Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Sprengingar á
Álftanesi
Ibúi á Álftanesi segir að
legið hafi við stórslysi um
helgina vegna óleyfilegra
flugeldasprenginga. „Það á
að vera vitað mál að
sprengingar eftir þrettánd-
ann eru ekki leyfðar. Hópur
af unglingsstrákum er hins
vegar á fullu að sprengja
þokkalegar bombur ennþá
(enga venjulega flugelda).
Ég hef heyrt að þetta séu 9.
og 10. bekkingar," segir
Guðrún Vilhjálmsdóttir í
innleggi á spjallsvæði
heimasíðu Alftaness: „Það
lá við stórslysi um helgina
þegar ég var í útreiðartúr
með tíu ára syni mínum og
hestarnir fældust."
Tófubitnar
kindur
Sauðfjárrækt-
endur í Barðar-
strandahreppi
segja að tófu-
bitnar kindur
hafi sést í tuga-
tali á þessu
hausti og að
meiri vanhöld
séu á fé en eðlilegt geti
talist. í ályktun Sauðfjár-
ræktarfélags Barðastrand-
arhrepps er lýst óánægju
með refa- og minkaeyðingu
á svæðinu og lýst eftir úr-
bótum. Bæjarstjórn Vestur-
byggðar segir ekki hægt að
greiða öðrum en samnings-
bundnum grenjaskyttum á
meðan ríkið lækkar framlag
sitt til veiðanna.
Boða uppsögn
samninga
Alþýðusamband íslands
segir að þar sem margir
kostnaðarliði heimilanna í
landinu haf! hækkað meira
en laun og ýmsar bætur í
almannatryggingakerfinu,
sé ljóst að ekki megi mikið
út af bregða til að kjara-
samningum verði ekki sagt
upp. Forsendur um stöðug-
leika og kaupmáttaraukn-
ingu launa séu við það að
bresta, meðal annars vegna
hækkandi gjaldskrár opin-
berrar þjónustu. „Ef svo fer
er mjög líklegt að kjara-
samningum verði sagt upp
í haust," segir hagdeild ASÍ.
Gísli Hvanndal Jakobsson var kallaður fyrir dómara á dögunum til að svara fyrir
innbrot í Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Gísli varð landsfrægur fyrir að syngja
lagið Álfar í Idol Stjörnuleit. Faðir Gísla segir að hann sé saklaus og hafi aðeins
verið á vitlausum stað á vitlausum tíma.
Idol-keppandi ákærður fvrir
að brjotast inn i
Idol-keppandanum Gísla Hvanndal Jakobssyni var gert að mæta
fyrir dóm á dögunum vegna þjófnaðar. Gísli er ákærður fyrir að
brjótast inn í Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og stela þaðan
nokkrum hlutum.
Gísli heillaði marga með söng
sínum í Idol-keppninni þar sem
hann söng: „Eru álfar líka rnenn?"
Hann þótti ljúfur sveitapiltur sem
var á barmi þess að uppfylla draum
sinn um að verða tónlistarmaður.
í stöðluðu viðtali sem Idol
Stjörnuleit tók við hann í fyrra lýsti
Gísli æskudraumi sínum: „Að verða
tónlistarmaður. Ég man ekki eftir
að hafa viljað verða neitt annað en
vera söngvari og lagasmiður.
Kannski þegar ég hef verið 3-4 ára
hefur lögga eða slökkliðismaður
verið inni í myndinni."
Gaf til Regnbogabarna
Gísli, sem er aðeins 19 ára gam-
all, gaf út hljómdisk með jólalögum
fýrir jólin. Hann lét samtökunum
Regnbogabörnum eftir helming
ágóðans, en þau berjast gegn ein-
elti. Nú geldur hann fyrir þann
glæp sem hann er sagður hafa
framið fyrir þarsíðustu jól.
Gísli er nú ákærður fyrir að hafa
brotist inn í Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri á Þorláksmessu 2003.
