Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2004, Qupperneq 47
UV Síðast en ekki sist
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST2004 47
Guð, menn og Mammon
Pólitík og peningar spila stóra
rullu í samfélagi manna, ekki síst
guðhræddra manna. Þannig hefur
það víst alltaf verið. Peningar eru afl
þeirra hluta sem trúin ætlar sér og
trúarhitinn kyndir undir valda-
græðgi og umvöndunarsemi hinna
trúræknu. Bankinn í Vatikaninu er
hornsteinn kaþólskrar trúar og hin
ýmsu trúarsamfélög í Bandaríkjun-
um og víðar eru fyrst og fremst í
bisniss. Trúfastir músh'mar drepa sig
og aðra af pólitískum ástæðum. Trú-
in flytur ekki bara fjöll heldur er hún
helsta uppspretta blóðflaums ver-
aldarsögunnar. Kirkjukrytur er al-
þekkt fyrirbæri á íslandi. í gegnum
tíðina hefur hvergi verið meiri óffið-
ur í annars friðsömu íslensku samfé-
lagi en einmitt í kringum kirkjur,
presta og kirkjusöfnuði.
Frelsaðir repúblikanar gegn
kynvillu
Trúræknir kristnir Bandaríkja-
menn mynda harðasta
hægri kjarnann í
Repúblikana-
flokknum.
Þar fer hinn
frelsaði for-
seti,
George
Bush,
fremstur í
flokki. Hinir
trúföstu
hafa það
helst á
stefnuskrá
sinni að
banna án und-
antekninga fóst-
ureyðingar og
uppræta sam-
kynhneigð,
Glúmur Bladvinsson
skrifar um trú
og peninga.
Kjallari
telja til kyn- og trúvillu og bera vitni
um úrkynjun. Aukinheldur eru hinir
ofsatrúuðu íhaldssamir þegar kem-
ur að jafnrétti kynjanna og frjálsum
ástum. Hinir trúheitu hægrimenn
telja sig þurfa að hafa vit fyrir öllum
hinum villuráfandi sauðunum. Þetta
guðshrædda kirkjurækna fólk telur
sig beintengt við guð og gefur út boð
og bönn í guðs nafni. Umburðar-
Iyndi er eitthvað sem orðaforði
þessa fólks nær ekki að fanga.
í ísrael er svipað uppi á hinum
trúarlega teningi. Bókstafstrúar-
menn og öfgasinnar ráða lögum og
lofum í Lflcúdbandalaginu, hægri
flokki Gyðinga, sem nú fer með
völdin í landinu helga. Kjarninn í
Lflcúdbandalaginu hefur staðið í
vegi fyrir friðarumleitunum ísraela
við arabíska nágranna sína. Bók-
stafstrúarmennirnir eru herskáir og
ofstækisfullir og vilja traðka ná-
granna sína í svaðið (en eru sjálfir
undanþegnir herskyldu). Það fer lít-
ið fyrir nágrannakærleik og um-
burðarlyndi hjá hinum guðsútvöldu.
Þannig hefur þeim tekist að eyði-
leggja málstað Gyðinga í augum
heimsbyggðarinnar.
Kratinn Kristur?
Kristni boðar náungakærleik og
umburðarlyndi gagnvart bræðrum
og systrum. Þess vegna skýtur það
skökku við að þeir sem telja sig næst
guði, eins og hægrisamkunda
Repúblikana, skuli þekkja hvorugt.
Þvert á móti virðast hinir trúræknu
ofstopafyllri og umvöndunarsamari
en þeir sem kenna sig við frjálslyndi
á vinstri væng stjórnmálanna sem
ekki flagga trú sinni í sama mæli.
Ég las það í Fréttablaðinu nýverið
að Jesús Kristur hefði verið fyrsti
demókratinn. „Hafi einhvem tíma
verið til vinstrimaður sem hugsaði
með hjartanu var það Jesús Kristur,"
segir James C. Moore á ráðstefnu
miðju- og vinstrisinnaðra kristinna
manna. Eg er ekki frá því að Moore
hafi hitt naglann á höfuðið. Alla vega
er ég viss um að ef Jesús sneri aftur,
eins og margir hinna heittrúðu spá,
gengi hann ekki í Repúblikanaflokk-
inn eða Líkúdbandalagið.
