Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 26
UR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
vii. atr. um almanök:
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeirn hinum seka, og gjaldi þar
á ofan { rbd. silfrs fyrir hvert þcirra. Helming sekta-
fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingr gengr til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að cínkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almauak þctta kostar óinnfcst 10 aura, cn innfest 11
aura, allstaðar á íslaudi og í Danmörku; en Gyldendals bo'ka-
veralan í Kaupmannahöfn, sem hetir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest 9 aura, þeim sem
kaupa 05 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að akila aptr óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs
loka 1886; verðr þeim þá borgað andvirði þeirra, som ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir og að syna reikninga bókaverzluninni, efkrafizt verðr.