Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Page 123
Frh. af 2. kápusiðu.
birtist hér i fyrsta sinn á prenti. Konurnar eru flestar
landskunnar. Meðal höfunda eru Ásthildur Thorsteins-
son, Elin Briem Jónsson, Herdis og Ólína Andrés-
dætur, Inga L. Lárusdóttir, Ingunn Jónsdóttir frá
Kornsá, Laufey Vilhjálmsdóttir, Steinunn H. Bjarna-
son og Theodora Thoroddsen. — Vigdís Kristjáns-
dóttir myndskreytir bókina. Þar verður einnig lit-
prentuð mynd eftir Mugg, sem hann gerSi viS bernsku-
minningar móSur sinnar og limdi inn í hið hand-
skrifaða blað kvennanna.
Landsvísur, ný Ijóðabók eftir Guðmund Böðvarsson.
í bókinni verða um 30 kvæði eftir hið vinsæla skáld
á Kirkjubóli.
Anna Rós, ný skáldsaga eftir Þórunni Elfu Magnús-
dóttur, liefst í byrjun fyrra stríðs, haustið 1914.
Afríka, sunnan Sahara, ný bók í flokknum Lönd og
lýðir. Guðrún Ólafsdóttir hefur skrifað þessa bók um
gömul og ný ríki Afríku. Bókin hefur að geyma mik-
inn fróðleik um þróun mála i þessum heimshluta,
sem öðrum fremur hefur verið i deiglunni undan-
farin ár.
Rómaveldi, stórt og fróðlegt rit eftir ameriska sagn-
fræðinginn Will Durant, Jónas Kristjánsson cand.
mag. færði í íslenzkan búning. Ritið er prýtt mörg-
um myndum.
Ferðabók Jakobs H. Líndals bónda og jarðfræðings
á Lækjarmóti. Dr. Sigurður Þórarinsson sér um út-
gáfuna. Hefur að geyma fjörlega samdar lýsingar
margra héraða á Norðurlandi og víðar, einkum frá
jarðfræðilegu sjónarmiði.
í flokknum Smábækur Menningarsjóðs koma að
þessu sinni út þrjár bækur: Frönsk ljóð frá 19. og
20. öld, Jón Óskar íslenzkaði, Cícero og samtíð hans
eftir dr. Jón Gíslason skólastjóra og Ferhenda, vísna-
kver eftir Kristján Ólason frá Húsavík.