Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Side 106
urs fyrir 18,9 millj. kr. (árið áður ekkert), fryst hval-
kjöt fyrir 18,7 millj. kr. (árið áður 11,6 millj. kr.),
saltfiskflök fyrir 17,4 millj. kr. (árið áður litið), fryst
hrogn fyrir 13,7 millj. kr. (árið áður 8,5 millj. kr.),
hvallýsi fyrir 13,7 millj. kr. (árið áður 11,8 millj. kr.),
söltuð þunnildi fyrir 12 millj. kr. (árið áður 12,3 millj.
kr.), söltuð beituhrogn fyrir 8,8 millj. kr. (árið áður
8,1 millj. kr.), söltuð grásleppuhrogn fyrir 6,8 millj.
kr. (árið áður litið), hvalmjöl fyrir 3,3 millj. kr. (árið
áður 5,8 millj. kr.), karfamjöl fyrir 2,5 millj. kr. (árið
áður 17 millj. kr.), lifrarmjöl fyrir 2,1 millj. kr. (árið
áður litið), humar- og rækjumjöl fyrir 0,8 millj. kr.
(árið áður ekkert). Nær ekkert var nú flutt út af
karfalýsi.
Verklegar framkvæmdir. Innlendir og erlendir sér-
fræðingar störfuðu að undirbúningi fimm ára fram-
kvæmdaáætlunar. Bankastjóri norska íbúðabankans,
J. Hoffmann, dvaldist um skeið hér á landi til að
kynna sér islenzk byggingamál og gera tillögur til
úrbóta.
Borað var eftir heitu vatni í Rvik og unnið að
lagningu hitaveitu í Laugarness- og Lækjahverfi.
Unnið var að umbótum á vatnsveitu Rvikur. Lokið
var á árinu smíð 535 íbúða i Rvík og margar voru í
smíðum. Unnið var áfram að stækkun Landsspítalans,
Landakotsspítalans og Kleppsspitalans og að bæjar-
sjúkrahúsi Rvikur. Unnið var að stækkun sjómanna-
heimilisins Hrafnistu í Rvík, og var ný álma tekin
til afnota á sjómannadaginn. Unnið var að byggingu
vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Rvík. Unnið var
að byggingu húss Blindrafélagsins í Rvik. Hafin var
bygging kvennaheimilisins Hallveigarstaða i Rvík.
Unnið var að Hallgrímskirkju, Háteigskirkju og
Langholtskirkju. Kirkju Filadelfíusafnaðarins i Rvík
var að mestu lokið. Umbætur voru gerðar á Frikirkj-
unni í Rvík. í Fossvogi var unnið að byggingu stór-
hýsis fyrir skrifstofur kirkjugarðanna i Rvik og lik-
(104)