Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1928, Side 87
þetta verið prófað enn, svo að eg viti. í Ítalíu fæst efnið
bór úr hverum, og er á pví byggður stórfenglegur
iðnaður. Ekki heflr bór fundizt við islenzka hvera,
en langt er frá því, að þetta hafi verið rannsakað
til hlítar. Lofttegundin helíum er bæði mjög létt
i i sér og algerlega óeldfim;, hún.hefir þess vegna hin
) síðari árin verið mikið notuð til að fylla belginn í
loftförum. En lofttegund þessi er mjög torgæt og
þess vegna í háu verði. Mest af henni kemur upp úr
einstökum lindum, og þess vegna hafa menn sum-
staðar, t. d. í Kanada, gert út vísindaleiðangra til að
leita að lindum, sem gefi af sér helíum til muna.
í því hveralofti, sem eg hefi prófað hér, hefi eg ávalt
fundið ögn af helíum, en hvergi líklega svo mikið,
að tilvinnandi sé að reisa á því helíumiðnað. En
meiri hluti hvera er enn órannsakaður að þessu
leyti, og geta þvi verið hér hverar, sem séu svo auðugir
1 af helíumlofti, að það svari kostnaði að vinna það.
Fyrir nokkrum árum byrjaði ítalskur maður, sena-
tor G. Conti, að nota hverahitann til aflframleiðslu.
Lét hann bora niður þar sem hverar voru, og eru
holurnar 60 til 200 m djúpar. Með því að bora svona
djúpt, nær hann í meira hita, Vatnsgufurnar, sem
streyma upp, hafa svo mikinn kraft, að þær geta
snúið iðuvél (túrbínu), og fær hann með þessu lagi
mjög mikla orku úr hverunum. í ítölsku hverunum
er miklu minna vatn en í flestum islenzku hverun-
um, og því auðveldara að ná orkunni á þenna
hátt úr ítölsku hverunum, þar eð vatnið annars
hamlar því, að gufan njóti sín sem aílgjafi. Liklega
mætti þó nota þessa ítölsku aðferð hér við marga
hvera, þar sem þörf er á orku. Enn þá vantar þó
reynslu, svo að hægt sé að dæma um, hvort ódýrara
verði að nota hveraorku eða orkuna í vatnsföllum.
Nokkurt vandhæfi er á því að fá vatnsorkuna
trygga að vetrinum í misjöfnu veðri, því að vatns-
rásinni hættir við að fyllast af krapa og grunnstingli.
(83)