Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 Fréttir TfV Metfjöldi nýrra ríkis- borgara 637 útlendingum var veittur íslenskur ríkisborg- araréttur á síðasta ári, sem er met. Á árunum 1990 til 1997 fengu yfirleitt á annað hundrað útlendinga ríkis- borgararétt, en undanfarin ár hefur þetta farið hraðvax- andi. Árið 2003 fengu 436 út- lendingar ríkisborgararétt og árið áður 364. Flestir nýju ís- lendinganna eru pólskir að uppruna, eða 108 og 56 fæddust í fyrrum Sovétrikj- unum. 52 koma frá fyrrum Júgóslavíu, 49 frá Tælandi og 45 frá Filippseyjum. Opnar búðir um páskana Björn Bjarnason dóms- málaráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn nýtt frumvarp um rýmri opnunartíma verslana á helgidögum. Ætlunin er að verslanir sem uppfylla ákveðin skilyrði megi hafa opið föstudaginn langa, páskadag og hvíta- sunnudag. Rætt er um mat- vöruverslanir minni en 600 fermetra og þar sem a.m.k. tveir þriðju hlutar veltunn- ar er sala matvæla, drykkj- arvara og tókbaks. Niðurskurður ógnar skóla Fulltrúar minnihlutans í skólanefnd Árborgar segja boðaða 24 milljóna króna skerðingu á fjármagni til grunnskóla á Selfossi munu stefna faglegu skólastarfi í hættu. „Skólinn okkar er fjölmennur og sífellt eru nýir nemendur að bætast við. Með tilliti til réttinda og þarfa nemenda finnst okkur því skjóta skökku við að boða niðurskurð af þessari stærðargráðu, fyrir utan það að fagleg rök vantar,“ segjafulltrúar minnihlutans og skora á meirhlutann að hætta við niðurskurðinn. „ÞaÖ er nú eiginlega allt gott að frétta afmér. Kominn i álið og farinn að vinna í gullæð- inu," segir Sigurður Aðal- steinsson, fyrrum bóndi og nú öryggisvörður hjá Bechtel, sem byggir álver Alcoa við Reyöarfjörð.„Þetta gengur bara fínt og allt að komast á fullt.Ég HHVPVVrain er að G&rBiu ILÚ AUÆÆfc vinna hjá Securitas. Maður er mest I því að fylgjast með ferðum til og frá vinnusvæð- inu. Svo blð ég bara spenntur eftir hreindýravertlðinni I byrj- un ágúst. Þá tek ég mér frí og tek hreindýraveiðina, sem er I mlnum huga toppurinn á ár- inu. Vertíðin hefur gengið vel hjá mér og á mínum vegum voru felld nærri tlu prósent af kvótanum I fyrra." Björgunarsveitir á vegum Landsbjargar hafa farið í rúmlega 70 útköll það sem af er árinu. Valgeir Elíasson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að um óvenjumik- inn fjölda sé að ræða og mun meir en menn reiknuðu með. Tekin hefur verið upp ný skráning á vegum Landsbjargar til að geta betur fylgst með fjölda útkalla og eðli þeirra. Björgunarveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa farið í rúmlega 70 útköll það sem af er árinu eða að jafnaði 4-5 slík á dag. Valgeir Elíasson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að um óvenjumik- inn fjölda útkalla sé að ræða og hafi fjöldinn komið þeim á óvart. „í lok síðasta árs tókum við upp samræmdan aðgerðagrunn fyrir björgunarsveitir okkar þar sem þær geta skráð allar aðgerðir sem þær fara í,“ segir Valgeir. „Hingað til hafa þess- ar upplýsingar legið hjá lögregluemb- ættum hringinn í kringum landið sem hefur gert okkur erfitt að átta okkur á íjölda smærri aðgerða björgunar- sveitanna sem ekki eru boðaðar beint með útkalh frá Neyðarlínunni 112, heldur í gegnum síma.“ Nýliðin helgi var engin undan- tekning hvað varðar fjölda útkalla á landinu öllu en þau voru, samkvæmt aðgerðagrunninum, rúmlega 10 tals- ins. Stærsta aðgerðin var á vegum björgunarsveitinnar Stráka frá Siglu- firði á laugardagskvöld er leitað var að fimm vélsleðamönnum í Héðinsfirði. Einn fimmmenninganna hafði villst frá hópnum en hinir fjórir fundust í slysavarnaskýlinu í Héðinsfirði þar sem þeir biðu aðstoðar. Alls tók 21 björgunarsveitarmaður úr Strákum þátt í aðgerðinni á vélsleðum og snjó- bíl auk þess sem björgunarskipið Sig- urvin var kallað út þar sem tveir vélsleðamannanna voru slasaðir. Flutti skipið mennina sjóleiðis úl Sigluíjarðar og var komið með þá þangað um miðnættið á laugardags- kvöld. Englendingar í skafli Af öðrum aðgerðum um eða eftir helgina má nefna að björgunarsveitín Kópur í Bfldudal var beðin um aðstoð við að koma bónda inn í Auðahrings- dal þar sem hann er með fjárhús. Snjóflóð hafði fallið á leiðinni og gat hann ekki komist af þeim sökum nema með