Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2004, Síða 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 21.MAÍ2004 13
Sparkvellir
fyriraustan
Knattspyrnusamband
fslands hefttr úthlutað sjö
sparkvöllum á Austurlandi
segir í frétt á heimasíðu
Hornafjarðar. Settir verða
upp vellir á Djúpavogi, Eg-
ilsstöðum, Eskiflrði, Fá-
skrúðsfirði, Neskaupstað,
Seyðisfirði ogVopnafirði.
Ails hefur KSÍ úthlutað sex-
tíu sparkvöllum víða um
land en hundrað og fimm
umsóknir bárust frá fimm-
tíu og níu sveitarfélögum.
Fátækt
viðurkennd
Stjóm stéttarfélags ís-
lenskra félagsráðgjafa
hefur sent frá sér ályktun
vegna skýrslu forsætis-
ráðherra um fátækt hér á
landi. Þar kemur meðal
annars fram að með
skýrslunni hafi ríkis-
stjórnin loksins viður-
kennt að til sé fólk í
landinu sem lifi við fá-
tækt. Hinsvegar er það
harmað að ekki hafi ver-
ið leitað til þeirra sem
þekkja best aðstæður
einstaldinganna sem
fjaliað er um.
Safnar
fóbíum
Brasilíski rithöfundur-
inn Igor Rafailov hefur sett
saman skrá yfir allar heims-
ins fóbíur. Fóbía
er eins og flestir
vita sjúklegur ótti
eða hræðsla við
eitthvert ákveðið
fyrirbæri.
Rafailov tókst að
safna saman
1.029 fóbíum í
bókina sem hann
segir þá fyrstu
sinnar tegundar í sögunni.
„Markmiðið er að hjálpa
fólki að skilja og takast á við
eigin hræðslu," segir
Rafailov. Meðal fóbía sem
nefndar eru í bókinni er
„felinephobia" en það er
ótti við ketti og „puppet-
phobia" sem er ótti við
dúkkur. Lengsta orðið í
bókinni er „hipomonster-
esquipedalophobia" - sem
er óttinn við lesa eða segja
mjög löng orð, nema hvað!
Geðfatlaður
tekinn af lífi
Fimmtugur geðfatlaður
maður fékk eitursprautuna
í Texas fyrr í vikunni. Kels-
ey Patterson hafði verið
dæmdur til dauða fyrir
morð á oh'uforstjóra og rit-
ara árið 1992. Óskað hafði
verið eftir náðun á grund-
velli þess að Patterson er
geðsjúkur, er með of-
sóknaræði og geðklofa, en
þeirri beiðni var hafnað.
Hann er fyrsti geðfatlaði
maðurinn sem tekinn er af
lífi í Texas síðan George
Bush yfirgaf ríkisstjórastól-
inn og tók við forsetaemb-
ætti. Hæstiréttur Bandaríkj-
anna hefur bannað dauða-
refsingar yfir þroskaheftum
en ekki geðfötluðum. Patt-
erson var 322. maðurinn
sem tekinn er af h'fi í ríkinu
síðan dauðarefsingar voru
teknar upp árið 1982.
Þingkonurnar meö vændisfrumvarpið milda ásjónu þess. Sektir í forgrunni í stað
fangelsunar. Sjálfstæðismenn vildu flýta sér hægt og nota sumarið. Kolbrún Hall-
dórsdóttir segir að búið sé að ræða málið nógu lengi og nú sé ráð að það komi í
atkvæðagreiðslu.
Konurnar milda
vændisfrumvarpið
Kolbrún Halldórsdóttir
„Málid nægitega reifað og
viljum aðþadkomiiilat-
kvæðagreiðslu íþinginu."
Sigurður Kári Krist-
jánsson „Við teljum
að betra hefði verið
að biða og sjá."
Þingkonurnar sem standa að vændisfrumvarpinu svokallaða,
konur úr öllum stjórnmálaflokkunum á þingi nema Sjálfstæðis-
flokknum hafa heldur dregið úr hörku frumvarpsins, sem nú
hefur verið afgreitt út úr allsherjarnefnd og er á leiðinni yfir í
aðra umræðu á þingi.
Breytingarnar duga þó ekki til
þess að fá hðstyrk
. úr Sjálfstæðis-
flokknum.
Frumvarpið
var með
breytingum
afgreitt frá
allsherj-
’ . ar-
nefnd á þriðjudag með fimm at-
kvæðum stjórnarandstæðinga og
Jónínu Bjartmarz, gegn fjórum at-
kvæðum sjálfstæðismanna.
Fyrsti flutningsmaður ffum-
varpsins, Kolbrún Halldórsdóttir,
Vinstri grænum, segir að máhð hafi
fengið ítarlega umfjöllun og íjöl-
margar umsagnir. „Eftir þessa
vinnu þótti okkur eðlilegt
að gera breytingar á
frumvarp-
inu.
Annars i
y vegar j
þótti
of opið
að tala
kyn
um
hfs
Drífa Hjartardóttir
„Við höfum mikla
samúð meðþessu
máli."
„Annars vegar þótti of
opið að tala um kyn-
lífsþjónustu afnokkru
tagi og nú er talað um
samræði og önnur
kynmök, í sama anda
og fram kemur í hegn-
ingarlögum
þjónustu af nokkru tagi og nú er tal-
að um samræði og önnur kynmök, í
sama anda og fram kemur í hegn-
ingarlögum. Hins vegar er ekki leng-
ur talað um allt að tveggja ára fang-
elsi, heldur sektir og allt að eins árs
fangelsi," segir Kolbrún.
