Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2004, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 21.MAI2004
Sport DV
Barátta Sölva
og Jóhanns
Það verður fróðlegt að
fylgjast með baráttu Sölva
Geirs Ottesen, varnar-
mannsins efnilega hjá Vfk-
ingi, og Jóhanni Þórhalls-
syni, sóknarmanni KA, í leik
liðanna á VíkingsveUi í dag.
Síðast þegar þessir tveir
leikmenn áttust við á Vík-
ingsvellinum í fyrra þá
veitti Jóhann, sem lék þá
með Þór, Sölva olnbogaskot
í andlitið með afleiðingum
að Jóhann fékk að líta rauð-
a spjaldið en Sölvi Geir
skaddaðist illa í andliti sem
gerði það að verkum að
hann missti af þremur síð-
ustu leikjum Víkings. Jó-
hann missti einnig af þrem-
ur síðustu leikjunum þar
sem hann fékk þriggja
leikja bann.
Hverjir eru
meiddir?
Nokkrir leikmanna
Víkings og KA eru að
glímaMð meiðsli þessa
dagana og því geta
þjálfararnir ekki stillt
upp sínu sterkasta liði.
Bjarni Hall, Haraldur
Ómarsson og Jón
Guðbrandsson eru
meiddir hjá Víkingum
en hjá KA er Jóhann
Helgason ristarbrotinn
og Þorvaldur Sveinn
Guðbjömsson er
meiddur á hné og spilar
væntanlega ekki.
GengurGaupi
í Berserki?
Stuðningsmannafélag
Víkings, Berserkir, hittist í
kjallaranum í Víkinni fyrir
leikinn. Guðjón Guðmund-
sson íþróttafréttamaður
mun heiðra Berserki með
nærveru sinni og kveikja í
stemningunni. Hver veit
nema hann skrái sig síðan í
félagið? Berserkjabúningar
verða einnig afhentir og
varningur verður seldur.
Húsið opnar kl. 19.00 og
Gaupi mun ávarpa sam-
komuna kl. 19.30.
Víkin orðin
klár
Það hefúr mikið
gengið á í Víkinni síð-
ustu vikur svo allt verði
klárt fyrir leikinn í kvöld.
Búið er að reisa þak yfir
stúkuna, koma sætum
íyrir að ógleymdri nýrri
og glæsilegri vallar-
klukku svo Berserkirnir
geti talið mörk sinna
manna eða mörkin sem
þeir em að fá á sig.
Skagamenn eru án sigurs í Landsbankadeild karla í knattspyrnu eftir markalaust
jafntefli gegn Grindvíkingum í annarri umferð deildarinnar á Akranesi í gær.
Liðið hefur nú spilað tvo heimaleiki og gert jafntefli í þeim báðum.
Sama vandamál og
Skagamenn virðast eiga við sama vandamál að glíma í fyrstu
tveimur umferðunum nú og þeir áttu í fyrri umferðinni í fyrra,
það er hve illa gengur hjá þeim að skapa sér færi og nýta þau fáu
sem þeir fá. Skagamenn hafa nú gert tvö jafntefli í tveimur fyrstu
leikjum sínum í deildinni, báðum á heimavelli og það er varla
ásættanlegt fyrir lið sem ætlar sér að berjast um titilinn.
Ólafur Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, stillti upp nákvæm-
lega sama liði gegn Grindavík í gær
og því sem gerði jafntefli gegn
Fylldsmönnum á sunnudaginn.
Zeljko Sankovic, þjálfari Grinda-
vfkur, þurfti hins vegar að gera tvær
breytingar á liði sínu frá jafnteflis-
leiknum gegn ÍBV. Slavisa Kaplano-
vic og Eyþór Atli Einarsson voru
meiddir og í stað þeirra komu
Guðmundur Andri Bjarnason og
Ray Anthony Jónsson.
Skagamenn léku undan vindi í
fyrri hálfleik og það er óhætt að segja
að hálfleikurinn hafi verið eign
þeirra. Miðja Skagamanna með
Grétar Rafn Steinsson, Julian Johns-
son og Pálma Haraldsson réð lögum
og lofum á vellinum, pressaði
Grindvíkinga stíft og Skagamenn
unnu boltann oft á hættulegum
stöðum. Þeir fengu fjölmarga mögu-
leika til að koma sér í færi en fyrir-
gjafir leikmanna liðsins, sérstaklega
þeirra Haraldcir Ingólfssonar og
Kára Steins Reynissonar, voru
yfirleitt mjög slakar og enduðu oftar
en ekki á fyrsta manni. Eina færi
Skagamanna í fyrri hálfleik kom á
17. mínútu en þá komst Haraldur
einn í gegnum vörn Grindavíkur
eftir fallega sendingu frá Stefáni
Þórðarsyni en Albert Sævarsson sá
við honum.
Grindvíkingar voru ekki ógnandi
ffarn á við í fyrri hálfleik en það brá
einstaka sinnum fyrir fallegum sam-
leik, sérstaklega þegar þeim tókst að
finna lappirnar á Grétari
Hjartarsyni.
