Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Qupperneq 17
DV Sálin
MIÐVIKUDAGUR I9.JANÚAR 2005 1 7
fyrirtæki og heimili. Einföld en
öflug Canon PowerShot A75 ljós-
myndavél kostar 22,900 kr. og
Canon PowerShot Pro 1 8 milljón
punkta myndavél kostar 89.900
kr. en kostaði áður 119.900 kr. Þá
kostar öflugur og hagkvæmur
Canon Í990 tölvuprentari 29.900
kr.
# í tilefni þess að
Bílkó hefur opnað
smurstöð í húsnæði
sínu að Smiðjuvegi 34
býðst viðskiptavinum 25% afslátt-
ur af vinnu við smurningu. Hjá
Bílkó er einnig frí ísetning á raf-
geymum í bfla, bremsuklossa-
skipti kosta frá 2.500 og alþrif
kosta frá 4.900 kr. Ef bflarnir eru
sóttir og þeim skilað eftir viðgerð
eða þrif kostar það aðeins
850 kr. auka.
/
# I Harðviðarvali
stendur nú yfir útsala
á viðarparketti og
plastparketti. Fermetri
af viðar eik haro er á 1.990 kr.
sem og fermetri af beyki og
fermetri af Merbau natur
með hljóðeinangrandi und-
irlagi er á 4.490 kr. Fermetri af
eikar plastpar-
ketti kostar nú
990 kr. fermetri
af hlyn kostar
890 kr. og fer-
metri af eik
accent með fríu
svampundirlagi
kostar 1.390 kr.
Hrikalega gaman í körfu
Leikarinn, leikstjórinn og hinn fjölhæfi listamaður Bergur Þór Ingólfsson segist
vökva andann með tónlist og bókmenntum aðallega.„Nú er ég að lesa Braga
Ólafs, Samkvæmisleiki, hún virkar vel á andann, er alveg frábær
bók. “ Bergur kveðst þarfnast likamlegrar ræktunar, ekki síður
en andlegrar, en stunda hana ekki nema helst ileikhúsinu,
t.d. I bolta með stóru B-i.„Ég hefaldrei nennt að gllma við
tæki á Hkamsræktarstöðvum. Hins vegar finnst mér hrikalega gaman i
körfu- og fótbolta en fæ lltið rúm til þess að iðka þá list.
Þrifst andinn annars ekki best íþrengingum llkt og kaktusinn sem þolir
mestallt en fær lítið afhverju i einu eins og sólarljósi og vatnif'segir
Bergur spyrjandi.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga.
Allir kannast sjálfsagt við þá tilfinningu að eiga eitthvað verk fyrir höndum en fresta því vegna þess
að viljinn er einfaldlega ekki fyrir hendi. Oft getur frestunin varað í aðeins einn dag en í mörgum
tilfellum getur hún varað í vikur, mánuði og jafnvel ár. Slíkt ástand kallast verkkvíði og er einn al-
gengasti sjúkdómur sem herjar á mannfólkið, hérlendis og víðar.
Máltækið í fyrirsögn þessarar
greinar á að höfða til samviskusemi
okkar. Ef við frestum einhverju
verkefni sem við eigum fyrir hönd-
um, erum við verri einstaklingar
fyrir vikið. Það er tilfinningin sem
sjálfsagt margur getur fengið og lát-
ið slíkt liggja á samvisku sinni, líkt
og steinn sem stækkar og þyngist
með hverjum deginum. Að end-
ingu verður um alvarlegt vandamál
að ræða sem getur haft áhrif á lífs-
gæðin öll.
Algengur kvilli
Vissulega á þetta ekki við alla
sem hafa einhvern tímann þurft að
glíma við verkkvíðann. En þó svo
engar íslenskar rannsóknir liggi fyr-
ir má gera sterklega ráð fyrir að
þetta vandamál sé mun algengara
en fólk gerir ráð fyrir. Endurmennt-
unarstofnun Háskóla fslands
stendur fyrir námskeiði á næstunni
þar sem farið verður yfir verkkvíða
og helstu birtingarmyndir hans.
Námskeiðið er ædað starfsmanna-
stjórum og stjórnendum vinnu-
staða og þar verður kennt að bera
kennsl á verkkvíðann, bæði hjá
sjálfum sér og öðrum starfsmönn-
um. Þórkatla Aðalsteinsdóttir og
Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar sjá
um námskeiðið og ræddi blaða-
maður við Einar Gylfa af því tilefni.
„Þessi kvíði og sektarkennd sem
getur komið upp verður ekki að
eldsneyti til þess að viðkomandi
takist á við hlutina, heldur hlaðast
verkefnin einfaldlega upp,“ segir
Einar Gylfi. „Verkkvíði og frestun-
arárátta eru keimlík fyrirbrigði,
tvær hliðar á sömu myntinni. Það
sem gerist í kjölfarið er að viðkom-
andi einstaklingar fara jafnvel að
búa sér til afsakanir og skrökva til
um ástæður frestunarinnar og
stöðu verkefna. Þarna er kominn
Hvað er til ráða við verkkvíða?
