Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1907, Blaðsíða 54
verða leit á betri syni og ræktarsamari. Ekkert var
fjær honum en pað að gleyma ræktarskyldunum við
foður sinn.
Sumariö 1869, 28. júií kvæntist Friðrik krónprins
Lovísu Jósefínu Eugeniu, einkadóttur peirra Karls
XV. Svíakonungs og drotningar hans. Ilöfðu pau
kynst nokkrum árum áður, sumarið 1865, er krón-
prinsinn heimsótti foreldra hennar í Stokkhólmi.
»Litla sessan« — en svo nefndu Svíar hina lýðkæru
konungsdóttur — var pá ekki fullra 14 vetra og ó-
fermd; segja sumir, að ástir haíi tekist með peim
konungabörnum við pað tækifæri; en hvort sem satt
er eða ekki, pá var trúlofun peirra ekki birt almenn-
ing'i fyr en 15. júlí 1868, og var pví fagnað mikillega
um öll Norðurlönd, ekki sízt í Danmörku. Síðan á
miðöldum haföi enginn danskur konungsson fest sér
norræna brúði, og par sem hún bæði var dóttir hins
tígulega Karls XV., sem Danir höfðu miklar mætur á,
og óskabarn og augasteinn hinnar sænsku pjóðar,
póttust menn fullvissir um, að hinn danski ríkisarfi
hefði par reynst vitur í vali, sem »litla sessan« var.
Dað var pví ekkert til sparað að gjöra viðtökurnar
sem viðhafnarmestar og mikilfenglegastar, er pau
hjón héldu innför sína í Kaupmannahöfn hálfum
mánuði eítir brúðkaup peirra, 10. ágúst 1869. Dær
vonir, sem danska pjóðin gjörði sér pá um hina
sænsku konungsdóttur, hafa pá iíka fyllilega ræzt.
Hún hefir alla pá kosti og kvenlegar dj^gðir til að
bera, sem prýtt geta góða og sannkristna eiginkonu
og móður, enda hefir hún frá fyrstu notið fullkom-
innar elsku og virðing'ar hinnar dönsku pjóðar.
Manni sínum hefir hún verið hin ástúðlegasta eigin-
konaog 8 börnum peirra hin ástríkasta móðir. Sjálf
liafði hún fengið bezta uppeldi í heimahúsum, undir
ástrikri umsjón einkar guðhræddrar og góðrar móð-
ur, er snemma tókst að innræta henni ást til alls,
sem gott er og satt og fagurt, og um fram alt inni-
(42)