Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2004, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST2004
Helgarblaö DV
„Aðfluttur Reykvíkingur í Borgarnesi hefði sjálfsagt haldið sig í Borgar-
firðinum, ef reykvískur vinur hans hefði ekki platað hann til að þreyta inn-
tökupróf í Leiklistarkóla Island," segir Ingvar E. Sigurðsson leikari. „Skól-
inn var þá til húsa I þessum gamla barnaskóla og þar fóru inntökuprófin
fram. Ég mætti I prófin og hafði lært utan að og æft eintal úr Galdra-Lofti
Jóhanns Sigurjónssonar. Nefndarmeðlimir báru saman bækur sínar og ég
var einn þeirra 16 sem komust inn I seinni hluta inntökuprófsins, átta
„ þeirra máttu eiga von á að komast í
Örlaqastaðurinn Skólann. I' tvær vikur fylgdist nefndin
með okkur leysa ýmis verk; syngja,
dansa, leika, spinna og lesa. Nokkru síöar var mér tilkynnt bréflega að ég
hefði uppfyllt inntökuskilyrði nefndarinnar og gæti hafið nám við Leiklist-
arskóla Islands I Miðbæjarskólanum á hausti komanda. Annars hefði ég
sjálfsagt leitað á önnur mið, orðið prestur eða bara eitthvað allt annað.
Þess vegna er gamli Miðbæjarskólinn örlagastaður minn og þá ekki síður
vegna þess að í Leiklistarskólanum lágu leiðir mínar og konu minnar,
Eddu Arnljótsdóttur, saman. Ég á leið framhjá Miðbæjarskólanum nánast
á hverjum degi, en þá hugsa ég sjaldnast um hann sem örlagastaðinn. Ég
hugsa oftast hvað jrað sé mikil synd að hann skuli ekki vera bamaskóli
lengur," segir Ingvar E. Sigurðsson leikari.
• Aí-ÍjLM..
æp® m
■ ■ •
..... ...
I
—p.. i
3 j u
in i i Tl
1 H
iw 1
Yndislegur dagur sem gleymist aldrei
Liðstjórinn Guömundur
Reynir Jónsson hefur veriö
lengi I þessum bransa. Hann
var fyrst i KR en flutti sig svo
yfir I landsliöiö.
Ég hafði byrjað undirbún-
inginn fyrir viku. Maður er
smátt og smátt að skjótast
í þetta og gera klárt fyrir
leikinn. A miðvikudags-
morguninn fór ég inn í
Knattspyrnusamband íslands
og gerði allt tilbúið. Ég stillti
öllu draslinu, skónum og bún-
ingunum upp og var vel á
veg kominn um hádegi.
Þá fór ég á hótelið og
hitti strákana í hádegis-
mat. Stemmingin í
hópnum var afar góð
eins og hún er alltaf hjá
þessum drengjum. Um
klukkan þrjú fór ég svo
með allt dótið niður á
völlinn og lagði þar
síðustu hönd á allt fyr-
ir leikinn. Ég varð að
blanda nóg af orku-
drykkjum svo þeir væru
tilbúnir þegar strákarnir
kæmu um hálfsex.
Guðmundur Reynir Jóns-
son, liðstjóri fslenska lands-
liðsins f knattspyrnu lýsir
deginum þegar ísland sigr-
aði (talfu f fótbolta
Þegar strák-
arnir mættu lét
ég þá hafa bún-
ingana sína og
við athuguðum
hvort það væri
ekki allt örugg-
lega í lagi. Ef þá
vantaði takka í
skóna þá reddaði
ég því og öðru
sem upp kom.
Því næst fóru
strákarnir að hita
upp fyrir leikinn. Ég fór út á völlinn
með þeim, tilbúinn með vatnið og orkudrykkina
þegar þeir báðu um. Eftir æfinguna fórum við
inn í klefa þar sem þeir fengu réttu treyjuna til að
spila í.
Svo byrjaði leikurinn sem var alveg stórkost-
legur.
í hálfleik þegar strákarnir komu inn í klefann
var stemmingin frábær enda voru þeir búnir að
standa sig mjög vel. Ég lét þá sem vildu fá nýja og
hreina treyju enda er ég alltaf með tvær treyjur á
mann í hverjum leik. Það var alveg virkilega
gaman í klefanum á þessum tíma. Eftir leikinn
var stemmingin ekki síðri. Þetta var búin að vera
dálítil törn sem gleymist fljótt þegar vel gengur.
Við skemmtun okkur mjög vel og ég á eftir að lifa
á þessu kvöldi það sem eftir er og er ánægður að
hafa fengið að taka þátt I þessu. Ég er búinn að
ísland - Ítalía „/hdlfleik
þegar strákarnir komu inn í
klefann var stemmingin
frábær enda voru þeir bún-
ir að standa sig mjög vel."
vera í þessu lengi
en hef aldrei vitað
2-0 „Ég ætlaöi aldrei aöná
mér niöur þegar ég kom heim
um klukkan hálfellefu og mætti
því meira og minna ósofmn I
vinnuna daginn eftir."
annað eins. Ég var í langan tíma í KR en fór með
Guðjóni Þórðarsyni árið 1996 yfir í landsliðið og
hef verið þar síðan. Ég var svo stoltur enda var
þetta alveg meiriháttar. Ég ætíaði aldrei að ná
mér niður þegar ég kom heim um klukkan
hálfellefu og mættí því meira og minna ósofinn I
vinnuna daginn eftir. En það fylgir þessu. Þetta
var yndislegur dagur og ég er mjög ánægður með
hvernig staðið var að þessu öllu saman. Eftir
leikinn var Birkir með afmælisteiti á Hverfis-
barnum. Ég ákvað að drífa mig heim í staðinn
enda varð ég að fara að vinna klukkan fimm
morguninn eftir. Þessi upplifun var alveg
ógleymanleg og dagurinn frábær eins og hann
lagði sig.