Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Blaðsíða 108
fúsdóttur Thorarensen. Alllöngu síðar léku þær Guð-
rún Daníelsdóttir, Þóra Sigurðardóttir og Þuríður Sig-
urðardóttir. Ýmsar léku aðeins eitt hlutverk, eða örfá
hlutverk, eins og Ólafía Jóhannsdóttir, sem lék Hjör-
dísi i „Víkingunum á Hálogalandi“ 1892.
Fór því nú fram um sinn, að leikfélögin voru tvö í
bænum og kapp á milli, en þá var fyrirhuguð bygging
Iðnaðarmannahússins og gert ráð fyrir, að þar yrði
leiksvið stærra og hentugra en áður hafði þekkzt í
bænum. Var það þá góðra manna ráð að sameina fé-
lögin, og tókst það að mestu fyrir milligöngu Þorvarðs
Þorvarðssonar. Hið nýja félag hlaut nafnið Leikfélag
Reykjavíkur.
6.
Leikfélag Reykjavikur var stofnað 11. janúar 1897.
Þann dag voru félagslögin undirrituð á stofnfundi af
19 konum og körlum, sem ætluðu sér „að halda uppi
sjónleikum og koma þeim í sem bezt horf“ eins og
segir i félagslögum. Alllangur timi, eða nærri því heilt
ár, leið þó svo, að engar sýningar voru haldnar. Fyrsta
sýning Leikfélags Reykjavíkur fór ekki fram fyrr en
18. desember 1897. Sumarið leið og haustið til undir-
búnings starfinu. Um vorið voru samþykktar „Reglur
fyrir æfingum og leikum“ (9. apríl) og „Samþykkt
um borgun til leikenda fyrir að leika og annarra starfs-
manna við leikina (21. mai). Leikhúsið sjálft, Iðnaðar-
mannahúsið, var tilbúið til notkunar löngu fyrr en
sýningar Leikfélags Rvíkur hófust. Fyrsta skemmtun
í húsinu fór fram 30. janúar 1897, það var samsöngur
undir stjórn Rjörns Kristjánssonar, Jónasar Helgason-
ar og Steingríms Johnsens, en fyrstu sjónleikar voru
sýndir þar i febrúar og marz, og stóð Thorvaldsens-
félagið fyrir þeim. Samningur um leiktjaldaeign bæj-
arins var gerður snemma á árinu 1898 (7. janúar) milli
formanns bæjarstjórnar Reykjavíkur, Halldórs Dan-
íelssonar bæjarfógeta, og leikfélagsstjórnarinnar, en
(106)