Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Page 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAQUR 19. JANÚAR 2005 17
Stytta af stór-
glæpamanni
Á Indlandi hefur verið
reist stytta til minn-
ingar um alræmdasta
stórglæpamann
landsins, Veerappan,
sem skotinn var til
bana fyrir þremur
mánuðum. Fyrir utan
rán og þjófnaði er
hann talinn hafa
drepið um 130 lögreglu-
menn. Styttan sem er um
metri á hæð var reist við
gröf glæpamannsins í
Moolakkadu í Tamil Nadu-
héraðinu. Hún sýnir Veer-
appan með risavaxið yfir-
varaskegg sitt, sem var
vörumerki hans, og byssu
um öxl. í huga margra í
héraðinu var Veerappan
nokkurs konar nútíma Hrói
höttur.
Uppbygging í Asíu og írak
Ég hef verið að reyna að ná ut-
anum umræðuna hér á landi. Það
sem ég hef meðal annars skoðað,
er orðið uppbygging. Þetta er breitt
og mikið orð. Maður fylgdist meðal
Óli Ómar Ólafsson %
skilurekki umræðuna .
um uppbyggingu í
Irak. i \
Leigubílstjórinn segir
annars með því hvernig alls konar
fólk vann fórnfúst starf þarna á
laugardaginn við að safna í sjálf-
boðavinnu peningum fyrir flóða-
svæðin í Asíu. Þarna á að koma
hjólunum af stað og málunum í
réttan farveg. Þarna er unnið að
uppbyggingu og þetta fólk sem
þarna vann á þakkir skildar fyrir að
hjálpa til og byggja upp.
Það er eitthvað annað þarna
sem tvíburabræðurnir tala um
þegar þeir eru alltaf að tönnlast á
uppbyggingunni í Irak. Ég fylgist
nú vel með fréttum, bæði íslensk-
um fréttum og svo fylgist ég með
fréttastöðvum eins og CNN, og ég
sé ekkert af þessari uppbyggingu.
Ég sé ekki annað gerast en að
þarna veður kúrekinn fyrir vestan
uppi og skýtur heimamenn með
stuðningi Dabba og Dóra.
Það er alveg óþolandi að heyra
það alltaf hreint að þeir sem ekki
styðja stríðið í írak, séu á móti upp-
byggingu. Þetta heldur náttúrlega
ekki. Maður sér myndirnar af fólk-
inu að hreinsa göturnar, hlaða
veggi, skola sundlaugar og fegra
strendur í Asíu en ekkert svoleiðis
kemur frá írak. f Asíu er fólk að
reyna að hefja nýtt líf en í írak sér
maður ekkert slíkt. Það er hund-
leiðinlegt að þurfa alltaf að hlusta á
þetta tal um uppbyggingu sem
ekki er byrjuð.
George W. Bush Bandaríkjaforseti liggur undir vaxandi gagnrýni vegna kostnaðar
af veislum sem halda á þegar hann tekur formlega við embættinu á ný i vikunni.
Sagt er að íburðurinn i kringum veisluhöldin sé óviðeigandi meðan þjóðin eigi í
stríði i írak og stutt er síðan hörmungarnar á Indlandshafi dundu yfir.
Áköfleitað
hrekkjalómum
Lögreglan í Þýska-
landi leitar nú ákaft
hrekkjalóma sem hafa
farið víða um í almenn-
ingsgörðum og stungið
litlum bandarískum fán-
um í hundaskítshrúgur.
Josef Oettl, umsjónar-
maður almenningsgarðs
í Bayreuth, segir að þetta
athæfi hafi staðið yfir í
um ár og að á milli 2000
og 3000 hundaskítar hafi
fengið flaggið. f fyrstu
var haldið að þetta væru
mótmæli gegn íraks-
stríðinu en síðar endur-
kosningu George W.
Bush í embætti forseta.
Hvað sem því líður
stendur lögreglan alger-
lega á gati hvað varðar
prakkarana.
