Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2004, Side 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 21.MAÍ2004 29
kvenna sem
fylkingar sem
eru fleiri flokk
þeireruaðve
Dansleikhúsið sýnir á
Stóra sviði
Borgarleikhúss:
Fjötra eftir Irmu Gunnarsdótt-
ur. Tónlist: Kjartan Ólafsson.
Break a leg eftir Peter Ander-
son. Tónlist: Peter Anderson.
Hughrif eftir Mariu Gisiadótt-
ur. Tónlist: Atingere/Magnús
Haraldsson og Halldór Björns-
son. Restored Restoration eftir
Jóhann Björgvinsson. Tónlist:
Sofia Gubadulina. Dansarar:
Þórdís Schram, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Ásdís Ingva-
dóttir, Hjördis Lilja Örnólfs-
dóttir, íris María Stefánsdóttir,
Ásta Bærings Bjarnadóttir.
Frumsýning 18. mai2004.
Leikhús
leikhúslíf okkar. Lengi vel framan af
var listdansinn óstudd grein. Það
voru einkafyrirtæki dansara og dans-
höfunda sem stóðu að sýningum.
Tilkoma nýrra flokka á borð við
Dansleikhús með ekka, sem átti
glæsilega sýningu á liðnu ári, og
Dansleikhúsið er því fagnaðarefni.
Samkomur á borð við Reykjavik
Dansfestival er þarft fyrirtæki. Ekki
síst þegar til þess er litið að ÍD, dans-
flokkur ríkis og bæjar, þarf sam-
keppni og á að stuðla að sem mestri
grósku í kringum sig. Og gerir það
fölskvalaust.
Það sýndi sig líka á þriðjudag: Pet-
er Anderson, Jóhann Björgvinsson og
María Gísladóttir eiga rætur sínar
þar. Verk þeirra Peter og Jóhanns
náðu sterkustu heildarhrifum þetta
kvöld; Break a Leg, skemmtilega stór-
slysasaga blönduð eðlilegum spunn-
um texta, þar var á ferð saga með
upphafi, miðju og endi. Verk Jóhanns
var myrkara en var magnað og mark-
að á sviðið með áhrifamiklum hætti.
Hughrif Maríu samið fyrir sólóista
hafði ekki fullljósa heild og af verk-
unum fjórum þótti mér Fjötrar eftir
Irmu Gunnarsdóttur vera full
sundrað í formhugsun.
Tvö af þessum verkum voru við
nýja íslenska tónlist. Þau eru öll sett
upp í tómu rými, lýsing Kára Gísla-
sonar var afar misjöfn og sýnilega
unnin við tímaskort á köflum. Bún-
ingar tóku sem minnst frá dansinum
en í öllum tilvikum má hugsa sér að
þessi flokkur hefði hollt af sambýli
við leikmyndahönnuði: ekki til að
byggja leikmyndir sem ekki einu
sinni ÍD hefur efni á, heldur til að
r f
tir og fris María Stefánsdóttir
: er kraumandi deigla og sem fyrr er
arinnar margþætt skólastarf Fjöida
;ins og fyrirrennarar þeirra láta sér
sti brenna: úr dansskólunum spretta
3 dans og læra. Það sem okkur vantar
'yrir utan Islenska dansflokkinn og
i til. Og okkur vantar áhorfendur."
Borg til Kaupmannahafnar 1928 og
hóf nám á ný í listdansi. í sama tíma
voru tvær ungar stúlkur úr Reykjavík
að sækja sér menntun til útlanda:
önnur í listdansi og hin í leiklist. Báð-
ar í skóla sem byggðu á aldagamalli
klassískri hefð.
Útþrá og heimkoma
Anna settist að í Höfn og átti sér
glæsilegan feril sem leikari á sviði, í
hljóðvarpi og kvikmyndum. Hún tók
að leikstýra er á ferÚ hennar leið og
varð fyrst íslendinga til að leikstýra í
sjónvarpi.
