Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Qupperneq 88
mót. Fyrstu berklavarnalögin voru sett 1903. Eru þar
fyrirmæli um skrásetningu berklaveikra, tilkynning-
arskyldu um dauða þeirra og vistaskipti, sótthreins-
anir o. fl. Síðla árs 1906 var stofnað félag til að koma
upp hæli fyrir berklaveikt fólk, Heilsuhælisfélagið.
Hafði þar forgöiigu Guðm. Björnson, þá nýorðinn
landlæknir, og nokkrir aðrir embættismenn og borg-
arár í Reykjavík. Hælið komst upp 1910 og tók til
starfa þá um haustið. Tók það 80 sjúkl. Sigurður
Magnússon var fyrsti yfirlæknir hælisins og gegndi
því starfi fram undir 1940. Var hann eini læknirinn
þar framan af, en nú starfa þar tveir aðstoðarlækn-
ar auk yfirlæknisins, enda hefur sjúkrarúmum þar
verið fjölgað svo smám saman, að nú eru þau 185.
Fyrstu árin rak Heilsuhælisfélagið hælið með styrk
úr landssjóði, en 1916 tók hann við rekstri þess til
fulls. — Siðla árs 1927 tók annað heilsuhæli til starfa
i Iíristnesi i Eyjafirði. Gekkst Heilsuhælisfélag Norð-
urlands fyrir að koma þvi á fót, og var það reist
fyrir samskotafé, er það safnaði, og framlög frá rik-
issjóði, og tók ríkið við hælinu til eignar og rekstr-
ar nokkrum árum síðar. Var þar rúm fyrir rúml.
70 sjúklinga 1940. Jónas Rafnar hefur verið yfir-
læknis hælisins frá upphafi, og þar er einnig aðstoð-
arlæknir. Enn voru um skeið rekin hressingarhæli
fyrir berklaveikt fólk, sem annaðhvort var talið, að
ekki þyrfti venjulega hælisvist, eða var nýkomið úr
sjúkrahúsum eða hælum, án þess að hafa fengið full-
an bata. Var annað i Kópavogi, reist af kvenfélaginu
Hringurinn og rekið af því til 1940, en þá gefið rik-
inu, er tók það handa holdsveikum mönnum, þegar
Laugarnesspítali var hernuminn. Hitt rak ríkið á
Reykjum í Ölfusi í nokkur ár. 1938 var stofnað Sam-
band ísl. berklasjúklinga, er hefur það aðalmarkmið
að koma á fót vinnuheimili fyrir berklaveikt fólk og
hefur orðið svo vel ágengt með fjársöfnun, að líkur
(86)