Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2004, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 6. NOVEMBER 2004
Helgarblað DV
Það er ljóst þegar þetta er skrifað
að Kerry hefur tapað slagnum um
forsetaembættið hér í Bandaríkjun-
um. Heimurinn er líklega jafn
undrandi og við hér, en eitthvað
mjög svo undarlegt virðist eiga sér
stað í þessu ágæta landi sem telur
sig ofar öllum öðrum hvað varðar
frelsi og lífsgæði.
Það var sjónhverfingum líkast að
fylgjast með sjónvarps-„fréttum" í
gær, þegar allar tölur litu mjög vel
út fyrir Kerry og við heyrðum frá
fréttamanni í Hvíta húsinu að for-
setinn og heili hans, Karl Rove,
röltu um áhyggjufullir í svítu vest-
urvængs og létu lítið hafa eftir sér.
Nokkrum tímum síðar, að sögn
blaðamanns, fengu þeir kappar
hringingu frá Ohio sem gladdi þá
mjög, þrátt fyrir að tölur sýndu
enga breytingu til hins betra fyir
Bush. Hvað var þar í gangi? Og af
hverju vissi Dick Cheney upp á hár
hver útkoman yrði fyrir ícosning-
arnar, bæði í Flórída og í Ohio?
Kosið gegn eigin hagsmunum
Kerry vildi ekki bíða eftir að allir
kjörseðlar yrðu taldir í Ohio eða í
öðrum fyikjum sem tæpt var á milli
og endurtaka þar með ósköpin í
Flórída fyrir fjórum árum. Margir
kjósendur kunna honum litlar
þakkir fyrir að taka ekki meira mark
á kjörseðlum þeirra, en nú mun
aragrúi fólks sem náði ekki að kjósa
vegna tölvubilana, visvitandi tafa
og lokaðra kjörstaða m.m., fylkja
liði og taka mái sín fyrir dómstóla.
Umræðan um lýðræðisleg vinnu-
brögð eða skort á þeim víðs vegar á
kjörstöðum var hvergi á dagskrá í
stóru fjölmiðlunum í gær né í
morgun, en skorti svo sannarlega
ekki á sjálfstæðum öldum ljós-
vakans þar sem raddir kjósenda og
fréttagagnrýni fá að tjá sig án rit-
skoðunar.
Þótt Bush hafi unnið, var mjög
mjótt á munum. Sigur repúblikana
verður þó að teljast með ólíkindum,
þar sem verkalýður, bændur og
gengilbeinur kusu gegn eigin hags-
munum eins og í dáleiðslu og án
þess að múkka gáfu billjónerum
enn frekari skattfríðindi og endur-
greiðslur allt til ársins 2011! Ná-
granni minn hér á efri hæðinni sem
er gamall demókrati vill meina að
Bush gamli Sr. og CIA hafi eitthvað
með þetta leikhús að gera. Sjálfur
var hann í Kóreustríðinu og hefur
séð ýmislegt um dagana, en þessi
stjórn vill hann meina, er engu lík.
Grunnt á trúarofstæki
Hugmyndin um að Bush sé í
raun antikristur sem hafi ógnarvald
yfir þegnum sínum hefur verið vin-
sælt umræðuefni hér síðustu fjögur
árin og meira sagt í gríni en alvöru,
en eins og nú horfir eru sumir ekki í
neinum vafa lengur. Jafnmargir
telja Bush vera útsendara frá Guði
og voru kirkjunnar menn margir á
kjörstöðum að útbýtta flugumiðum
með skilaboðum þar sem haldið var
fram að Guð stæði með Bush og
styrkti hann gegn fóstureyðingum
og réttindum samkynhneigðra.
Skyldu menn kjósa Kerry væru
Sigurreifur Bush „Hugmyndin um að Bush
sé íraun antikristur sem hefur ógnarvald yfir
þegnum sínum hefur verið vinsælt umræðu-
efni hér síðustu fjögur árin og meira sagt i
gríni en atvöru, en eins ognú horfir eru sumir
ekki íneinum vafa lengur."
