Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Qupperneq 95
húsfr. í Victoria, B.C. (kona Soffaniasar Thorkels-
sonar), d. 27. sept., f. 27. sept. ’07, Sigurlaugur Þ.
Benson fyrrv. ráðuneytisfulltrúi, Bellingham, Wash-
ingtonríki, d. 5. ág., 67 ára, Sólveig Stefánsson (Jóns-
dóttir alþingismanns frá Múla, ekkja Jóns Stefáns-
sonar Filippseyjakappa), Baltimore, Maryland, d. 13.
apríl, f. 30. apríl ’84 og Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður, mannfræðingur og rithöfundur, Hanover,
New Hampshire, d. 26. ág., f. 3. nóv. ’79.
Menn eru vinsamlega beðnir að senda árbókinni
upplýsingar um mannalát og tilgreina fuilt nafn,
heimilissfang, stétt, fæðingar- og dánarár og -dag.
Utanáskriftin er Árbók íslands, Öldugötu 25, Rvik.
Náttúra landsins. í janúarlok ollu stórrigningar
tjóni á vegum víða um land. Um miðjan apríl ollu
vatnavextir viða tjóni á vegum. 1 þeim flóðum drukkn-
uðu 110 kindur í fjárhúsi á Egilsstöðum í Vopna-
firði. Mikil flóð komu þá í Ölfusá, Blöndu, Héraðs-
vötn og margar fleiri ár. Rafhnur slitnuðu þá í Arnes-
sýslu. Þá kom og mikið flóð í Elliðaár, svo að vatnið
i Gvendarbrunnum óhreinkaðist. 26. maí ollu skriðu-
föll miklu tjóni á skógum í Laugardal. 14. og 15. júni
ollu stórrigningar og skriðuföll tjóni á vegum norðan-
og austanlands. 23. sept. olli stórviðri talsverðu tjóni
á Suðvesturlandi. 30. sept. gekk enn óveður og olli
nokkru tjóni. 20. okt. ollu stórrigningar og skriðu-
föll flóðum og vegaskemmdum viða á Vestfjörðum og
í Norðurárdal í Mýrasýslu. 29. okt. gerði ofsaveður
með snjókomu um Suðurland, og fennti þá fé i Rang-
árvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. 26. nóv. olli of-
viðri simabilunum víða um Vesturland. 22. og 23.
des. ollu stórrigningar tjóni á vegum. Tók þá vatns-
flóð brú af Reykjanesgili milli Gjögurs og Trékyliis-
víkur.
26. jan. laust eldingu i loftnét stuttbylgjustöðvar-
innar i Mýrdal. 26. febr. mældist loftþrýstingur á
Grimsstöðum á Fjöllum 1052,4 millibarar, og er það
(93)