Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 Fréttir DV Meindýra- eyðir kaupir bústað Bæjarráð ísafjarðarbæj- ar hefur samþykkt kauptil- boð meindýraeyðisins Vals Richter frá ísafirði í sumar- bústað bæjarins við Grund- arstíg á Flateyri. Valur skuldbindur sig til að flytja bústaðinn burt á eigin kostnað. Hann er 60 fer- metrar að stærð, en honum var komið fyrir á Flateyri eftir að snjóflóð hreif með sér Qölda húsa í þorpinu árið 1995. Valur fær bústað- inn á 2,3 milljónir króna. Hann varð þekktur þegar hann felldi tugi katta í ísa- fjarðarbæ til að stemma stigu við hálfgerðum katta- faraldri árið 2003. Geishur og sushiíHÍ Japönsk fjölskyldu- hátíð verður haldin á laugardaginn í Háskóla íslands. Þar á að kynna japanskan mat, tesiði, origami pappírslist og bardagaíþróttir. Fjallað verður um geishur, japönsk sverð, teikni- myndir og útlensk töku- orð í japönsku. Hægt verður að fá nafn sitt skrautritað með japönsku letri. Aðgangur er ókeyp- is. Að hátíðinni standa sendiráð Japans og Há- skólinn sem hóf kennslu í japönsku haustið 2003. Mdlskot eða þjóðaratkvœði ? Sigurður Kári Kristjánsson þ ingmaður. „Ég tel að það verði að endur- skoða málskotsréttinn því hann gengur ekki eins og hann var notaður í sumar og gerði forsetaembættið enn pólitískara en það hefur verið. Þjóðaratkvæði hljómar vel í eyra en spurning er hvort hægt sé að útfæra það svo öllum iíki." Hann segir / Hún segir „Mér finnst þetta ekki vera spurning um annað hvort eða. Þetta á hvort tveggja að vera inni í stjórnarskránni að minu mati, málskotsrétturinn og ákvæði um þjóðaratkvæði. Það er svo bara spurningin um hvernig það verður útfært." Guðrún Ögmundsdóttir þ ingmaður. Þórður Vormsson er 67 ára íbúi í Vogunum sem segist hafa verið lagður í einelti i um 40 ár af bæjarbúum. Þórður er hættur að vinna vegna aldurs og segir lífið ein- manalegt. Einu vinir hans séu ijórir kettir. Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri i Vogunum, segir að reynt sé að hjálpa Þórði að lifa mannsæmandi lifi. Þórður Vorms- son íVogunum „Ég kalla þetta bara andlegt of- beldi.Þaðerallt gerttil að láta mér iiða illa." „Eg kalla þetta andlegt ofbeldi," segir Þórður Vormsson, 67 ára íbúi í Vogunum. f 40 ár hefur Þórður þurft að þola einelti af hendi bæjarbúa. Hann er hættur að vinna og segir lífið ein- manalegt. Nú hafa bæjaryfirvöld opnað augun og ætla að hjálpa Þórði að hefja nýtt líf. „Ég hef verið lagður í einelti í 40 ár. Út af öllu mögulegu. Það varla líður ár án þess að eitthvað gerist,“ segir Þórður sem býr að Brekku í Vogunum. „Ég kalla þetta bara and- legt ofbeldi. Það er allt gert til að láta mér líða illa." Beðinn um að lýsa lífi sínu segir Þórður að það hafi verið einmana- legt. Einmanalegt líf „Ég er nýhættur að vinna hjá ís- lenskum aðalverktökum þar sem ég vann í tuttugu ár,“ segir Þórður. „Ég sakna ekki starfsins. Bara félags- skaparins. Nú hangir maður bara einn yfir sjálfum sér. Les krossgátur og blöðin." Félagsmálayfirvöld í Vogunum hafa tekið mál Þórðar upp á sína arma. DV hafði samband við Jó- hönnu Reynisdóttur, sveitarstjóra og