Andvaka
í tuttugu ár
63 ára gamall maður
sem hefur ekki getað sofið í
tuttugu ár hefur fengið úr-
skurð lækna um að ekkert
ami að honum. Fyodor
Nesterchuk frá Kamen-
Kashirsky í Úkrafnu segist
síðast hafa tekist að fá sér
blund árið 1985. „Ég man
ekki nákvæmlega hvenær
svefnleysið hófst
en allt í einu gat
ég alls ekki sof-
ið,“ segir Fyodor.
Hann segir að
hann hafi reynt
að lesa leiðinleg-
ar bækur en um leið og
augnlokin fóru að síga
glaðvaknaði hann á ný.
Læknar geta ekkert fundið
að Fyodor líkamlega.
Vandamálið sé andlegs
eðlis.
Veisluhöld Bush kosta
yfir 2,5 niilljaröa
George W. Bush Bandaríkjaforseti liggur nú undir vaxandi gagn-
rýni vegna yfir 40 milljón dollara kostnaðar við innsetningar-
dansleiki, tónleika og kertaljósakvöldverði þegar hann tekur
formlega við embættinu á ný nú í vikunni.
Mælt í íslenskum krónum er
kostnaðurinn við embættistöku
George W. Bush yfir 2,5 milljarðar
fyrir þriggja daga veisluhöld í Wash-
ington. Sagt er að þessi íburður sé
óviðeigandi meðan þjóðin eigi í
stríði og stutt er síðan hörmungarn-
ar við Indlandshaf dundu yfir.
Dugir fyrir 690 Humvees
Einn þeirra sem er ofboðið er
fulltrúadeildarþingmaðurinn Anth-
ony Weiner frá NewYork. I bréfi sem
hann skrifaði Bush vegna málsins
hvetur hann forsetann til að biðja þá
sem styrkja veisluhöldin fjárhags-
lega að nota peningana heldur í
búnað handa hermönnunum í írak
sem segjast þurfa að ryksuga brota-
járnshauga svo þeir hafi nægilegt
magn af stáli til að brynverja bifreið-
ar sínar og ökutæki.
„Fordæmin sýna að innsetning-
arhátíðin ætti að vera á lágu nótun-
um, ef ekki aflýst, á stríðstímum,"
skrifar Weiner í bréfinu og nefnir að
með fyrrgreindri upphæð sé hægt að
kaupa 690 Humvees-bfla eða veita
hverjum hermanni í frak 290 dollara
bónus.
Weiner nefnir einnig að þegar
Franklin Roosevelt var settur á ný í
embætti var eingöngu boðið upp á
kalt kjúklingasalat og köku.
Bush andmælir
George W. Bush hefur andmælt
þessari gagnrýni og segir að nauð-
synlegt sé að fagna friðsömum
valdaskiptum á hátíðlegan hátt.
„Þú getur haft jafnmiklar áhyggj-
ur af hermönnum okkar í Irak og
þeim sem eiga um sárt að binda eftir
flóðbylgjuna með því að fagna
lýðræðinu," segir Bush í viðtali við
CBS-stöðina sem sýnt var í fyrra-
kvöld.
Bush nefndi einnig að í veislu-
höldunum yrðu atriði með her-
mennskuþema eins og „Comander-
in-Chief‘-dansleikurinn.
Og sagnfræðingurinn Robert
Dallek hefur sagt að Lyndon B.John-
son hafi ekki sparað íburðinn 1965
þrátt fyrir að Víetnamstríðið væri í
fullum gangi.
-.úush George W. Bush
hefur ondmælt þessari gagnrýni og
segir að nauðsynlegt sé að fagna
friðsömum vaidaskiptum á hátið-
legan hátt.
Löng hefð
Það er löng hefð fyrir þessum
veisluhöldum í kringum innsetning-
una á nýjum forseta í Bandaríkjun-
um. Siðurinn er rakinn aftur til Í809
er James Madison hélt í fyrsta sinn
sérstakan dansleik að lokinni at-
höfninni.
Það eru fyrirtæki og einstaklingar
sem standa straum af kostnaðinum,
ekki hið opinbera. Og það kostar sitt
að fá að taka þátt í hinum virðingar-
meiri samkvæmum, eða á bilinu
2.000 til 10.000 dollara fyrir hvern.
