Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Síða 113
á Húsafelli, Bæ í Bæjarsveit og Lundi í Lundarreykja-
dal. Unnið var að byggingu heimavistarskóla við Leir-
árlaug. Mörg íbúðarhús voru byggð á Akranesi. Sild-
arverksmiðjan á Akranesi var stækkuð. Hafin var
bygging verzlunarstórhýsis á Akranesi.
Viða um land var unnið að hafnarframkvæmdum,
t. d. í Þorlákshöfn, Ólafsvík, Patreksfirði, Tálknafirði,
Hólmavík, Siglufirði, Dalvik o. m. v.
Nýi sæsíminn milli íslands og Skotlands um Fær-
eyjar var tekinn í notkun 22. janúar. Lagður var nýr
sæsímastrengur frá Nýfundnalandi um Grænland til
Vestmannaeyja. Hafin var telexþjónusta milli íslands
og útlanda, þar sem notendur vélrita sín á milli með
fjarrita. Unnið var að uppsetningu sjálfvirkra sím-
stöðva í Hafnarfirði, Kópavogi, á Akranesi og í Vest-
mannaeyjum, og unnið var að því að koma á sjálf-
virku sambandi milli Akureyrar og hinna sjálfvirku
stöðvanna. Tekin var í notkun í Rvik ný fröken
Klukka (Sigríður G. Hagalín taiaði inn á plötuna).
Unnið var að lóranstöðinni á Gufuskálum. Endur-
varpsstöð var reist á Þórshöfn. Radióstöð var byggð
í Hvanneyrarskál við Siglufjörð.
Víða um land var unnið að vegagerð. Gerðar voru
tilraunir með nýjar tegundir rykbindiefna. Unnið
var að hinum nýja Suðurnesjavegi. Þrengslavegi var
að mestu lokið, og unnið var að Lyngdalsheiðarvegi.
Hafinn var undirbúningur að lagningu vegar fyrir
Ólafsvíkurenni. Mikið var unnið að vegagerð við
ísafjarðardjúp og á Ströndum. Nokkuð var unnið að
Strákavegi til Siglufjarðar og að veginum um Ólafs-
fjarðarmúla. Unnið var að vegalagningu milli Stöðv-
arfjarðar og Breiðdals.
Margar brýr voru byggðar. Meðal þeirra voru
tuttugu, sem voru meira en tíu metrar á lengd. Meðal
áa, sem brúaðar voru, voru Dragaá i Skorradal, Gljúf-
urá í Mýrasýslu, Haukadalsá i Dalasýslu, Mjóafjarð-
ará á Þingmannaheiði, Hestá, Korpa og Breiðadalsá
(111)