Upphæðir og guð á Ómega
Eg er einnig klár á að Jesús Krist-
ur sneri ekki aftur til jarðrflds í þeim
tilgangi að safha peningum í sjón-
varpsstúdíói í nafni Guðs föður. Að
vísu hafa tímarnir breyst töluvert frá
því Jesús var hér síðast en slflct væri
algjörlega útúr karakter hafi ég lesið
Nýja testamentið og Dauðahafs-
handritin rétt. Mig minnir að hann
hafi boðað nægju- og hófsemi. Samt
er það svo að aðdáendur og skjól-
stæðingar Krists á Ómega virðast
hafa Jesú og peninga á heilanum. í
Guðs nafni og halelúja.
Eitt kvöldið staðnæmdist ég í
sta sinn við sjónvarpsefiii á
mega þegar allt um þraut á hinum
stöðvunum. Þar sat umsjónarmaður
að spjaili við ungan mann sem rakti
það hvernig hann hefði frelsast.
Saga unga mannsins var hjarmæm
svo mjög að ég lagði við hlustir í dá-
góða stund. Sem unglingur gekk
hann villur vegar í niðurbældri reiði
og sorg. En svo hitti hann Guð og
Guð vísaði honum á rétta braut.
Uppfrá því frelsaðist ungi maðurinn
og hefur síðan fylgt Guði í einu og
öllu. Gestgjafinn greip inní aðra
hverja setningu unga mannsins til
að árétta „dýrð sé Guði“. Síðan
minntust þeir æ og sí á kraftaverk,
bænaranda, nærveru guðs þarna í
fyri
On
Konu steypt af stóli fyrir konu
Svarthöfði er nokkuð ringlaður
þessa dagana vegna umræðu um
konuna sem var steypt af ráðherra-
stóli. Framsóknarkonur eru band-
brjálaðar af því að Siv Friðleifsdóttir
hættir sem umhverfisráðherra þeg-
ar sjálfstæðismaður bætist við í rflc-
isstjórn. Þær eru illar því að konum
á ekki að fækka í rfldsstjórn. Það
skrítna er að sjálfstæðismaðurinn
sem verður umhverfisráðherra heit-
ir Sigríður Anna Þórðardóttir og er
lflca kona, alveg eins og Siv. Kannski
heimurinn sé orðinn of flókinn á
tímum kynskiptiaðgerða, Hinsegin
daga og metrósexúalisma. Kannski
er Siv bara meiri kona en Sigríður.
Svarthöfði hlýtur að velta fyrir sér af
hverju framsóknarkonur heimti
ekki konu sem forstætisráðherra.
&
Svarthöfði
Ingibjörg Sólrún er til í tuskið.
Annars hefur Svarthöfða alltaf
þótt Jón Kristjánsson vera 67 pró-
sent karlmaður og Geir H. Haarde 73
prósent. En þar sem Guðni Ágústs-
son er rúmlega 160 prósent karl-
maður fellur allt að jöfnu.
Svarthöfði sá í sjónvarpsfréttun-
um í fyrrakvöld að þriðjungur allra
bfla sem eru fluttir inn eru jeppar.
Var einhver að spá snjókomu?
Svarthöfði varð agndofa þegar
hann heyrði í fréttunum í sjónvarp-
inu um daginn konu á besta aldri
segja það afar ánægjulegt að karl-
menn færu í andlitslyftingu. Nú er
Svarthöfði með krumpað andlit,
enda sýnir hann á sér hundrað svip-
brigði dag hvern. Það var svona eins
og konan hefði sagt beint framan í
andlitið á honum að hann væri ekki
nógu góður.
Undanfarið hefir Svarthöfði gælt
við metrósexúalismann. Hann hefir
fjárfest í fyrirtaks kremi sem ku
yngja upp húðina. Þá á hann að baki
fleiri legutíma í sólbaðinu heldur en
fyrir framan sófann, sem er eins-
dæmi. Auk þess hefur hann lyft lóð-
um „og svitnað vel“, eins og líkams-
ræktarforingi hans segir í body-
pumpinu. Samfara þessu hefir
Svarthöfði hafið notkun svitalykt-
areyðis.