Ásta kom heim og frá henni spratt
stór bogi dansara: Sif Þórz, Helena
Ólafsdóttir, Elly Þorláksson. Beinlínis
fyrir hennar frumkvæði komu fram
dansarar eins og Ruth og Rigmor
Hansson, Hekla og Daisy Jósepsson.
Hér unnu líka erlendar konur við list-
dans, Lis Thoroddsen og Ellen Kid.
Að baki sýningum og dansatrið-
um í fjölda leiksýninga, óperettum
og revíum, voru skólarnir, þar sem
kenndar voru ýmsar greinar danslist-
ar: samkvæmisdansar, plastik, lát-
bragð og listdans.
Og starf þessara kvenna skilaði
áfram til næstu kynslóða drjúgu
dagsverki: Sigríður Ármann er elst
þeirra sem hleyptu heimdraganum á
stríðsárunum og héldu starflnu
áfram: á grunni þess starfs gat Guð-
laugur Rósenkrans komið af stað
Listdansskóla Þjóðleikhússins 1952
undir styrkri stjórn Eric Bidsted og á
þeim grunni reis íslenski dansflokk-
urinn 1973.
Þetta er mikil saga og merk og
verður gaman að sjá íslensku dans-
söguna sem Árni Ibsen er með í
smíðum, svo brýnt verk sem það er,
þar sem ferillinn allur er rakinn.
„En kvöldið var ánægjulegt að öllu leyti, það
var ekki dauður punktur í sýningunni og hér
gat að líta viðbót við verkefnaskrá íslenskra
danshöfunda sem ber að fagna/'
eiga samtal við listamenn sem þekkja
og þróa rými og geta lagt sitt til að
gera heildarhrif dansverka stærri.
Dansarar
Þær ungu konur sem dönsuðu
þetta kvöld eru allar með margra ára
þjálfun að baki. Þær eru flinkar og
styrkar en njóta sýnilega ekki þess
munaðar að vera við stöðugt í þessu
verkefni. Það sést á köflum í samhæf-
ingu og lýsir sér lfka í hreyfingum
sem heimta ítrustu nákvæmni og
togs. En kvöldið var ánægjulegt að
öllu leyti, það var ekki dauður punkt-
ur í sýningunni og hér gat að líta við-
bót við verkefnaskrá íslenskra dans-
höfunda sem ber að fagna.
Þórhildur Þorleifsdóttir kallaði í
greinarkorni fyrir fjölda ára Eldinn
eftir Sigríði Ármann fyrsta íslenska
ballettinn. Hann var fluttur 1950.
Ekki vil ég deila um það. Hann er eitt
upphaf af mörgum í þessari heillandi
sögu gjafmildi og þrautseigju. En eld-
urinn er það element - það forna
frumefni - sem best lýsir þessari
földu stétt íslenskra listamanna: glóð
sem aldrei slokknar og blossar upp
þá minnst varir.
Sýning Dansleikhússins verður
endurtekin 25. maí. Erna Ómars
dansar 22. maí. Fyllum húsin.
Páll Baldviii Baldvinsson
Hvers vegna að tala um liðinn
tíma?
Á þriðjudagskvöld hélt Dansleik-
húsið sína þriðju sýningu og frum-
sýndi ijóra nýja dansa í Borgarleikhús-
inu. Það var rétt hálft hús. Á opnun
Listahátíðar frumsýndi íslenski dans-
flokkurinn verk eftir Katrfnu Hall og á
sunnudag 22. mun Ema Ómarsdóttir
flytja nýtt verk í fyrsta sinn á íslandi. Þá
mun vera í vændum Dansleikhúshátíð
Leikfélags Reykjavíkur og íslenska
Dansflokksins þar sem enn verður
reynt á þanþol formsins og leiklist og
danslist mætast.
