Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Side 39

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Side 39
sakalögmálið, um nauðsyn endurbóta á rökfræðinni til samræmis við nútima viðhorf o. m. fl. Þegar 1895 byrjaði hann á miklu riti, er hann nefndi upphaflega „Lífeðlisfræði trúarinnar", jók stöðugt við það til ævi- loka og breytti á ýmsa lund, þar á meðal bókarheitinu oftar en einu sinni; hafa aðeins komið út þrír kaflar úr bók þessari, og aldrei lauk hann við hana til fulls. Mun mörgum af starfsbræðrum hans hafa fundizt fátt um þetta „heimspekilega dútl“ og talið það bera vott um skort á áliuga á aðalstörfum hans, en Wright sjálf- ur leit þvert á móti svo á, að lausn þeirra heimspeki- legu vandamála, er hann fékkst við, væri ómissandi grundvöllur allra framfara, svo i læknisfræði sem fé- lagsmálum. Og rangmæli var það, að tala um „heim- spekilegt dútl“, því að Wright sökkti sér niður í þessi mál með sama kappinu og ósérhlífninni og hann beitti jafnan við hin vísindalegu tilraunastörf sin í þágu læknisfræðinnar. En misskilningur væri það á því, er nú liefur verið sagt, að ætla, að Wright hafi yfirleitt farið á mis við viðurkenningu samtíðarmanna sinna. Hann naut jafnan fyllstu hylli og aðdáunar samstarfsmanna sinna og lærisveina, svo sem áður er sagt. Hafa þegar verið til- færð ummæli tveggja þeirra um hann, og má þar við bæta örstuttum ummælum tveggja annarra um hann látinn. Annar þeirra, C. Jones, lét svo um mælt: „í minum augum eru aðeins til tveir flokkar manna, Almroth Wright í öðrum, en allir aðrir i hinum.“ Hinn, M. Greenwood, lýsir hinum miklu kostum Wright’s og dregur ekki heldur fjöður yfir gallana, en niðurstaða hans er þessi: „Ég get ekki hugsað mér neina þá skil- greiningu á miklum manni, er ekki eigi heima við Wright. Hann var að minnsta kosti svo mikill maður, að það er óhætt að kveðja hann með fullri hreinskilni.“ Þá var og Wright sýndur margs konar heiður um ævina. Tekinn var hann í tölu brezkra aðalsmanna (37)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.