Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1889, Blaðsíða 54
ÁEBÓK ÍSLANDS 1887.
3.jan. Fórnst 5 skip af Skagastr. með 24 mönnum í ofsa stormi-
12. Bókmenntafjelagsfundur í Kpmh. Hafnað tillögum Eeykjavíkur-
deildarinnar um heimflutningsmálið.
26.2 skiptapar í Bolúngarvík; forust 8 manns.
28. Fyrri ársfundur búnaðarfjelags suðuramtsins; 50 ár liðin frá
stofnun þess.
31. Hrapaði maður til bana í Saurbæ vestra. í þessum mánuði
fórust 2 aðrir menn vestra af slysförum.
2. febr. Varð úti Egill Benediktsson, bóndi úr Haukadal.
7. Bókmenntafjelagsfundur í Reykjavík. Samþykkt að leggja
heimflutningsmálið í gerð.
24. Fórst bátur af Eyrarbakka; 6 menn drukknuðu af 7.
26. Bókmenntafjeiagsfundur í Höfn um heimflutningsmálið.
19. marz. Strandaði frönsk fiskiskúta í Grindavík.
20. Bátur fórst í Varaósi í Rosmhvhr.; 3 menn drukknuðu.
29. Fórust 2 fjögramannaför úr Keflavík; 7 menn drukknuðu.
S. d. Fórst skip af Vatnsleysuströnd; druklmuðu 3 menn af 8.
S. d. Fórst fjögramannafar við Ekv.; 3 menn drukknuðu.
S. d. Fórst bátur frá Eyrarsveit með 5 mönnum.
31. Tók Valtýr Guðmundsson magisterpróf í norrænni málfræði.
15. apríl. Kvaddi konungur til þingsetu: Júlíus amtmann Hav-
steen, Theódór amtmann Jónassen, Lárus yfirdómara Svein-
bjömsson, Árna landfógeta Thorsteinsson, Arnljót prest Ólafs-
son og Jón skólastjóra Hjaltalín.
17.Drukknaði maður í Barðastrandarsýslu.
28. Kviknaði í geymsluhúsi Kristjáns bóksala þorgrímssonar í Rkv,
29. Fórst sexæringur af Miðnesi syðra; 3 menn drukknuðu.
1 þ. m. fórst 4-mannafar af Snæfjallaströnd og drukknuðu 2 menn.
Um suinarmálin kom ákaflegt hret er, gjörði stórskaða á sauðfje.
þ>á rak hafísinn að öllu norðurlandi.
3. maí. Bókmenntafjelagsfundur íEkv.,heimflutningsmálinufrestað.
9. Drukknuðu 4 menn úr Suðursveit.
14. Vorvertíðarlok. Austanfjalls góður afli, að meðaltali 500 í
hlut; við Faxaflóa ágætur afli.
15. Prestaskólakand. Skúli Skúlason vigður til Odda á Rángárvöllum.
17.—20. Stórkostlegt hret aftur á Norður- og Vesturlandi; stór-
tjón á skepnum einkum í Skagaf. og Húnavatnssýslu.
7.-9. júní. Amtsráðsfundur suðuramtsins í Rkv. Amtsráðsmenn:
Skúli prófastur Gíslason og ísleifur prestur Gíslason.
17. Alþíngiskosning fyrir Snæfellsness- og Hnappadalssýslu; kosinn
cand. jur. Páll Briem með 33 atkvæðum.
20.-22. Ámtsráðsfundur vesturamtsins í Bæ í Hrútafirði. Amts-
ráðsm. Sigurður sýslum. Sverrisson og Hjálmur b. Pjetursson.
20. Kvennmaður í Reykjavík drekti sjer.
21. Vorvertíðarlok. Mokfiski við Faxaflóa, að meðaltali 900 í hlut.
Góður afli einnig við ísafjarðardjúp.
23. Brann íbúðarhús í Vestdal.
(ss)