félagsmálafulltrúa í Vogunum. „Það á enginn maður skilið að vera lagður í einelti," segir hún. „Ég get lítið tjáð mig um hans mál sök- um stöðu minnar en get þó sagt að við erum að aðstoða Þórð með það í huga að gera líf hans betra." Bærinn hjálpar Prestar, lögreglan, félagsmála- yftrvöld og verkalýðsfélagið koma að þeirri vinnu. Til dæmis er reynt að finna nýtt starf handa Þórði sem henti honum í ellinni. Eftir fjörutíu ára þögn virðist samfélagið í Vog- unum loksins vera að opna augun. Jóhanna segir einelti vel þekkt meðal úngs fólks og á vinnustöðum en sjaldgæfara þegar komi að eldra fólki. „Það er samt ekki síður nauðsyn- legt að aðstoða það. Svona lagað á hreinlega ekki að líðast. Manni finnst bara sjálfsagt að fólk komi fram við náungann af virðingu," segir Jóhanna. Elskar ketti Eitt af því sem hefur farið fyrir brjóstið á íbúum í Vogunum er kattahald Þórðar. Sjálfur segir Þórð- ur að kettirnir séu bestu vinir hans. Einu vinir hans. „Mér þykir óskaplega vænt um Ég hef verið lagður í einelti í 40 ár. Út af öllu mögulegu. Það varla líður ár án þess að eitthvað gerist. kettina mína fjóra," segir Þórður og brosir. „Einn heitir Kobbi crazy og er mjög gáfaður. Annar heitir Birgitta, ein Rjómalind því henni finnst rjómi svo góður og svo er það kallinn á heimilinu. Hann er fress og heitir Silfri.“ simon@dv.is Barátta gegn rottum nærri Grindavík Rottugangur hjá íslandslaxi Fjórir gefa kost á sér í rektorsembætti Baráttan um Háskólann r x WHZ&'Wfo ijni Hpí N vf f *Æ •. ■' p áíí r '7 fr % \ * 1 H í'i' - L •‘LgR - wL sT'.'K'lBfe'' t - npm ' Ágúst Einarsson, Einar Stefánsson, Jón Torfi Jónasson og Kristín Ingólfsdóttir Vilja öll vera rektor. Kosningabaráttan fyrir rektors- kjörið harðnar í Háskóla íslands. Nú hafa fjórir frambjóðendur tilkynnt framboð sitt til embættis rektors við Háskólann. Það eru Ágúst Einarsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild, Einar Stefánsson, prófessor við læknadeild, Jón Torfi Jónasson, prófessor við félagsvís- indadeild og Kristín Ingólfsdóttir, prófessor við lyfjafræðideild. Rekt- orskjörið mun fara fram í mars. Páll Skúlason, rektor HÍ, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Laxeldisstöðin íslandslax hefur gripið til aðgerða til að losna við rottugang sem þar er kominn upp á yfirborðið. „Þær lifa hérna á fóðrinu okkar," segir Hjalti Bogason stöðv- arstjóri, sem tók við laxeldinu fyrir um tveimur árum. „Vafalaust hafa þær verið hér lengi. Frárennslismál voru í ólestri þegar við hjá Samherja komum að stöðinni. Umhverfls- stofnun var hér í desember og þá fórum við yflr þetta. Ég fékk frest til vors og þá verður vinnunni væntan- lega lokið," segir Hjalti. Laxeldið er staðsett nokkra kíló- metra frá Grindavík. Þar er laxi ekki lengur slátrað, eins og áður var gert, heldur er hann fluttur til Grindavík- ur í slátrun. Hjalti tekur frarn að Rottur Láta lítið fara fyrir sér en eru viða. rottugangurinn hefur engin áhrif á gæði laxins. „Ekki frekar en að þær eru í fjöruborðinu og við veiðum þorsk í Atlantshafinu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.