Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1937, Page 39
stjórnarinnar. Baldwin íorsætisráöherra Englands var
hlynntur þessum tillögum, en Pjóðabandalagið var
ekki spurt ráða.
Með pessu virtust stjórnmáladraumar Edens vera
að engu orðnir, og grundvellinum undir starfsemi
hans burtu kippt, en einmitt pessi mikli ósigur
hans snérist upp í lians mesta sigur. Enska pjóðin
reis upp gegn þessum tillögum, og stjórnin mætti svo
mikilli andúð um allt land. að Baldvin varð að láta
Hoare vikja úr völdum, til pess að frelsa sjálfan sig
og stjórnina.
Almenningsálitið heimtaði, að Eden yrði eftirmaður
Hoares, og Baldwin varð að láta undan. — f*ann 21.
des. síðastliðinn varð Eden utanríkisráðherra Englands,
aðeins 38 ára að aldri.
Sjaldan hefir enskur utanríkisráðherra tekið við
embætti á örðugri tímum en Eden nú. í öllum lönd-
um var talað um, að ný heimsstyrjöld væri í aðsigi,
og IJjóðabandalagið virtist vera að leysast upp. Stríðið
geysaði i Afríku þrátt fyrir allar tilraunir til friðar-
samninga. Starf Edens siðan hann varð utanríkisráð-
herra hefir verið látlaus barátta fyrir friði og góðri
samvinnu milli pjóðanna. Hann hefir starfað meira,
en dæmi eru til um stjórnmálmenn vorra tíma, og
svo að segja daglega, hafa stórblöð álfunnar flutt frá-
sagnir um athafnir hans.
En hver verður svo árangurinn af starfi hans? Er
hann ekki að berjast fyrir dauðadæmdum hugsjónum:
friðnum og Bjóðabandalaginu? Honum hefir ekki tek-
izt að binda enda á Afríkustríðið, vegna þess að
Frakkar hafa ekki viljað ganga í berhögg við ítali, til
þess að missa ekki stuðning peirra í deilunni við
Þjóðverja.
Nú kom Hitler ítölum til hjálpar, pótt óbeinlínis
væri. Þegar hann sendi her sinn inn í Rínarhéröðin,
sló ógn mikilli á Frakka. Þeir póttust nú hafa um
annað að hugsa en Abessiníumálin. Þeir heimtuðu,
(35)