Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Page 118
Sovétsambandsins), loðskinn (aðallega til V-Þýzka-
lands, Bretlands og Hollands), söltuð grásleppuhrogn
(til V-Þýzkalands og Danmerkur), kaseín (til Dan-
merkur og V-Þýzkalands), gamlir málmar (mest til
V-Þýzkalands), garnir (einkum til Finnlands), hval-
mjöl (til Sviss, Finnlands og Bretlands), mjólkurduft
og undanrennuduft (til Ungverjalands, Sviss og V-
Þýzkalands), skinn og húðir (til V-Þýzkalands),
karfamjöl (til Danmerkur), lifrarmjöl (til Banda-
ríkjanna og V-Þýzkalands), fryst nautakjöt (til
Bandaríkjanna) og humarmjöl og rækjumjöl (til V-
Þýzkalands).
Sett var á stofn efnahagsstofnun til að undirbúa
framkvæmdaáætlanir fyrir ríkisstjórnina, semja þjóð-
hagsreikninga og gera aðrar hagfræðilegar athuganir.
Efnahagsmálaráðuneytið var lagt niður. Tekið var
240 milljóna króna framkvæmdalán i Bretlandi.
Til starfa tók í Rvík nýr skóli, Tryggingaskólinn,
og er hann ætlaður starfsfólki tryggingafélaga (skóla-
stjóri Þórir Bergsson). íslendingar tóku þátt í vöru-
sýningu í Nígeríu um haustið. Nokkrir islenzkir verzl-
unarmenn sóttu alþjóðlegt verzlunarmannamót i
Hongkong í nóvember.
Vísitala framfærslukostnaðar í Rvík var 116 stig
i ársbyrjun, en 126 stig í árslok.
[Ýmsar af tölunum um búnað, útveg og verzlun
eru bráðabirgðatölur, er kunna að breytast lítið eitt,
þegar endanlegar skýrslur eru fyrir hendi.]
Vinnumarkaður. Talsvert var um verkföll á árinu.
Verkfall togarasjómanna hófst 10. marz og stóð til
18. júlí, en vegna kaupdeilu við yfirmenn á togara-
flotanum fóru togararnir ekki á veiðar fyrr en nokkru
síðar. Verkfall járnsmiða í Rvik hófst 5. maí og stóð
til 8. júní. Deilur voru um kjörin á sumarsíldveiðum.
24. júni voru sett bráðabirgðalög um gerðardóm um
síldveiðikjörin, og fóru þá skipin á veiðar. Úrskurð-
ur gerðardómsins kom mánuði siðar. Veitingaþjónar
(116)