Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005
Fréttir DV
Jón Kristjánsson heilbrigöis-
ráðherra er það sem stjórn-
málamenn eru slður en svo
þekktir fyrir; heiðarlegur inn
að beini. Hann er mikill
mannasættir og hvers manns
hugljúfi. Ákaflega þægilegur
og vill hvers manns vanda
leysa. Hann er afar bóngóður,
hægur og rólegur og hefur
góð áhrifá þá sem umgang-
asthann.
Dagný Jónsdóttir og Birkir J. Jónsson sátu í æðstu embættum Sambands ungra
framsóknarmanna þegar Íraksstríðið var um það bil að hefjast og mótmæltu þá
harðlega. Birkir hefur nú skipt um skoðun. Afstaða Dagnýjar er óljós í dag. Ungir
framsóknarmenn eru á sömu skoðun.
Dagný og Birkir mótmæltu
Halldóri fyrir kosningar
Kostir hans eru jafnframt
ókostir því það er ekki
alltafhægt að fara sátta-
ieiðina og hann veigrar sér
oft við að taka einarða af-
stöðu til eða frá. Hann trúir
að það sé hægt að leysa öll
mál með samtölum og því
vilja hlutirnir dragast á
langinn hjá honum. Hann á
það til að segja já við alla
aðila í deilumálum.
„Jón er mjög varkár mað-
ur en jafnframt fylginn
sér. Maður getur treyst
þvi fullkomnlega sem
hann segir. Og Jón er létt-
ur og skemmtilegur per-
sónuleiki í góðra vina hópi."
Þorbergur Hauksson, slökkviliðsstjóri
Eskifirði.
„Jón er góður og traustur
framsóknarrmaður og
hvers manns hugljúfi.
Hann er mjög skemmti-
tegur og mikiH gleðipinni
i persónutegri viðkynn-
ingu öfugt við það sem margir
haida. Jón hefur staðið vaktina
vel og tengi og er mjög fær
stjórnmálamaður. *
S/V Friðleifsdóttir þingmaður.
„Hann er hlýr og við-
kunnanlegur maður. Hef-
ur mikinn húmor til að
bera og er góður hagyrð-
ingur. Hann yrkir þó án
þess að særa nokkurn.
Helsti gatli Jóns er aðhann er
óforbetraniegur framsóknar-
maður sem læknast ekki af
þeim kvilla úrþessu."
Össur Skarphéðinsson þingmadur.
Jón Kristjánsson er fæddur i Stóragerði í
óslandshlíð, Skagafirði, 1 l.júní 1942.AÖ
loknu Samvinnuskólaprófi 1963 stundaði
hann m.a.ýmis verslunar- og félagsstörf.
Var kosinn inn á þing fyrir Framsóknar-
flokkinn á Austurlandi, síðar Norðaustur-
kjördæmi, árið 1984 en haföi áður setið á
þingi sem varamaður. Hefur setið á þingi
siðan og gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir
land og flokk. Varð heilbrigðis-og trygging-
armálaráðherra 2001. Jón er kvæntur Mar-
gréti Huldu Einarsdóttur bankastarfsmanni
og eiga þau þrjú börn.
Vilja hreindýr
á Strandir
Rétt innan við helming-
ur Strandamanna vill sjá
hreindýr á Ströndum strax í
vor samkvæmt könnun á
vefnum strandir.is. Ná-
kvæmlegajafn margir, af
þeim 384 sem hafa gefið
álit sitt, eru þó ósammála
hugmyndinni og vilja ekki
sjá hreindýr á þessum slóð-
um. Einn af hverjum tíu
segir: Já, já, reyna eitthvað
nýtt. Hreindýr á íslandi
hafa hingað til aðallega
haldið sig á austanverðu
hálendinu.
Samkvæmt heimildum DV var ályktun ungra framsóknarmanna
mikið hitamál innan sambandsins. Dagný og Birkir sem þá
gegndu tveimur æðstu embættum þar fengu ályktunina fyrst
samþykkta í framkvæmdastjórn sambandsins en eftir að and-
stæðingar ályktunarinnar fengu lögfræðiálit á gjörningnum var
ályktuninni komið í gegnum stjórn sambandsins og hún sam-
þykkt án mikillar andstöðu.
Dagný Jónsdóttir og Birkir J.
Jónsson hafa lítið látið hafa eftir sér
um afstöðu sína til Íraksstríðsins í
þeirri orrahríð sem nú hefur ríkt
vegna málsins innan Framsóknar-
flokksins. Birkir var þó gestur í ís-
landi í bítið í gærmorgun þar sem
hann aftók með öllu að samþykkja
þá hugmynd að íslendingar létu
fjarlægja nafn sitt af listanum um-
deilda yfir stuðningsmenn innrás-
arinnnar
Snúningur Dagnýjar og Birkis
Birkir sagði ennfremur að fram-
sóknarmenn hefðu tekið þá afstöðu
fyrir tveimur árum að styðja innrás-
ina í írak og ekki væri ástæða að
hans mati til að endurskoða það.