Sektir í Svíþjóð
Kolbrún segir að ákveðið hafi ver-
ið að taka inn sektirnar með reynsl-
una í Svíþjóð í huga. „Þar er fyrst og
fremst sektunum beitt. Það er al-
gengasta úrlausnin og rétt að hafa
það inni hér. Að öðru leyti eru
breytingarnar fyrst og fremst
lagatæknilegar. Við flutnings-
menn höfum aht frá fýrsta degi
lýst okkur reiðubúnar að ræða
refsirammann. Okkur þykir
verra að ekki hafi tekist að ná
strax fram þverpóliú'skri sam-
stöðu um málið. En úr því sem
komið er þá teljum við málið nægi-
lega reifað og viljum að það komi til
atkvæðagreiðslu í þinginu."
Sigurður Kári Kristjánsson, einn
fuhtrúa Sjálfstæðisflokksins í alls-
herjarnefnd, segir að ekki hafi átt að
afgreiða málið úr nefndinni þar sem
breytingatillögumar hafi ekki legið
skriflega fyrir. „Við höfum mikla
fýrirvara við frumvarpið, eins og við
höldum að það eigi að líta út.“
Betra að bíða og sjá
Sigurður Kári segir að frumvarpið
sé lagt ffarn með hhðsjón af reynslu
Svía, sem breyttu lögum sínum á
þessu sviði fyrir 5 árum. „Við teljum
að betra hefði verið að bíða og sjá
hvemig þróunin hefur verið þar, en
þar er seinna í maí von á mikilli
skýrslu um einmitt þessi mál. Við
vhjum í ljósi þessa bíða með að gera
svo afdrifaríkar breytingar á hegning-
arlöggjöfinni hér," segir Sigurður
Kári.
Þingkonur Sjálfstæðisflokksins
var á sínum tíma boðið að vera með,
en fannst thboðið koma of seint. í
fyrstu umræðu um málið í október
sagði Drífa Hjartardóttir að ef sjálf-
stæðiskonur eigi að vera með í máli
vhji þær „fá að koma að því frá frum-
gerðinni og hafa það í því formi sem
við mundum vhja sjá það. Við höfum
ekki fengið tækifæri til þess. En við
höfum mjkla samúð með þessu
máli."
fridrik@dv.is
Skeljungsræninginn dæmdur
Framganga ákærða
vakti ekki traust
Maðurinn sem rændi bensínstöð á
Laugarvatni með rörtöng að vopni
Stal bíl um leið og
yfirheyrslu lauk
Maður sá sem lögreglan á Sel-
fossi handtók á mánudag vegna ráns
í bensínstöðinni Hásel á Laugar-
vatni slapp úr haldi lögreglunnar
eftir yfirheyrslur í gærdag. Hann
rændi bíl um leið og hann slapp út
og ók honum á ofsahraða eftir Suð-
urlandsvegi í vesturátt og síðar Vest-
urlandsvegi í átt til Mosfehsbæjar.
Lögreglunni tókst að stöðva mann-
inn við Skarhólabraut í Mosfehsbæ
en mhdi þykir að engin slys urðu á
fólki.
Maður notaði rörtöng tU að ógna
starfsfólki Hásels á Laugarvatni á
mánudag. Hann gisti fangageymslu
lögreglunnar á Selfossi þá um nótt-
ina því ekki var hægt að yfirheyra
hann um kvöldið sökum vímuefna-
neyslu. Úr ráninu hafði hann á brott
með sér vörur, símakort og lítUræði
af peningum. Eigandi bensínstöðv-
arinnar og dóttir hans óku á eftir
manninum yfir Lyngdalsheiðina og
tókst að yfirbuga hann á Þingvöhum
með aðstoð ökumanns sem kom að.
Lögreglan kom á vettvang skömmu
síðar og handtók manninn.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Stefán Aðalstein Sigmunds-
sön í tveggja ára fangelsi fýrir Skelj-
ungsránið sem var framið í Lækjar-
götu í febrúar 1995. Ránið þótti
gríðarlega vel skipulagt og komst
Stefán ásamt tveimur öðrum undan
með ránsfenginn, sem var um þrjár
mihjónir króna í peningum. Rann-
sókn málsins strandaði og það var
ekki fyrr en á síðasta ári að málið
tók kipp þegar fyrrverandi sambýl-
iskona Stefáns gaf sig fram við lög-
reglu og skýrði frá málavöxtum.
Stefán var einn ákærður í málinu
en annar félaganna framdi sjálfsvíg
eftir að upp komst um málið hjá
lögreglu í fyrra. Ekki liggur fyrir
hver þriðji maðurinn er.
Stefán neitaði sök þegar málið
kom fyrir dóm en hafði áður játað
aðild sína fyrir lögreglu. Var játning
hans afar nákvæm og kemur heim
og saman við skýrslur vitna. Þótti
dómnum óhætt að byggja á þeirri
játningu. Þær viðbárur ákærða að
hann hefði játað af ótta við að lenda
í gæsluvarðhaldi þykja haldlausar
og framganga hans vekur ekki
traust að mati dómsins. Refsing er
metin með hliðsjón að þvl að langt
er um liðið síðan glæpurinn var
framinn. Þá er Stefán dæmdur til að
greiða tæpar sex milljónir th Sjóvár-
Almennra en félagið greiddi Skelj-
ungi bætur vegna ránsins á sínum
tíma.