Of mörg verkefni Sí-
felld frestun á vinnu get-
ur orsakað að verkefni
hrannast upp og erfiður
vitahringur skapast.
Sálfræðingur að nafni William
Knauss segir að 90% allra banda-
rískra háskólanema komi sér und-
an vinnu með því að fresta henni í
sífellu einhvern tímann á skóla-
göngunni. Hann telur 25% þeirra
þjást af alvarlegum verkkvíða og að
þeir nemendur klári sjaldnast nám-
ið sitt. Hér verða orsakir verkkvíða
taldar upp sem og holl ráð til að
sigrast á vandanum.
Hugsanlegar orsakir
- Skipulagsleysi
- Einbeitingarleysi
- Ótti og kvíði
- Neikvæð sjálfsmynd
- Vandamál í einkalífinu
- Verkefnaleiði (námsteiði)
- Óraunhæfar kröfur og fullkomnunar-
árátta
- Ótti um lélegan árangur
Holl ráð
- Berðu kennsl á þinn veikleika
- Settu þér raunhæf markmið
- Vertu sjálfum þér samkvæm(ur)
- Forgangsraðaðu verkefnum
- Skipuleggðu vinnuna istuttum timaein-
ingum, ekki yfir lengri tima
- Verðlaunaðu þig fyrir vel unnið verk
- Einblindu á hið jákvæða i verkinu
- Skapaðu þér hollt og gott vinnuumhverfi
Heimild: http://ub-counseling.buffalo.edu-
/stressprocrast.shtml
upp heilmikill vítahringur sem
erfitt er að koma sér út úr.“
Birtingarmynd þunglyndis?
„Á námskeiðinu bendum við á
leiðir sem gætu gagnast mörgum til
að leysa sín mál. Oft geta einstak-
lingar unnið sig úr vandanum án
aðstoðar fræðimanns, eins og sál-
fræðings, en stundum þarf meira
til. Þá getur verkkvíðinn verið til að
mynda birtingarmynd þunglyndis
og þá þarf að takast sérstaklega á
við þann vanda," segir Einar Gylfi.
Hann segir það mikilvægt að
forgangsraða verkefnunum, ætli
maður sér að leysa vandann. Þá
megi ekki gleyma sér í skipulagi
og verklagsreglum. „Það er hægt
að útbúa mjög flotta tímaáætlun í
Excel án þess að nokkuð leysist.
Viðkomandi einstaklingur þarf að
taka verkefnin til athugunar upp
á nýtt og sjá þau í réttu ljósi. Það
er voða auðvelt að segja við sjálf-
an sig að nú ætli maður að taka
sig til og klára þessi mál, en það
reynist oftar en ekki skammvinn-
ur ágóði.“
Einar Gylfi segir að lausn slíkra
vandamála geti leitt til þess að það
hjálpi viðkomandi að takast á við
aðra þætti sem betur mættu fara í
lífinu, slíkt sé mjög algengt.
Vilji lesendur afla sér frekari
upplýsinga um verkkvíða og frest-
unaráráttu - og vilja jafnvel leita út
fyrir landsteinana, bendum við á
leitarvélina google.com. Þar nægir
til dæmis að slá inn leitarorðið
„procrastination" sem er enska
fræðiheitið fyrir téðan kvilla. Vitan-
lega er einnig hægt að róa á innlend
mið, til dæmis á leit.is, en eðli máls-
ins samkvæmt er framboðið á
slíkum upplýsingum ef til vill
heldur takmarkað.
eirikurst@dv.is
Árlega eru veittir ellefu námsstyrkir til virkra
viðskiptavina Námunnar, námsmannaþjónustu
Landsbankans.
Allarnánari upplýsingar
er að finna á
www. landsbanki.is og þar má
einnig nálgast skráningarblað
sem nauðsynlegt er að fylgi
hverri umsókn.
Styrkirnir skiptast þannig:
* 3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms á íslandi,
100.000 kr. hver
* 3 styrkir til háskólanáms á íslandi (Ba/Bs/Ma/Phd),
200.000 kr. hver
* 3 styrkir til háskólanáms erlendis (Ba/Bs/Ma/Phd),
300.000 kr. hver
* 2 styrkir til listnáms, 200.000 kr. hvor
Umsóknum skal skilað í næsta
útibú Landsbankans,
merktum: Námsstyrkir,
Markaðsdeild,
Sölu- og markaðssvið,
Landsbankinn,
Austurstræti 11,
155 Reykjavík.
Umsóknarfrestur vegna úthlutunar námsstyrkja
er til 11. febrúar 2005
Landsbankinn
Banki allra námsmanna
410 4000 I landsbanki.is