íslenskur listdans er kraumandi
deigla og sem fyrr er grundvöllur
greinarinnar margþætt skólastarf
fjölda kvenna sem rétt eins og fyrir-
rennarar þeirra láta sér ekki allt fyrir
brjósti brenna: úr dansskólunum
spretta fylkingar sem æfa dans og
læra. Það sem okkur vantar eru fleiri
flokkar fýrir utan fslenska dansflokk-
inn og þeir eru að verða til. Og okkur
vantar áhorfendur. Það er hlálegt að
á heilu starfsári skuli eini dansflokk-
urinn í landinu sem starfar allt árið
ná til sín álíka mörgum áhorfendum
og sáu Brock-Nielsen hér 1928.
Við erum umkringd dansinum:
kvikmyndir, sjónvarp, skemmtidag-
skrár, auglýsingar, myndbönd: hann
streymir umhverfis okkur enda það
listform sem greiðastan aðgang á að
sálinni: taktu spor og finndu til, opn-
aðu augun og njóttu.
Dansleikhúsið
Það kallar sig nýja vídd í dans- og
í sumar eru 75 ár liðin frá því að
Hljóðfærahús Reykjavíkur fékk
danska listakonu frá Konunglega
danska ballettinum til að koma hing-
að til sýningarhalds. Hún hét
Margrethe Brock-Nielsen og var ein
af sólóistum við þann ballettflokk
Evrópu sem státaði af hvað lengstri
hefð og gat rakið sögu sína aftur á átj-
ándu öld, var og er vagga listdansins
í Evrópu. Sumarið 1928 dvaldi
Margrethe hér í rúman mánuð. Hún
hélt flmm sýningar í Gamla Bíó fyrir
fullu húsi. Bíóið tók þá 600 gesti.
Einnig hélt hún danssýningu fyrir
sjúklinga á Holdsveikraspítalanum í
Lauganesi, ókeypis barnasýningu í
Iðnó og flaug vestur á Isafjörð og hélt
sýningu þar, þaðan á Akureyri og fór
út á Siglufjörð. Á öllum þessum stöð-
um hélt hún sýningar sem vöktu
mikla athygli. Hún kvaddi ísland
með sýningu í Iðnó. Æda má að milli
sex og sjö þúsund gestir hafi séð
hana dansa hér.
Ásta Norðmann
Fyrir komu hennar hafði Ásta
Norðmann rekið dansskóla í Reykja-
vík. Sem barn og unglingur hafði hún
sótt danstíma hjá Stefaníu Guð-
mundsdóttur og Guðrúnu Indriða-
dóttur. Hún hafði farið til Leipzig
með Kristínu systur sinni og mági,
Páli ísólfssyni, og sótt einkatíma í
dansi. Og hún hélt áfram að dansa.
Heimkomin frá Leibzig átján ára
gömul stofnar hún dansskóla 1922 og
heldur sína fýrstu danssýningu í
Iðnö.
En henni þótti ekki nóg lært. Við-
kynning þeirra Brock-Nielsen leiddi
tÚ þess að hún varð samferða Önnu
■M
Dansleikhúsið hélt sína þriðju sýningu og frumsýndi fjóra
nýja dansa í Borgarleikhúsinu á þriðjudagskvöld. Páll Bald-
vin Baldvinsson var á meðal gesta sem fylltu ekki nema hálft
húsið.
Dansleikhúsið
Stjörnuspá
Jón Þorgrímur Stefánsson, knattspyrnu-
maður í FH, er 29 ára í dag. „Maðurinn
leitar án efa að spennu einhvers konar
sem ýtir undirfærni
hans við að takast á
við daglegt amstur.
ætti að huga
að því hvern-
hann getur breytt
umtöluðu
reynslu/spennu í
ávinning," segir í
stjörnuspá hans.