Á sokkabandsárum Svarthöfða
„Mér brá hins vegar í
brún þegar ungi mað-
urinn var trufíaður í
miðri frásögn affrels-
un sinni við það að
umsjónarmaðurinn
reiddi fram stórt um-
slag og sagði að nú
hefðu þeim borist
heilar þrjú hundruð
þúsund krónur vegna
frammistöðu unga
mannsins en sérílagi
fyrir tilstilli og nær-
veru guðs í stúdíói."
stúdíóinu, samfélag við guð, brauð
lífsins, landið helga, undurtákn og
lflctu útsendingu úr gervihnetti við
endurkomu Krists. Allt gott og bless-
að.
Mér brá hins vegar í brún þegar
ungi maðurinn var truflaður í miðri
frásögn af frelsun sinni við það að
umsjónarmaðurinn reiddi fram
stórt umslag og sagði að nú hefðu
þeim borist heilar þrjú hundruð
þúsund krónur vegna frammistöðu
unga mannsins en sér í lagi fyrir til-
stilli og nærveru guðs í stúdíói. Þeir
voru sammála um að þetta væri
sannkölluð himnasending. Halelúja.
Þeir voru sumsé að safna peningum.
Síðan héldu þeir áfram að nefna
Guð og Jesú til skiptis en þess á milli
áréttaði umsjónarmaðurinn fyrir
áhorfendum bankareikningsnúmer
sem ég gat ekki betur skilið en að til-
heyrði Guði og Jesú þótt í umboði
Ómega væri - 0113 26 4750 og
kennitala guðs 630890-1019. Dýrð sé
drottni í upphæðum, himinháum
upphæðum. Halelúja.
tíðkaðist ekki að púla til þess eins að
púla, heldur var unnið þegar það
þurfti. En nú er Svarthöfði orðinn
eins og ræktunarstöð vöðva. Honum
líður svolítið eins og verðandi Big
Mac. En þvert á móti veit hann að
nú verður hann augnakonfekt eins
og hann vildi.
Flytja úr Yrsufelli
Mæöginin Kristín Guðríður
Hjaltadóttir ogAntonio Passero
hófu í gær flutning á fötum sín-
um og föggum úr Yrsufelli 7 og í
bifreið þar fyrir utan. Þau hafa
kvartað undan nágrönnum sín-
um og sakað þá um eitt og annað
misjafnt, en nágrannamir segja
allt með ró og spekt. Þau hafa
búið f Yrsufellinu án húsgagna,
en notast við dýnur. Antonio
neitar því að hafa áreitt nágranna
sína, en nokkrir nágrannar segjast
bera beyg í bijósti eftír viðskipti
sín við hann. „Ég er staddur niöri
á Hlemmi og við erum komin
niöur í bæ klukkan átta á morgn-
ana. Ég hef sannanir fyrir því hvar
ég er á daginn."
Grashöll á Selfoss
Áform eru uppi um að reisa á
Selfossi höll með gervigrasvelli.
Fyrirtækið Sport-Tæki ehf. hefur
óskað eftir viöræðum við sveitar-
félagiö Árborg um samstarf með
byggingu á „innanhús-gervigras-
velli" Bæjarráð hefur falið forseta
bæjarstjómar, formanni fþrótta-
og tómstundanefndar og Einari
Njálssyni bæjarstjóra að ræða við
Sport-Tækni um málið.
Verkfall í nánd
„Við ædum að setjast niður
strax eftír helgi," sagði Eiríkur
Jónsson, formaöur Kennarasam-
bandsins, skömmu eftír að sátta-
fundi með rfldssáttasemjara lauk í
gær. „Þaö em fjórar vikur til
stefiiu fyrir verkfall og við mun-
um halda áfram umræðum í
næstu viku.“ Eiríkur sagði að fyrst
yrði rætt um vinnutfmann, svo
um kennsluskylduna og að lokum
yröi farið í launamálin. „Maður er
hæfilega bjartsýnn," sagði Eiríkur,
„alla vega ekld svartsýnn."
ArtAtfr/c
WÍIIESMCH., . §f
^ *<is
y»&nlucas
.-cuL-ruo&f, 6*. J£ vL|_
„ ý vii________•> -
PU**LL DAS’/tTk | 0P
GjHárið-
J árita og sprella á
f Hard Rock cafe
*■' laugard. og sunnud. kl. 16:00
SÍ9SS
.