þeir að kjósa gegn vilja Guðs. Svart-
ir kjósendur, sem margir eru mjög
virldr í kirkju og trúarefnum kusu
nú gegn samkynhneigðum með-
borgurum sínum. Það virðist sem
þeir séu búnir að gleyma þeirri
samhyggð og bræðralagi sem sam-
kynhneigðir hafa ávallt sýnt þeim í
þeirra baráttu fyrir jafnrétti, en það
eru ekki nema fáeinir áratugir frá
því svartir fengu kosningarétt hér í
Bandaríkjunum. Margir afrískir
Ameríkanar eru þó ekki á því að
látta nappa sig í þessari andúð á
meðbræðrum sínum og minna sitt
fólk á að fókusera á það sem við eig-
um sameiginlegt frekar en það sem
skilur oss að. Að baki þessari sund-
urleitu taktfk er að sjálfsögðu ein-
hver hættulegasti maður í heimin-
um í dag sem Bush hefur kallað
„Turd Blossom", þar sem hann fær
hvaða skít til að blómstra, Karl
Rove.
Dágóð eftirherma Clintons
Enn og aftur, eins og í Flórída í
síðustu kosningum, þurftu margir
svartir kjósendur frá að hverfa
vegna einhvers misskilnings á kjör-
stöðum, hvort sem um var að ræða
nafnarugl, samnefni við fanga á
sakarskrá eða „röng" heimilsföng.
Til að bæta gráu ofan á svart fengu
svo margir úr fátækari hluta Ohio
dularfulla og vægast sagt óvænta
hringingu frá manni sem sagðist
vera Bill Clinton fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti. Hvatti „Clinton" fólk til
að fara sér að engu óðslega, því
kjörstaðir væru opnir daginn eftir
kosningar fyrir kjósendur sem áttu
erfitt með að komast á kjörstað sök-
um vinnu eða anna.
Þeir sem vissu betur hringdu inn
til útvarpsstöðva og annarra aðila
og vöktu athygli manna á þessum
ágæta en augljósa fúskara. Þetta er
bara ein saga af mýmörgum sem
einkennir ástandið í landinu.
Beiskjan sem ríkir hér gegn þessum
óforskömmuðu atlögum gegn lýð-
ræðislegum réttindum borgara er í
hámarki og víst þykir að ekki hafa
öll kurl komið til grafar enn í þess-
um efnum. Þeir sem að öllu jöfnu
þyrftu að svara til saka ef upp um þá
kemst, eru og verða líklega áfram
enn á lausu og líklega mjög ánægðir
með útkomuna í þessum kosning-
um. Það eina sem vitað er nú fyrir
víst er að forsetinn á fyrir höndum
gríðarlega erfiða vinnu í að reyna að
sameina mjög svo klofna þjóð, þar
sem trú á stjórnarskrá og lýðræði
ríkir annars vegar og trú á Guð og
heimsveldi hins vegar.
Fyrir Kaliforníubúa var smá
huggun í sigri öldungadeildarþing-
konunnar ágætu Barböru Boxer
sem vann yfirburðasigur yfir
repúblikananum Bill Jones. Hennar
bíður þó ekki auðvelt verk, þar sem
repúblikanar bættu við sig sætum
bæði á þingi og í öldungarráði.
Lára Martin
Lára Martin er i öngum sín-
um eftir úrsiit kosninganna.
Bréf frá LA
>
/
é
TJEBOÐ
BIÖ
LAUGA
5*
KAUPTU1 KG Ai
SÉRMERKTUM GOTTA
í HAGKAUP 0G ÞÚ FÆRD
BÍÚMIÐA Á BARNAMYNDINA
LÍF 00 FIÖR Á SALTKRÁKU
ÍKAUPDÆTI
r