Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2004, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2004, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST2004 Helgarblað DV ÉÉÉÉÍI SKÉðH la Lífið er fullt af sögum, sem betur fer, ekki bara fréttum. Sum atvik verða okkar minnisstæðari en önnur. Til dæmis eru fyrstu fundir hjóna og sam býlinga þess eðlis að þeir gleymast seint. DV fór á stúfana og fékk að heyra nokkrar eftirminnilegar slikar sögur. Hún missti öll nótnablöfiin á gólfifi Magnús Þór Gylfason nemur viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. „En einu sinni var ég í Hamrahlíðarkórnum. Ég man vel eftir æfmgunni þegar Elva Dögg Melsteð bættist í hópinn. Og nokkrum æfingum síðar settist ég hjá henni í pásu og bauð henni út að borða. Elvu varð svo ofboðslega mikið um að hún missti allar kór- nótumar á gólfið. Enhún sagðijávið matarboðinu og við snæddum saman á Café Óp- eru í Lækjargöt- unni. Síðan höf- við verið Var sem eldingu loslin í Austurslræti Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona segist nokkrum sinnum hafa séð manni bregða fyrir á götum borgarinnar fyrir bráðum 30 árum. „En svo var ég á göngu eftir Austurstræti og mætti honum, þá var sem ég yrði eldingu lostin. Eftir nokkr- ar rannsóknir fann ég út hvar drengur þessi bjó, að hann var í tónlistamámi og heitir Þorkell Jóelsson. Og bara hringdi í hann, það var ekkert flóknara en það. Ég bauð honum aö hitta mig á ákveðnum stað á ákveðnum tíma, í Þjóöleikhús- kjallaranum að kvöldlagi. Það fór ákaflega vel á með okkur á þessum fyrsta fúndi og ég vissi strax að þetta var minn maður, enda ævinlega fljót aö henda mér út í hlutina. Hann er rólegri í tíðinni, mér fannst hann lengi að ákveða sig, svona miðað við mig. Ég meina, ég vildi helst að hann tjáði mér ást sína strax daginn eftír en það tók einhveija daga og við rugluðum saman reitum okkar. Síðan em þrjú böm og næstum þrír áratugir. Við erum heppin að því leytí að vinna okkar og áhugamál em að mestu svipuð, honum finnst þó nauösynlegra en mér að fara í útreiðartúra, veiðiferðir og jeppast upp á jöklum. Þá hringa ég mig frekar í sófanum meö góða bók,“ segir Sigrún Hjáhntýsdóttir söngkona. um vio verio saman og eigum tvö börn en við syngjum ekki lengur saman, höldum þó sam- bandi við gamla kórfélaga. Við höfum svipuð áhugamá! en það sem skilur í milli notum við til að bæta hvort annað upp,“ segir Magnús Þór Gylfason viðskiptafræði- nemi. Þorkell, Diddú og yngsta dóttirin Mel korka „Ég vissistrax að þetta var minn maður, hann var held- urlenguraðáttasig." Kristjan og Sirrý „Ég fékk i hnén og vissi strax að þetta var Maðurinn." Magnús Þór, Elva Dögg og dóttirin Matthildur „Bauð henni út að borða á Café Óperu og síðan höf- um viö verið saman." Gekk að okunnni konu og kyssti hana Kristján Franklín Magnús var einn íjölmargra að sækja Grafík- ball í Félagsstofnun stúdenta fyrir tuttugu árum. „Þar sá ég glæsi- lega unga konu, gekk að henni og kyssti hana,“ segir Kristján. Sigriöi Amardóttur sjónvarpskonu var óskaplega bmgðið. „Ég var 19 ára og hann sex árum eldri, en ég man alltaf hvað ég fékk í hnén, ég vissi strax að þetta var Maðurinn. En ég bara forðaði mér og við hittumst ekki aftur fyrr en viku seinna. Á balli á Hót- el Borg gengum við bara hvort að öðm, síðan em sem sagt tveir áratugir og tveir synir," segir Sigríð- ur. Þau hjónin segjast bæði eiga sameiginleg áhugamál og sitt hvor. „Ég er meira íyrir fót- boltann, að stunda og horfa á hann. Hún hef- ur ekki mjög gaman af honum en er mikil göngukona. Og ég skrepp stundum í veiðitúra, saman njót- um við svo ferða út í náttúruna heima og erlendis. Við höfum lagt vinnu í okkar hjónaband og upp- skorið hamingu og ánægju fyrir vikið," segir Kristján Frank- Iín Magnús leikari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.