Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Qupperneq 2
Forstöðumenn Þjóðvinafélagsins
1963.
Ármann Snævarr, háskólarektor, forseti.
Bjarni Vilhjálmsson, skjalavörður, varaforseti.
Gísli Guðmundsson, alþingismaður.
Halldór Iíiljan Laxness, rithöfundur.
Matthias Jóhannessen, ritstjóri.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins.
Útgáfubækur 1963.
fslenzk orðabók handa skólum og almenningi, aðal-
höfundur Árni Böðvarsson. Að bók þessari hefur verið
unnið sleitulaust um fimm ára skeið. Hún er tæpar
900 bls. að stærð, tveir dálkar á síðu, og hefur að
geyma stuttar og gagnorðar skýringar á 65 þúsund
íslenzkum orðum. Hér er um að ræða fyrstu almennu
íslenzku orðabókina með skýringum á íslenzku. Auk
þess, sem hún á að geta orðið mikilvægt hjálpargagn
skólanemendum, er þess að vænta, að hún þyki góður
fengur öllum unnendum islenzkrar tungu, öldnum
jafnt sem ungum.
Steingrímur Thorsteinsson, ævi og störf, nefnist
bók eftir Hannes Pétursson. Bókin er um 300 bls. að
stærð, prýdd allmörgum myndum. í formála segir
höfundur: „Viðleitni min hefur verið sú að láta Stein-
grim koma til dyranna eðlilegan og mannlegan. Ævi-
sögur skálda, sem sett eru á stall eins og goðmyndir,
eiga naumast erindi við lifandi fólk. En sums staðar
má sjá, að bókin er hálft í hvoru varnarrit, og hef
ég ekki hirt um að jafna yfir þær „misfellur“.“
Konur segja frá, frásöguþættir, minningar, sögur og
ljóð eftir nær 20 konur. Efni bókarinnar er allt tekið
úr handskrifuðu blaði, sem Lestrarfélag kvenna stóð
að á árunum 1912—1938. Nálega allt efni bókarinnar
Frh. á 3. kápusiðu.