Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1886, Síða 75

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1886, Síða 75
fleytt og flaut á honum. þá kom annar npp víð hliðína á honum °g sagði: «lof mjer á kubbinn«. »Jeg lofaþjer ekkertákubbinn* eagði hinn. »Æi jú, það stendur skrifað, að þú eigin að elska náunga þinn einsog sjálfan þig; lofaðu mjer á kubbinn«. »Já! eþ hvar stendur, að jeg eigi að elska hann meira en sjálfan mig; jeg lofa þjer ekkert á kubbinn*. þannig sjáið þjer ^n^n elskanlegu börn, að þó heilög retning segi oss, að elska náungann eins og sjálfa oss, þá býður hún vergi að vjerelskum flann meira, og getur því svo farið á stundum, að vjer verðum elska hann minna en oss sjálfa þegar í nauðirnar rekur. DÆMISAGA eptir Benjamín Franklín. Einusinni var gamall maður sem hjet Jakob. Hann varð alt í einu fárveikur. Presturinn hans gerði sjer ferð til hans og tjeði honum til að ráðstafa búi sínu og gera upp reikninginn við guð og samviskuna, svo hann færi vel ef hann sálaðist. »Jeg er Dú ekkert hræddur hvað það snertir«, sagði Jakob, »því það bar fyrir mig vitrun í nótt, svo jeg get dáið rólegur*. »Hvernig var hún?« spurði presturinn. »Jeg þóttist vera staddur við dyrnar á Himna- riki. þar var múgur og marg menci og vildu allir inn. Sánkti Pjetur spurði hvern fyrir sig hverrar trúar hann væri. Sumir sögðust vera rómversk-katólskir. »Jæja« sagði Sankti - Pjetur, •Kondu’ inn og fáðu þjer sæti hjá páfatrúar mönnum. Sumir sögðust vera reformertir (endurbættrar trúar). »Gott« sagði Pjetur •Parðu þarna til trúarbræðra þinna«. Loksins spurði hann mig hverrar trúar jeg væri. Æ, því miður trúi jeg ekki á annað en náttúrulögmálið og mannkærleikann, svaraði jeg. Sankti-Pjetur hugsaði sig um stundarkorn og sagði svo: »Kondu’ inn líka. Þú getur valið þjer sæti, þar sem þjer þóknaat«. VÍNDRYKKJA. Af öllum löndum í Evrópu er minnst brennivín drukkið í Noregi; það er löggjöflnni að þakka og háum tolli. Snemma í þessari öld voru drukknir þar 20 pottar af brennivíni á mann, á ári, 1851 7 pottar, og nú tæpir 4. Árið 1851 voru í Noregi 248 afbrotamenn af hveijum 100,000 manna, nú 180. í Belgíu voru árið 1840 drukknir 8 ptt. á mann, nú 12 pottar. þá voru þar 269 afbrotamenn af hverjum 100,000, nú 648. Af 100,000 manna í Noregi eru, nú 3,300 sem þyggja af sveit 83 sinnisveikir, 7 sjálfsmorð. I Belgíu 14,000 þurfameun, 150 sinnisveikir og tíu sjálfsmorð. Hvervetna koma fram sláandi dærai þess, að ofdrykkjan er vissasti leiðtogi til fátæktar og volæðis, andlegrar og líkam- legrar eyðileggingar. (ti)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.