Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1937, Qupperneq 81
1930 1920
Fram- Fram- Sam- Sam-
færendur færðir tals o/o tals o/o
Ólikamleg atv. 2 005 2 751 4 756 4.* 3 417 3,o
Heimilishjú... 5 485 127 5612 5.2 6 384 6.8
Óstarfandi fólk 2 428 1 532 3 960 3.g 3 348 3.6
Ótilgr. atvinna 85 30 115 O.i 692 0.7
Samtals 50 072 58 789 108 861 100.o 94 690 lOO.o
Til hverrar atvinnu eru taldir allir þeir, sem þá
atvinnu stunda sem aðalatvinnu, ásamt konum þeirra
og öðru skylduliði, sem er á þeirra framfæri, en inn-
anhúshjú eru talin sem sérstakur atvinnuflokkur.
Undir liðinn »ólíkamleg atvinna« fellur ýmiskonar
oþinber starfsemi, svo sem við kirkjumál, kennslu-
mál, umboðsstjórn, dómsmál og heilbrigðismál, svo
og starfsemi við bókmenntir og listir. Ostarfandi telj-
ast þeir, sem lifa á eftirlaunum, ellistyrk eða sveitar-
styrk, svo og þeir, sem lifa á eignum sínum.
Á samanburði við árið 1920 sést, að fólki við land-
búnað hefir fækkað á siðastliðnum áratug, svo og
innanhúshjúum, en allir aðrir atvinnuflokkar hafa
vaxið. Mest hefir fjölgunin verið i verzlun og sam-
göngum og ólíkamlegri atvinnu, um 40°/o, en fiskveið-
ar hafa hækkað um 30°/o. Fækkunin á innanhúshjúum
getur ef til vill að einhverju leyti stafað af mismun-
andi úrvinnslu úr skýrslunum, því að greiningin á
milli innanhúshjúa og atvinnuhjúa er oft mjög vafa-
söm, einkanlega í landbúnaðinum, og er ekki víst,
að hún hafi orðið alveg eins við bæði manntölin.
Af öllum framfærendum við manntalið 1930 voru
10114 sjálfstæðir atvinnurekendur eða 20.2°/o, en 37 445
eða 74.8°/o voru verkafólk eða starfsmenn hjá öðrum.
Afgangurinn (5.o°/o) var óstarfandi fólk eða fólk tneð
ótilgr. atvinnu. Rúmlega 2/o af öllum sjálfstæðum at-
vinnurekendum, eða 6620 manns, höfðu landbúnað
að aðalatvinnu, voru bændur, enda voru þeir 38°/o af
framfærendum, sem störfuðu að landbúnaði. Af fram-
(77)