aðstoð björgunarsveitar sem fór með hann á vélsleða. Á sunnudag var björgunarsveitín Mannbjörg í Þorlákshöfn send til að- stoðar við tvo Englendinga sem festu bfl sinn í skafli á Selvogsheiði. Björg- unarsveitarmenn fóru á vettvang og aðstoðuðu ferðalangana sem voru á leið í Bláa lónið og var þeim beint á greiðfærari leið. Vélsleðamaður við Dufánsdal Á laugardag var haft samband við Björgunarsveitína Kóp á Bfldudal eftir að vélsleðamaður hafði ekki skilað sér til byggða. Spor vélsleðans lágu inn í Dufánsdal þar sem hann fannst við illan leik í sumarbústað eftir að hafa fest sleðann uppi í hh'ðinni og tognað í baki við að reyna að losa hann. Þurftí vélsleðamaðurinn að skríða nokkur hundruð metra tfl þess að komast í bústaðinn þar sem hann beið kaldur og stírður björgunar. Farið var með hann tfl læknis á Patreksfirði. Kindur, hross og menn Útköllin um helgina voru í öllum landshlutum. Nefna má að björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi fór tfl aðstoðar eftír að maður slasaðist á göngu- leiðinni á Esjuna, ofan við Mógilsá, á laugardag. Og sama dag var björgrm- arsveitin Hérað á Egilsstöðum kölluð út eftir að bfll lentí út af á Fagradal. Björgunarsveitarmenn fóm á vettvang á öflugum jeppa og spiluðu bflinn upp á veg. Engin slys urðu á fólki. Þá var Björgunarsveitin Káraborg á Hvammstanga beðin um aðstoð við að ná hrossum sem vom innlyksa við Syðri-Þverá. Og 14 björgunarsveitarmenn frá Biskupstungum, Flúðum, Laugar- vatni og Grímsnesi fóm á 12 vélsleð- um inn á uppsveitir Árnessýslu til að aðstoða fjárbændur við leit að kind- um sem gmnur var á að væm á heið- arlandi inn við Efstadal Brúarár- skörð. Við leitína fund- ust 16 kind- ur í þokka- legu ásig- komulagi. Valgeir Elíasson Valgeir Elíason upplýs- ingafulltrúi Landsbjargar segir að um óvenjumikinn fjölda útkalla sé að ræða og hafi fjöldinn komið þeim á óvart. Sigurvin Björgunarskipið Sigurvin var kallað útþarsem tveir vélsleðamann- anna ÍHéðinsfirði voru slasaðir. Björgunarsveitarmenn Útköll- in um helgina voru iöllum lands- hlutum og höfðu björgunarsveit- armenn i nógu að snúast. Gestir heimasíðu De Palace í Hafnarstræti Könnun um innflytjendur á íslandi Vilja bert hold á netinu Eigendur Palace Eiga einnig skemmtistaðinn De Boomkikker. Níu af hverjum tíu þeirra sem skoða heimasíðu staðarins De Palace eru sammála því uppátæki sem eigendur staðarins hafa tekið upp á að taka myndir af viðskipta- vinum staðarins sýna kynfæri og bert hold. Á heimasíðu hefur verið settur hlekkur þar sem skrifað er: „Hvað finnst ykkur um bert hold inni á þess- ari síðu látið skoðun ykkar í ljós..[...j ..framtíðin er í ykkar höndum." Fólk er vinsamlegast beðið um að láta sína skoðun í ljós og nokkr- ir hafa gert það. Niðurstöðurnar eru afgerandi því að 91 prósent vill bera holdið og kynfærin áfram á móti aðeins 9 prósentum sem vilja bera holdið og kynfærin burt. Myndirnar sýna bæði kynin og eru myndimar að mestu leyti tekn- ar inni á klósettum skemmtistaðar- ins. Ekki náðist í eigendur staðar- ins. Skilja ekki ráðningarsamninga „Þetta kom okkur nokkuð á óvart," segir Elsa Arnardóttir, fram- kvæmdastjóri Fjölmenningarseturs, sem stóð fyrir könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vest- fjörðum og Austurlandi. Þar kom meðal annars í ljós að af þeim 80 prósentum innflytjenda á íslandi sem hafa skrifað undir ráðningar- samning í núverandi starfi skildu 62 prósent ekki innihald hans. Könnunin náði ekki til Kára- hnjúka og segir Elsa að líklega þyrfti að gera sérstakan spurningalista fyrir það svæði. „Þar er fólk í tíma- bundnum störfum. í stað aðlögunar ætti frekar að skoða aðbúnað og kjör." Könnunin gefur mikilvægar upp- lýsingar um viðhorf innflytjenda til ýmissa þátta og gefur mikilvægar upplýsingar fyrir alla þá aðila er koma að þjónustu við innflytjendur. Innflytjendur á fslandi Vilja læra is- lensku og skilja ekki ráðningarsamninga. I könnunni kom fram að 90 prósent innflytjenda höfðu áhuga á að læra íslenskuna vel. Elsa segir það vera góð tíðindi og sýni glögglega að vald á íslenskri tungu er mikilvægt í aug- um innflytjenda. Því sé fullt tilefni til átaks í íslenskukennslu fyrir innflytj- endur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.