Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Side 110
byggingu mjólkurstöðvar. Á Raufarhöfn var unnið
að byggingu félagsheimilis. Þar var byggt mikið
geymsluhús. Unnið var að byggingu barnaskólaluiss
í Axarfirði. Á Húsavík var unnið að mikilli bygg-
ingu fyrir skrifstofur bæjarins, lögreglustöð og
slökkvistöð. Hafin var bygging félagsheimilis á Húsa-
vík. Þar var og unnið að byggingu sláturhúss og bif-
reiðaverkstæðis. Sildarverksmiðja á Húsavík var
stækkuð. Borað var eftir heitu vatni við Húsavik. Var
keyptur nýr bor til að annast jarðboranir norðan-
lands. Unnið var að byggingu sumarbúða æskufólks
við Vestmannsvatn í Aðaldal, og unnu nokkrir skozk-
ir æskumenn að byggingu þeirra. Ný kirkja var vígð
í Reykjahlíð 1. júlí. Unnið var að byggingu skóla-
húss í Mývatnssveit. í Bárðardal var unnið að bygg-
ingu félagsheimilis, sem jafnframt á að vera skóla-
hús. Unnið var að byggingu verzlunarhúss á Greni-
vík. Á Svalbarðsströnd var unnið að byggingu kaup-
félagshúss og sundlaugargerð. Mikið var um fram-
kvæmdir á Akureyri. Unnið var þar að húsi Útvegs-
bankans, barnaskólahúsi á Oddeyri og byggingu fyrir
bæjarskrifstofurnar. Unnið var að stækkun póst- og
simahússins á Akureyri. Elliheimili Akureyrar var
vígt 29. ágúst. íþróttahús Akureyrar var vigt í ágúst.
Norðlenzkt byggðasafn var opnað á Akureyri. Unnið
var að stækkun félagsheimilis Sjálfsbjargar á Akur-
eyri. Stórhýsi fataverksmiðjunnar Heklu á Akureyri
var tekið til afnota, og unnið var þar að mörgum
verksmiðju- og verzlunarhúsum, t. d. húsi Lindu, húsi
Amaró h.f., húsi Akurs h.f., verzlunarhúsi K.E.A., húsi
Veganestis li.f. og frystihúsum. Umbætur voru gerðar
á íþróttavelli Akureyrar. Enn var unnið að skíða-
hótelinu við Akureyri. Unnið var að byggingu lieima-
vistarskóla á Laugalandi á Þelamörk. í Hrisey var
unnið að sundlaugargerð. Unnið var að byggingu sím-
stöðvarhúss á Dalvík. Þar var unnið að frystihúsbygg-
ingu. Á Ólafsfirði var lokið byggingu frystihúss, og
(108)