Jón Þorgrímur Stefánsson
VV Mnsbemn (20. jan.-18. febr.)
v\ ------------------------------
Ef fólk fætt undir stjörnu
vatnsberans gefur er það einnig fært
um að taka á móti. Ef þú temur þér að
gefa reglulega í eitthvað sem þú trúir
sannarlega á eykur þú sjálfkrafa ríki-
dæmi þitt. Öryggi og ekki síður hæfni
einkennir líðan þína yfir helgina.
H
FiSkarm (19. febr.-20.nwrs)
Þú ættir ekki að hika við að
undrast og hrífast líkt og barn þegar þér
líður þannig án þess að hugsa hvað aðrir
kunna að halda. Ekki spyrja hvað býr að
baki töfrum líðandi stundar heldúr njóttu
eins og stjörnu fiska er einni lagið.
T
Hrúturinn (21. mars-19. aprll)
Sólin fylgir þér hvert spor og
sér til þess að allt fari vel. (sjálfsörygg-
inu felst þekking þín á þínum eigin
krafti.
b
NaUtÍð (20. aprll-20. mai)
Styrkur þinn er mikill hérna.
Gleymdu erfiðu stundunum og ein-
beittu þér að því jákvæða sem þú upp-
lifir daglega. Þú ættir að einbeita þér að
því jákvæða í kringum þig helgina
framundan og efla eigin líðan með því
að umgangast manneskjur sem gefa til-
finningum þínum gaum.
Tvíburarnirp/ . mal-21.júnl)
Ef þú átt erfitt með að vakna
snemma, er ástæðan vanræksla þegar
þú sjálf(ur) ert annars vegar. Þú ættir
alls ekki að ýta ástvini burt ef þú ert
ekki íjafnvægi þessa dagana.
Kiabbm (22. júni-22.júii)
Leyfðu hjarta þínu að stjórna
huganum. Ef þú átt erfitt með að skipu-
leggja verkefni tengt starfi þínu ættir þú
á næstu dögum að hvíla þig og dreifa
ábyrgðinni sem hvílir á herðum þínum.
Þú ættir að treysta náunganum og hlaða
orkustöðvar þínar þegar þú sefur.
o l]Ón\b (23. júli-22. ógíst)
U Á ________________________________________
Hér kemur fram samhliða
stjörnu Ijónsins að einhver sem er þér
mjög svo kær mun tjá þér tilfinningar
sínar og þú verður reyndar mjög sátt/ur
við ykkar vináttu og samskipti þegar
fram líða stundir. Ánægjan skín úr aug-
um þínum það sem eftir lifir af árinu
svo sannarlega.
Meyjanpj. úgúst-22.sept.)
Hjarta meyju er auðsæranlegt
en þú getur stjórnað tilfinningum þín-
um ef þú kærir þig um.
Q Vogín (23.sept.-23.okt.)
Breytingar bíða þín og framtið
þín tengist velgengni og þægilegu um-
hverfi þegar kemur að fjölskyldulifi og
vellíðan yfirleitt. Jafnvægi einkennir líð-
an vogar helgina framundan. Forðastu
óhóf.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v.)
Þér er ráðlagt að huga mjög
vel að fjárhag þínum í júní og fram í
desember. Þú virðist ávallt fá hjálp í ein-
hverri mynd þegar neyðin er mest.
Hlúðu vel að þeim sem þú unnir og ekki
síður sjálfinu.
/
Bogmaðurinn(22./w.-2/.<fej
Ef þú hefur nýlega upplifað ein-
hvers konar höfnun af hendi skyldmenna
eða vina ættir þú hér og nú að ýta þeim
tilfinningum burt hið fyrsta en þú býrð
yfir eiginleikum sem þú ættir að nota til
að hlúa að eigin tilfinningum.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Þú verður leidd/ur í allan
sannleikann um það hvernig þú ættir
að dansa við framtíðina innan tíðar ef
þú hlustar á undirmeðvitund þína.
3
SPÁMAÐUR.IS