Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Qupperneq 43
DV Jólablað
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 43
The Incredibles frumsýnd á annan í jólum
Ofurhetjur fá annan s
Það er óskarsverðlaunateymið
sem gerði Toy Story, Monsters
Inc. og Finding Nemo sem
stendur á bak við stórmyndina
The Incredibles sem frumsýnd
er í Sambíóunum og Háskóla-
bíói á annan í jólum.
í myndinni segir frá banda-
rískri fjölskyldu sem saman-
stendur af fyrrverandi ofurhetjtun
sem enduruppgötva hina raunverulegu
uppsprettu máttar síns - í hvert öðru. Bob
Parr var einn af aðal-grímuklæddu baráttu-
mönnunum í heiminum gegn glæpum,
hann barðist gegn hinu illa og bjargaði líf-
um á hverjum degi. En flmmtán árum síðar
hafa hann og eiginkona hans Helen (sjálf
fyrrverandi ofurhetja) neyðst til að gerast
venjulegir borgarar og flytjast í úthverfi. í
dag eru þau eins og hver annar Jón og hver
önnur Gunna.
Bob klæjar í lófana, hann langar svo að fá
að gera eitthvað og grípur tækifærið fegins
hendi þegar hann er boðaður á fjarlægja
eyju til að að takast á við afar leynilegt verk-
efni. Allt í einu hvflir framtíð jarðar á herð-
um fjölskyldunnar og þau verða að flnna
sig, firma hver þau voru áður fyrr.
Fjöldi þekktra leikara gæðir persónunur
The Incredibles lífl. Meðal þeirra eru Craig
T. Nelson, Holly Hunter, Samuel L. Jackson,
Jason Lee og leikstjórinn Brad Bird.
Dúddl ígijeit h>ileikwn '»•111
rotarlnn gaöþM/, árunt ‘‘ö’1
xvintýiin IMt’ö olll 0 lueinu
ibyygnir Jnkob
lurnann fcrfyrn
ilnum mönnum,
Stuðmenn
endurtaka
leikinn
Stuðmannamyndin I takt við tím-
ann verður frumsýnd á annan í
jólum I Smárabíói, Regnbogan-
um, Laugarásbíói, Borgarbiói á
Akureyri og í Selfossbíói.
í takt við tímann fjallar að mestu
um sömu persónur og komu fram
i Með allt á hreinu, nema hvað nú
eru þær persónur 22 árum eldri
eins og gefur að skilja. I forgrunni
eru söngvararnir Kristinn Styr-
kársson Proppé og Harpa Sjöfn
Hermundardóttir, en örlögin réðu
því að leiðir þeirra skildu á þjóð-
hátíð í Herjólfsdal. Stuðmenn eru
í upphafi myndar aðeins lítið trió
á hótelbar á Spáni, þó að hljóm-
sveitarstjórinn Frímann eigi sér
enn drauma um litríkan frama á
tónlistarbrautinni. Stuðmenn vita
líka að ísland er land tækifær-
anna, þar sem nýsköpunarverk-
efnin bjóðast hvert sem litið er.
Dúddi er löngu hættur að róta og
leggur nú stund á öllu andlegri
störfog virðist sá eini sem hefur
slegið almennilega í gegn. En þar
með er ekki öll sagan sögð eins
og kvikmyndahúsagestir munu
komast að.
Tökur hófust í Tívolí í Kaup-
mannahöfn í september í fyrra,
vetrartökur fóru fram í febrúar-
lok, en aðaltökur í sumar sem
leið. 30 ný lög Stuðmanna eru í
myndinni. Auk Stuðmanna fara
Eggert Þorleifsson og Höskuldur
Ólafsson með stór hlutverk.
Við sendum landsmönnum bestu óskir um gleðilegt ár
með þökk fyrir samskiptin á liðnum árum. Verum
samferða inn ( nýja tíma í raforkumálum
landsmanna.
RARIK
JUfawU aýt