Ummæli Birkis eru einkar
athyglisverð í því ljósi að fyrir
tveimur árum var Birkir varafor-
maður Sambands ungra framsókn-
armanna, sem þá mótmælti harð-
lega stuðningi íslendinga við inn-
rásina í írak. Dagný Jónsdóttir var
formaður sambandsins á
sama tíma en frá því
Dagný kom á þing
hefur lítið borið á
andstöðu hennar
við innrásina í
írak - í það
minnsta á opin-
berum vettvangi.
DV reyndi ít-
rekað að ná tali af
bæði Dagnýju
og Birki í gær
og fýrradag
en án árang-
urs.
/.'v li
Nýkomin á þing Dagný Jónsdóttir, fyrr
um formaður SUF, beitti sér hart fyrir því
að stuðningi islenskra stjórnvalda við
innrás iIrakyrði hætt rétt fyrir innrásina
„Mín skoðun og sam-
bandsins ersú sama;
að rangt hafi verið að
fara í þessa innrás
gegn vilja Sameinuðu
þjóðanna."
Afstaða SUF óbreytt
Haukur Logi Karlsson, núver-
andi formaður Sambands ungra
framsóknarmanna, segir afstöðu
sambandsins enn óbreytta. Sjálfur
hefur hann gagnrýnt stuðning Hall-
dórs og Davíðs við innrásina.
„Mín skoðun og sambandsins er
sú sama, að rangt hafi verið að fara
í þessa innrás gegn vilja Samemuðu
þjóðanna," segir formaður SUF í
samtali við DV.
Aðrir ungir
framsóknar-
menn sem DV
ræddi við stað-
festu þá skoð-
un
sambandsins
að ákvörðun
Halldórs og
Davíðs um
stuðning við
aðgerðirnar í
Irak nytu ekki
opinbers
stuðnings
ungra framsókn-
armanna.
heigi@dv.is
Órólega deildin
Kristinn H. Gunnarsson Hann hefur
gengið lengst i gagnrýni sinni á stuðning
l'slands við innrásina i Irak og ekki sist
málsmeðferðina; að Haiidór og Davið
hafi tveir tekið ákvörðunina.
Guðni Ágústsson Það kom mörgum á
óvart þegar Guðni - sem til þess
dags hafði haldið sig til hlés
i umræðu um Iraksmálið -
tók afallan vafa um
vinnubrögð Halldórs og
Davíðs i málinu.
Óákveðna deildin
Jónína Bjartmarz Hún firrtisig ábyrgð
á veru islands á listanum fræga en vildi
þó ekki lýsa sig andviga innrásinni.
Hjálmar Árnason Öllum að óvörum
opnaði þessi fyrrverandi herstöðvaand-
stæðingur fyrir þann möguleika að Is-
land yrði fjarlægt aflista staðfastra
þjóða. Bakkaði þó fljótlega og hefur lítið
rætt málið síðan.
| Skipti um skoðun BirkirJ.
| Jónsson var varaformaður
Sambands ungra framsóknar-
manna þegar ályktun gegn
þátttöku Islendinga i Iraksstriði
var samþykkt með uppréttri
hendi hans. Birkir hefur skipt
um skoðun.
Galdratæki í Laugardal
Þurrkar sundskýlur
Stefán Kjartansson, forstöðu-
maður sundlaugarinnar í Laugar-
dal, hefur riðið á vaðið og sett upp
sundskýluþurrkara í búningsklef-
um beggja kynja. Vekja þeir mikla
athygli og er tekið fagnandi af
sundlaugargestum.
„Við höfum lengi vitað af þess-
um þurrkurum en það var ekki fyrr
en nú sem við slógum til og keypt-
um. Aðallega vegna þess að við
fengum þetta á góðu verði frá
Bandaríkjunum; á allt að því hálf-
virði, um hundrað þúsund krónur,"
segir Stefán sem er jafn ánægður og
gestirnir með nýju sundfata-
þurrkarana.
Tækin sem hér um ræðir eru
ekki stór. Minna helst á sorptunnu
á vegg en eru flóknari að allri gerð.
Stefán segir að hér sé í raun um
venjulegar vindur að ræða sem
þurrki sundskýlur að mestu. Heldur
er hann þó á móti því að menn séu
að troða blautum handklæðum
ofan í þessar skemmtilegu
smátunnur sem nú eru eftirlæti
sundlaugargesta. Svo mjög hafa
þeir gaman af þessari litlu vindu að
dæmi eru þess að menn bleyti skýl-
ur sínar aftur til þess að geta þurrk-
að á ný.
„Eitthvað hef ég heyrt um að
konurnar í kvennaklefunum séu að
þurrka sundboli sína of lengi en þá
geta þeir hlaupið og því ræð ég kon-
unum frá því,“ segir Stefán sem
staðhæfir að Laugardalslaugin sé
frumkvöðull á þessu sviði og
þurrkara sem þessa sé ekki að finna
í öðrum laugum.
Stefán við sundskýluþurrkarann Bylting
og gleðileg nýjung fyrirsundlaugargesti.