Hann er sagður hafa staðið að inn-
brotinu ásamt þremur mönnum,
sem höfðu stolið jólatré úr Kjarna-
skógi daginn áður. Tveir af mönn-
unum eiga að baki feril afbrota.
Gísli og þremenningarnir eru
sakaðir um að brjótast inn í kjallara
sjúkrahússins og stela þar rörtöng-
,Hann var víst farþegi í
einhverjum bíl og
tengdist þessu víst
ekki neitt
um, hamri, sög, skrúfum, kítti, bor-
vélum og borum, brettaskífu og
heyrnarhlífum. Hann var kallaður
fyrir dómara í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra á dögunum og
munu réttarhöld hefjast á næst-
unni.
Var í vitlausum bíl
Faðir Gísla Hvanndal,
Jakob Agnarsson húsa-
smiður, segir allt útlit
fýrir að Gísli sé sak-
laus. „Hann var
víst farþegi í ein-
hverjum bíl og
tengdist þessu
víst ekki neitt.
Mér skildist að
það hefði einn
aðili farið þarna
inn. Þeir voru
búnir að fara
nokkrum
sinnum
þarna
inn,
þess
ir
menn. Ég talaði
sjálfúr við lög-
reglumanninn
sem sá um málið
og hann taldi
þetta víst,“ seg-
ir Jakob.
Gísli
starfar nú
við löndun á
afla úr fiski-
skipum.
Hjónasvipur í þrefaldri útsendingu
Svarthöfði átti ánægjulega stund
fyrir framan sjónvarpið á laugar-
dagskvöldið. Sameiginleg útsending
þiggja sjónvarpsstöðva í landssöfn-
un fýrir fórnarlömb flóðanna í Asíu.
Aldrei þessu vant var Svarthöfði
rólegur í sófanum heima. Gat skipt á
milli stöðva án þess að spennast
upp. Alltaf það sama á skjánum.
Mest um vert þótti Svarthöfða þó
að sjá þau Loga Bergmann og Svan-
hildi Hólm í jákvæðu ljósi. Að safna
peningum fyrir hrjáðan heim. Út-
geislun þeirra tvöfaldaðist þegar þau
voru saman á skjánum. Loks hönd í
hönd fyrir augum alþjóðar. Ekki fór á
milli mála að mrkill hjónasvipur er
með þeim tveimur.
Þó þótti Svarthöfða athyglisverð-
ara eftir því sem leið á útsendinguna
að hjónasvipurinn var ekki minni
með þeim Gísla Marteini og Brynhildi
Ólafsdóttur sem sátu hinum megin í
útsendingunni. Svo sláandi var svip-
urinn að Svarthöfði sá hugsanlega af-
kvæmi þeirra skýr og Idár í kollinum.
Lítil, brosandi og sítalandi. Strákurinn
með gleraugu en stelpan ekki.
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað fínt," segir Þráirrn Bertelsson rithöfundur.„Það hefur engin sérstök
ógæfa hent mig það sem af er þessum degi. Að vísu kvíði ég fyrir febrúar og mars
eins og ævinlega en vona að þeir taki enda - eins og ævinlega."
Svarthöfði getur ekki
neitað því, þó skrýtið
sé frá að segja, að
honum hefur alltaf
þótt hjónasvipur
með þeim Elínu
Hirst og Páli Magnús-
syni. Gaman væri að fá
að sjá þau saman við
kynningarstörf í
næstu landssöfnun.
Vonandi verður hún
sem fyrst því náttúru-
hamfarir eru ávísun á
ágæta sjónvarpsdag-
skrá þegar allir leggj-
ast á eitt.
Enn og aftur ber að
þakka þeim Loga Berg-
mann og Svanhildi Hólm
fyrir að stíga fram þetta
kvöld og sýna alþjóð ást sína
ósvikna. Innilegar þaJddr!
Svarthöfði