Þá áttu þeir möguleika að toga og
teygja á vörn Skagamanna en
boltinn gekk of hægt kanta á milli og
Skagamenn áttu yfirleitt ekki í
erfiðleikum með að loka svæðum.
í síðari hálfleik var allt annað upp
á teningnum. Grindvíkingar byrjuðu
með látum og Grétar fékk dauðafæri
strax á fyrstu mínútu hálfleiksins.
Grindvíkingar voru mun meira
ógnandi fram á við í síðari hálfleik á
meðan Skagamönnum gekk illa að
finna taktinn. Varnarmennirnir
Guðmundur Andri Bjarnason og
Óðinn Árnason fengu báðir
ákjósanleg færi til að koma
Grindvíkingum yfir en fóru illa með
þau. Það var ekki fyrr en á
lokamínútum leiksins sem Skaga-
menn vöknuðu til h'fsins á ný. Þá
fékk Garðar Gunnlaugsson tvö
dauðfæri en var ekki á skotskónum
frekar en aðrir leikmenn vallarins.
Það hringir ákveðnum aðvörun-
arbjöllum hjá Skagamönnum eftir
tvo fýrstu leikina. Liðið er líkt og fyrri
hluta móts að spila ágætíega úti á
velhnum en þegar kemur að
vítateignum þá virðist sem
sjálfstraust leikmanna hðsins sé
ekkert. Þetta var vandamálið í fyrra
og ástæða þess að liðið var í níunda
sæti deildarinnar eftir tíundu
umferð í fyrra. Ólafur þjálfari kýs að
spila ekki með eiginlegan hægri
kantmann en það er spurning hvort
hann þurfi ekki að draga Ehert Jón
Bjömsson á flot tU að fá meiri ógnun
þeim megin. Kári Steinn er í það
minnsta ekki mjög ógnandi fram á
við þótt hann skUi varnar-
hlutverkinu ágætíega.
Liðið er líkt og fyrri
hluta móts að spila
ágætlega úti á
vellinum en þegar
kemur að vítateign-
um þá virðist sem
sjálfstraust leik-
manna liðsins sé
ekkert.
Grindvíkingar spUuðu mun betur
í þessum leik heldur en gegn
Eyjamönnum um síðustu helgi.
Boltinn gekk betur manna á milli en
það er þó vandamál hversu lengi
sumir miðjumanna liðsins em að
losa sig við boltann. Þegar boltinn
fær að fljóta betur innan hðsins þá
verður það hættulegra og hraði
Grétars Hjartarsonar nýtist betur.
Vörnin var öflug með þá Sinisa Kekic
og Óðin Ámason sem bestu menn
en það var þó áfaU fyrir Grindavik að
Kekic þurfti að fara af veUi eftir
rúmlega klukkutíma leik, meiddur á
ökkla. Það er óskandi fyrir Grindavik
að hann sé ekki alvarlega meiddur
því hann er algjör lykUmaður í
liðinu.
oskar@dv.is
ÍA-GRINDAVÍK 0-0
2. umf. - Akranesvöllur -20. mal
Dómari: Ólafur Ragnarsson (5).
Ahorfendur: 1012. G»ði leiks: 3.
Gul spjöld: lA: Enginn - Grindavík:
Guðmundur Bjarni (37.), Ray Anthony
(50.), Petkovic (68.).
Rauð spjöld: Enginn.
Leikmenn |A:
Þórður Þórðarson 3
Kári Steinn Reynisson 3
Reynir Leósson 4
Gunnlaugur Jónsson 2
Guðjón Sveinsson 3
Julian Johnsson 3
(83., Hjörtur Hjartarson -)
Grétar Rafn Steinsson 3
Pálmi Haraldsson 4
Haraldur Ingólfsson 1
(61., Unnar Valgeirsson 2)
Stefán Þór Þórðarson 4
Alen Marcina 3
(61., Garðar B. Gunnlaugsson j)
Leikmenn Grindavíkur:
Albert Sævarsson 3.
Guðmundur Andri Bjarnason 3
Sinisa Kekic 4
(64., Heiðar Ingi Aðalgeirsson 2)
Óðinn Árnason 4
Gestur Gylfason 3
Ray Anthony Jónsson 3
Eysteinn Hauksson 2
Paul McShane 3
(75., Jóhann Helgi Aðalgelrsson -)
Orri Freyr Óskarsson 2
Grétar Hjartarson 3
Óli Stefán Flóventsson 1
(65., Aleksander Petkovic 2)
Tölfræðin:
Skot (á mark): 16-11 (3-3)
Varin skot: Þórður 3 - Albert 3.
Horn: 11-2 Rangstöður: 9-3
Aukaspyrnur fengnar: 9-16.
BESTUR Á VELLINUM:
Stefán Þór Þórðarson, ÍA
Miðjumenn berjast Bysteirm Húni Hauksson, miðjumaður Grindvikinga, reynir hér að ná boltanum af Skagamanninum Grétari Rafni
Steinssyni. DV-mynd Stefán