Stórfyrirtæki á borð við Ford,
Marathon Oil og Northrop Grumm-
an punga svo út frá 100.000 og upp í
250.000 dollara hvert
en í staðinn fá stjórn-
arformenn þeirra
sæti á góðum stað
við sjálfa athöfnina
og gott borð í veislu-
salnum á eftir.
„Fordæmin sýna að
innsetningarhátíðin
ætti að vera á lágu
nótunum, efekki af-
lýst, á stríðstímum."
DonaldTrump giftir sig í þriðja sinn
Spánverjinn Rodolfo Leon teiknar
Þjófur skildi
eftir
blómvönd
ítalskur þjófur sem
braust inn á heimili uppá-
haldssjónvarpsstjörnu sinn-
ar skildi þar eftir blómvönd
sem gjöf. Þjófurinn stal
skartgripum, úrum, postu-
líni og handklæðum frá
sjónvarpsstjörnunni
Simonu Ventura af heimili
hennar í Mílanó. Ventura er
aðalþulurinn í þáttum um
ítalska fótboltann á sunnu-
dögum. Lögreglan í Mílanó
sem rannsakar málið er nú
að kanna hvar blómvöndur-
inn var keyptur.
Lofar að halda ekki
framhjá eiginkonunni
Auðkýfingurinn
Donald Trump mun
giftast eiginkonu núm-
er þrjú, Melaniu
Knauss, á laugardag.
Trump hefur þegar
gefið út yfirlýsingu þar
sem hann lofar að halda
ekki framhjá Melaniu,
sem er módel frá Sló-
veníu. Athöfnin fer fram
á Palm Beach og búist er
við að allir sem eru eitt-
hvað í skemmtanaiðn-
aðinum mæti í hófið.
í viðtali um komandi hjónaband
við Access Hollywood segir Tmmp að
hann ætli sér að verða „mjög góður
eiginmaður til tilbreytingar" og að
meðan hann verði giftur muni hann
ekki fara á stefnumót
með öðrum konum
„...slíkt er ekki vinsælt
hjá eiginkonum..."
Eiginkona númer
tvö, Marla Maples, sem
Trump hélt framhjá
með er hann var giftur
Ivönu Trump, mun
hafa hlegið dátt er hún
heyrði þessara yfirlýs-
ingar kappans um
hjónaband númer þrjú.
„Það var aldrei önn-
ur kona í spilinu meðan
við vorum gift," segir Maples og
óskar verðandi hjónunum alls hins
besta í framtíðinni. Hið sama gerir
eiginkona númer eitt, Ivana
Trump.
Páfinn í hlutverki teikni-
myndahetju
Kaþólsk ofurhetja sem heitir
„The Incredible Homo Pater“ hefur
fæðst undan penna spænska teikni-
myndahöfundarins Rodolfo Leon.
Það sem vekur athygli er að
kappinn er sláandi líkur Jóhannesi
Páli páfa. Um er að ræða fyrstu kaþ-
ólsku ofurhetjuna í sögu teikni-
mynda og kemur kappinn fram á
sjónarsviðið fullbúinn með djöfla-
handjárn og syndaraskikkju.
„Fólk heldur að teiknimyndasería
mín fjalli um páfann. En þetta er ekki
sjálfur páfinn,“ segir Leon. „Mín
hetja heitir „The Incredible Homo
Pater" og býr í húsi sem minnir um
margt á Vatikanið en þetta er ekki
sjálft Vatikanið. Þess vegna leyfi ég
mér ákveðið frjálsræði."
Prestur Leons segir að hann hafi í
sjálfu sér ekkert á móti hinni nýju
ofurhetju svo lengi sem hún standi
íyrir gott siðgæði og sé öðrum góð
kaþólsk fyrirmynd. Hann hefur aftur
á móti nokkrar áhyggjur af því að
verkið muni valda því að gert verði
grín að kaþólskri trú.
Hvað sem þessu líður er „The
Incredible Homo Pater“ kominn á
prent og byrjaður að elta uppi ill-
rnenni hvar sem þau finnast í heim-
inum.