Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 87
Sigurður Magnússon, Jónas Rafnar,
fyrsti yfirlæknir á Vífils- fyrsti yfirlæknir i Krisl-
stöðum. nesi.
Sæmundur Bjarnhéðinsson, og starfaði þar meir en
þriðjung aldar. Fáar eða engar heilbrigðisráðstafan-
ir hafa borið jafnaugljósan árangur og stofnun holds-
veikraspítalans. Þegar hann tók til starfa, voru nál.
240 holdsveikir menn í landinu, en voru ekki nema
22 í árslok 1940. Að vísu má gera ráð fyrir, að sýk-
ingum hefði nokkuð fækkað hvort sem var, vegna
bættra lífskjara, húsakynna og' hreinlætis, en mest
mun þó einangrunin í spítalanum hafa dregið úr
sýkingarhættunni og því átt drýgstan þátt í fækkun
sjúklinganna.
Þyngri hefur róðurinn orðið gegn berldaveikinni,
en þó sjást þess nú merki, að þar hefur ekki heldur
verið unnið fyrir gýg. Guðm. Magnússon læknakenn-
ari mun hafa orðið fyrstur lækna til að vekja at-
hygli almennings hér á landi á útbreiðslu berkla-
veikinnar og háska þeim, sem af henni var húinn, i
grein, er ha-nn ritaði um lungnatæringu á íslandi í
Eimreiðina 1895 og í smágrein í Almanaki Þjóðvina-
félagsins 1896 um sama efni, en ekkert var unnið að
berklavörnum af opinberri hálfu fyrr en eftir alda-
(85)