Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1907, Qupperneq 49
jans IX., enda má ýkjulaust svo aö orði kveða, að
aldrei hafi neinn konungur reynst oss íslendingum
^etur en hann. Að rikisstjórnarár Kristjáns IX. urðu
það framfaratímabil í sögu þjóðar vorrar, sem þau
hafa orðið, er ekki minst því að þakka, hve ant
hann, öllum konungum vorum fremur, lét sér um
allan vorn hag. Oss hefði áreiðanlega ekki skilað á-
frani líkt því, sem nú gefur raun vilni, ef konungur
hefði ekki jafn ríflega uþpfylt óskir vorar um sjálfs-
Jorræði sem hann gjörði. En það sem vafalaust
hefir gjört Kristján IX. ástsælastan hér á landi, er
'oma hans hingað til landsins »með frelsisskrá í föð-
hrhendi(( á þjóðhátíð vorri 1874, til þess að taka þátt
1 fögnuði vorum. öll framkoma hans hér við alla
*ern nálægt honum komu, mun lengi í minnum liöfð.
-Juftnenska hans og yfiriætisleysi ávann honum þá,
ef til vill meira en nokkuð annað, ást og virðingu
hfft’a landsmanna. Pað voru ekki lóm fagurmæli, er Hil-
h131' heit. Finsen landshöfðingi mælti til konungs að
slúlnaði, að hann hefði »komið og séð og sigrað hjörtu
s endinga«. Áður en konungur fór úr landi gaf hann
uudinu 4000 rikisdali í minningu þjóðhátíðarinnar
°§ komu sinnar, og mælti hann svo fyrir, að vöxtun-
hhi skyldi verja til eflingar atvinnuvegum landsins.
n Það var hvorki í einasta né seinasta skifti er land
Y01’1 fékk að njóta rausnar og gjafmildi konungs.
egar mótlætis- og mæðusögur bárust konungi til
rna héðan að heiman, t. a. m. í harðærinu mikla
1882 og eftir landskjálftana 1890, gekst konungur fyrir
Því að samskotanefndir mynduðust í Danmörkuoggaf
sJálfur og all hans skvldulið stórfé til samskotanna.
Nafn Kristjáns konúngs níunda mun verða ógleym-
anlegt í sögu lands vors, og þjóð vor jafnan geyma
Það í þakklátri endurminning sem nafn eins liins
ezta og umhyggjusamasta stjórnara síns.
Jón Helgason.
(37)
)