Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 50
trésmíðaverkstæði Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöð-
um. Aðfaranótt 12. okt. skemmdist fiskgeymsluhús á
Ólafsfirði af eldi. Aðfaranótt 30. okt. brann fjós á Haf-
þórsstöðum í Norðurárdal, og brunnu þar inni 7 kýr.
Aðfaranótt 2. nóv. skemmdist Hótel K.E.A. á Akureyri
af eldi. 8. nóv. brann vélaverkstæði við Borgartún í
Rvik. 18. nóv. brann Gamla Hótelið á Akureyri, og
bjargaðist fólk nauðulega úr eldinum. 17. des. brann
bílaverkstæði í Ytri-Njarðvík. 29. des. skemmdist bíla-
verkstæði Kaupfélags Árnesinga á Selfossi af eldi.
Búnaður. Grasspretta var víðast hvar allgóð, en nýt-
ing heyja mjög misjöfn. Á Suður- og Vesturlandi var
mesta óþurrkasumar í manna minnum, og spilltust
hey þar mjög og ónýttust sums staðar með öllu. Á
vestanverðu Norðurlandi nýttust hey dável, en á
austanverðu Norðurlandi og á Austurlandi var nýt-
ing með afbrigðum góð. Rikisstjórnin veitti 12 millj.
kr. til bænda á þeim svæðum, sem verst urðu úti vegna
óþurrkanna. Um áramót var búið að flytja 8400 hesta
af heyi frá Norðurlandi á óþurrkasvæðin. •— Enn
kvað mikið að ræktunarframkvæmdum með stórvirk-
um vélum. Auk hinna eldri nýbýlahverfa var hafinn
undirbúningur að stofnun nýbýlahverfa á Álftanesi
á Mýrum og i Hjaltastaðaþinghá. Mikið var unnið að
sandgræðslu. M. a. gerði sandgræðsla rikisins til-
raunir um ræktun örfoka mela hjá Leirvogstungu í
Mosfellssveit, og gáfust þær vel. Rúmlega 50 islenzkir
skógræktarmenn dvöldust við skógrækt i Noregi í júní,
og jafnmargir norskir skógræktarmenn dvöldust hér
á landi á sama tíma. Þrír menn brautskráðust úr
Skógræktarskóla rikisins. Iíornrækt gekk yfirleitt illa
vegna óþurrkanna, en uppskera brást þó ekki með öllu.
Kartöfluuppskera varð mjög léleg, um 60,000 tunnur.
Kartöflumyglu varð vart víða um land. Gerðar voru
tilraunir með ræktun rússneskra kartaflna á tilrauna-
stöðinni á Varmá. Ræktun grænmetis gekk illa. Var
skortur á tómötum og agúrkum í fyrsta skipti i mörg
(48)