alþjóða samtökum til að ná fram rétti starfsfólks Sonur Jóns Steinars tekur undir meö föður sínum Skólastjórinn lagði mig í einelti „Aðfarir skólastjórans höfðu yfir- bragð eineltis," segir Gunnlaugur Jónsson, sonur Jóns Steinars Gunn- laugssonar og fyrmm nemandi í Verslunarskólanum. Heiftúðlegt bréf sem Jón Steinar skrifaði Þor- varði EUassyni skólastjóra var í gær hengt upp á göngum Verzlunarskól- ans. í bréfinu efast Jón Steinar um geðheUsu skólastjórans. „Það er eins og þú skiljir ekki að þú ert einhver ömurlegasta persóna sem ég og fjölskylda mi'n hefur kynnst fyrr og síðar. Þú situr sem skólastjóri í ffamhaldsskóla og beitir þar geðþóttavaldi og veitist að ung- mennum við skólann og velferð þeirra með ofríki og fautagangi. Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heiU heilsu ...,“ segir Jón Steinar í bréfinu. Gunnlaugur, sem var 17 ára gam- aU þegar máhð kom upp, segir að skólastjórinn hafi beitt hann mis- réttí. Hann hafi fengið lágar kenn- araeinkunnir vegna lélegrar mæt- ingar. „Skólastjórinn átti þó engan þátt í því að ég sótti Ula tíma," tekur Gunnlaugur fram en í DV í gær sagði Jón Steinar að léleg mæting Gunn- laugs hefði verið að „undirlagi" skólastjórans. „Nei," leiðréttir Gunnlaugur. „Það var mín ákvörð- un.“ Jafnframt segir Gunnlaugur að hegðun skólastjórans hafi borið ein- kenni ofsókna. „Þetta var óréttíát aðför að skólagöngu minni. Það voru settar reglur beinlínis mér til höfuðs og ég naut ekki sama réttar og aðrir nemendur; aðrir nemendur fengu aðra meðferð en ég.“ Gunnlaugur nefnir sem dæmi að á lokaári hans, þegar hann var utan- skóla, var hann efstur í ákveðnu fagi. Þá setti skólastjórinn þær reglur að nemendur utan skóla ættu ekki rétt á viðurkenningum. Þá mátti Gunn- laugur ekki vera í ræðu- eða spurn- ingaliði skólans vegna nýrrar reglu um að utanskólanemendur mættu ekki vera í liðunum. Aðspurður hvort hann taki undir ummæli föður síns - að skólastjór- inn sé ekki heill á geði - segist Gunn- laugur ekki vilja svara því opinber- lega. „Ég get hins vegar kannski sent svarið til Þorvarðar í pósti og hann getur svo hengt það upp þar sem hann kýs." simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.